Læknablaðið - 01.08.1977, Page 23
LÆKNABLAÐIÐ
137
TAFLA 1
Áfengissjúklingar innlagðir á Kleppsspítalann 1955-1974
Karlar i Konur
Þar af í fyrsta sinn Þar af í fyrsta sinn
Ár Alls Fjöldi Prósent Alls Fjöldi Prósent
1955-59 435 154 35,4 21 14 66,7
1960-64 616 247 40,1 74 38 51,4
1965-69 1384 433 31,3 222 63 28,4
1970-74 1230 333 27,1 280 75 26,8
Alls: 3655 1167 31,8 597 190 31,8
TÍÐNI
Á töflu 1 er sýndur fjöldi áfengissjúk-
linga, sem voru innlagðir á Kleppsspítal-
ann á 5 ára tímabilunum frá 1955 til 1974,
ásamt skiptingu eftir kynjum. Á töflunni
er einnig sýnt hve margir þessara sjúklinga
voru lagðir inn í fyrsta sinn. Á árunum
1955 til 1964 voru 453 sjúklingar lagðir inn
í fyrsta sinn, 52 konur og 401 karl, þ.e.a.s. 1
kona á móti 7.7 körlum. Frá 1965 til 1974
voru 138 konur innlagðar og 766 karlar,
þ.e.a.s. 1 kona á móti 5.6 körlum.
Frá 1907 til 1974 komu á spítalann 104
sjúklingar til meðferðar vegna delirium
tremens. Á aðra spítala 'hafa komið 24
sjúklingar á árabilinu 1960 til 1974. Sam-
tals tekur athugunin því til 128 sjúklinga
af öllu landinu, 113 karla og 15 kvenna.
Á árabilinu 1907 til 1959 eru aðeins
skráðir delirium tremens sjúklingar inn-
lagðir á Klappsspítalann allt karlar, sam-
tals 26 sjúklingar, einn sjúklingur var inn-
lagður 1910, annar 1930, 1931 til 1949
voru 12 sjúklingar innlagðir og 1950 til
1959 voru innlagðir 12 sjúklingar.
Á töflu 2 er sýndur fjöldi sjúklinga, sem
innlagðir voru í fyrsta sinn á sjúkrahús
vegna delirium tremens á árabilinu frá
1960 til 1974. Taflan sýnir skiptingu eftir
stofnunum og kynjum. Gera má ráð fyrir
því með nokkurri vissu, að hér séu skráð
nær öll ný tilfelli af delirium tremens á
landinu á umræddu 15 ára tímabili, en
þau voru þá 102, þar af 15 'konur. Hlut-
fallstala milli kynja er um það bil 1 kona á
móti 7 körlum. Á töflunni sést, að á síðustu
árum 'hafa 'hlutfallslega fleiri sjúklingar
verið meðhöndlaðir á öðrum stofnunum en
Kleppsspítala. Þar 'hafa 78 sjúklinganna
verið til meðferðar, en 24 á öðrum stofn-
unum. i
Af 68 karlmönnum, sem komu á Klepps-
spítala á þessu tímabili, hafa 11 verið inn-
lagðir síðar vegna delirium tremens þar af
2 oftar en tvisvar. Nærri helmingur sjúk-
lingánna eða 31 hefur verið innlagður síð-
ar vegna drykkjusýki, án delirium trem-
ens. Hins vegar hafa 26 sjúklingar aðeins
verið innlagðir í þetta eina skipti. Af 10
konum hafa 3 verið innlagðar aftur vegna
delirium tremens og 3 vegna drykkjusýki,
þannig hafa um 60% sjúklinganna þurft
að leggjast inn aftur vegna drykkjusýki,
með eða án delirium tremens.
Á umræddu tímabili hafa einnig verið
meðhöndlaðir 12 útlendingar vegna deliri-
TAFLA 2
Fjöldi sjúklinga innlagðir í fyrsta sinn á sjúkrahús vegna delirium tremens.
Skipting eftir stofnunum og kynjum.
1960 —64 1965 -69 1970 -74 Samtals
Ka. Ko. Ka. Ko. Ka. Ko. Ka. Ko.
Kleppsspítalinn 18 3 31 5 19 2 68 10
Önnur sjúkrahús 3 0 3 0 13 5 19 5
Alls: 21 3 42 5 32 7 87 1E