Læknablaðið - 01.08.1977, Side 45
LÆKNABLAÐIÐ
153
haldandi 4-0 silki. Þegar klemmur voru
teknar af blæddi lítið og hætti fljótt, en
blóðþrýstingur féll strax úr 220/120 niður
í 180/100. Blóðmissir meðan á aðgerð stóð
var áætlaður 1000 ml. og var sjúklingnum
gefið sama magn af blóði. Tveim kerum
(drains) var komið fyrir í brjóstholi áður
en lokað var. Uppskurðurinn tók alls 4
klst. og 25 mín.
Fyrsta sólarhringinn komu 300 ml. af
blóðugum vökva út um kera, en vökvi fór
síðan dagminnkandi og voru kerar fjar-
lægðir á 4. og 5. degi. Blóðþrýstingur lækk-
aði smám saman og var orðinn eðlilegur
þegar sjúklingurinn fluttist af gjörgæzlu-
deild þann 26.7. Sjúklingurinn útskrifaðist,
af spítalanum á 14. degi eftir uppskurð.
Við útskrift var blóðþrýstingur 130/80
og púlsar í fótum voru af 4. gráðu (4/4).
Blásturshljóð mátti enn greina yfir hjart-
anu (precordium) en var ekki talið hafa
þýðingu. Hjartamynd á 13. degi eftir upp-
skurð sýndi að hjartað 'hafði minnkað og
línurit hafði færzt í eðlilegra horf. Skoðun
og rannsóknir voru óbreyttar bæði þrernur
mánuðum (mynd 3) og einu ári eftir út-
skrift og mældist hjartarúmmál nú aðeins
440 ml./m-.
Líðan var síðan góð þar til 5V2 ári eftir
A
uppskurð, en þá var hann tekinn í rann-
sókn þar sem hann var farinn að finna
töluvert fyrir þungum og hægum hjart-
slætti, einkum á kvöldin. Við skoðun var
óhljóð óbreytt. Púls var mjög hægur eða
um 40/mín. og með nokkurri óreglu. Blóð-
þrýstingur í báðum handleggjum og gang-
limum var 135/65. Púlsar voru ágætir í
ganglimum sem fyrr. Hjartað, þ.e. vinstri
slegill, hafði stækkað verulega aftur sam-
kvæmt röntgenmyndum. Línurit sýndi
mikla óreglu (sinus arrest cum inodal
escape). Gerð var vinstri hjartaþræðing
sem var eðlileg. Enginn þrýstingsmunur
var fyrir ofan og neðan æðatengslin þar
sem ósæðarþrengslin höfðu verið. Æða-
mynd (aortography) sýndi góð æðatengsl
með góðu rennsli. Niðurstaða var sú að
ágætur árangur hefði orðið af ósæðarað-
gerðinni, en sjúklingur hefði leiðslutrufl-
un og sennilega eitthvað skemmdan leiðslu-
hnút (sinus node). Hjartað var talið hafa
stækkað aftur vegna 'hægs sláttar (brady-
cardia). Meðferð var ekki álitin nauðsyn-
leg, enda sjúklingur einkennalítill.
2. 10 ára drengur var lagður inn á
Borgarspítalann þann 18.6 1972 til aðgerð-
ar vegna ósæðarþrengsla. Sjúkdómurinn
B
Mynd 3. — A. Mynd tekin fyrir uppskurðhjá fyrsta sjúklingnum. Hjartað er stækkað
og mældist rúmmál þess 580 ml./m2. Átur sjást úr rifjum. B. Mynd tekin 3 mánuðum
eftir uppskurð. Hjartað hefur minnkað og rúmmál þess mælist nú 440 ml./m2 líkams-
yfirborðs.