Læknablaðið - 01.08.1977, Page 22
LÆKNABLAÐIÐ
136
Magn
31..
Mynd 1.
Áfengisneysla íslendinga miöað viö
100% vínanda á mann á ári.
ek'ki aðeins um skráningu delirium tremens
tilfella á öllu landinu, heldur einnig
aðir sjúklingar með delirium tremens. Sér-
staklega hafa sjúkraskrár þeirra, sem voru
innlagðir á tímabilinu 1960 til 1974, verið
kannaðar ítarlega með tilliti til drykkju-
sögu og einkenna.
Þá hefur verið reynt að athuga lífslíkur
þeirra og dánartölu, ,sem hafa fengið deliri-
um tremens. Hefur þetta verið gert með
því að kanna afdrif karla innlagðra á
Kleppsspítalann vegna delirium tremens á
árunum 1950 til 1974. Lífslíkur þeirra eru
reiknaðar sem hlutfall af lífslíkum ís-
lenskra karla með aðferð Larsons og Sjö-
grens.n í því sambandi eru notaðar íslensk-
ar ævilengdartöflur frá 1950 til 1970, sem
skráðar eru í mannf jöldaskýrslum Hagstofu
íslands árið 1951 til 1960 og 1961 til 1970.11
A grundvelli sömu taflna hefur verið reikn-
að hve margir hefði mátt búast við að dæju
á athugunartímabilinu og það síðan borið
saman við hve margir dóu úr hópnum.
NIÐURSTÖÐUR
Mynd 1 sýnir árlega áfengisneyslu ís-
lendinga miðað við 100% vínanda á mann
á ári frá 1960 til 1974. Ennfremur eru á
myndinni samsvarandi upplýsingar með
fimm ára millibili allt frá árinu 1910.
Meðaláfengisneysla er lítil, eða innan við
einn lítri á árunum 1915 til 1940. Á árun-
um 1915 til 1922 er innflutningur áfengis
bannaður nema með undaniþágum. Á ár-
uinum 1922 til 1935 er leyfður innflutn-
ingur á léttum vínum. Á fjórða áratugn-
um búa landsmenn almennt við kröpp kjör.
Eftir 1950 hefur áfengisneysla landsmanna
farið að heita má sívaxandi og var á árinu
1974 orðin 3.04 lítrar á mann á ári.