Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.07.1978, Page 15

Læknablaðið - 01.07.1978, Page 15
LÆKNABLAÐIÐ 115 Hrafnkell Helgason* MEÐFERÐ BERKLAVEIKI INNGANGUR Hér verður skýrt frá árangri af lyfja- meðferð við berklaveiki á Vífilsstaðaspítala árin 1972—1976. Þetta 5 ára tímabil er val- ið vegna þess, að árið 1972 var berklameð- ferð breytt. Fyrir þann tíma var venjuleg lyfjagjöf Streptomycin (SM), Paraamino- salicylsýra (PAS) og Isoniazid (INH), en frá árinu 1972 hefur Ethambutol (EMB) verið notað í stað PAS. Að vísu hafði bæði EMB og Rifampicin (RMP) verið notuð með góðum árangri hjá sjúklingum með langvarandi berklaveiki. Þeir sjúklingar höfðu dvalið árum saman á berklahælum og voru stöðugt með berklasýkla í hráka við smásjárskoðun og sýklar þessir voru ónæmir fyrir SM, PAS og INH. Með EMB og RMP tókst að gera alla þessa sjúklinga neikvæða í ræktun og hefur svo haldist síðan. PAS hefur óþægilegar aukaverkanir, sérlega frá meltingarvegum, auk þess sem sjúklingar þurfa að taka allt að 24 töflur á dag af þessu lyfi. Það hefur lengi verið vitað, að stór hluti þessara sjúklinga hættir að taka lyfið að lokinni útskrift frá sjúkra- húsi og Maddock-5 sýndi fram á það þegar árið 1967, að næstum helmingur sjúklinga hættir við lyfið eftir heimferð. Wiant41 fann aftur á móti, að hjá 143 göngudeild- arsjúklingum, sem voru á EMB-gjöf þá fundust einkenni um EMB notkun í 85% af þvagrannsóknum. EMB var tekið fram yfir RMP fyrst og fremst af kostnaðar- ástæðum, en árið 1973 var það mjög á reiki, hvort lyfið menn vildu heldur nota. Þetta ár kostaði dagskammtur af RMP 260—340 krónur en samsvarandi kostnaður fyrir EMB var 70—115 krónur. (Ólafur E. Ólafsson, lyfjafræðingur).29 Þar eð ætlun- in var, að sjúklingar tækju lyfin í 2 ár var ljóst, að þarna var um mikinn kostnaðar- * Vífilsstaðaspítala. Greinin barst ritstjórn 6/3 1978. mun að ræða. Nokkuð skorti á, að þessi lyfjameðferð uppfyllti ströngustu skilyrði á þeim tíma. Ekki var hægt að fá gert næmispróf á berklasýklum fyrir RMP eða EMB hérlendis. Lítið var vitað um ónæmi (primer resistence) hjá berklasýklum gegn þessum lyfjum. Hitt var vitað, að naum- ast mundi nokkur þessara sjúklinga hafa fengið þessi lyf áður. Því var samið við sýkladeild erlendis, að þangað mætti senda sýkla í næmispróf, ef ástæða þætti til, en til þess hefur ekki komið. Önnur breyting árið 1972 var sú, að eftirlit meðferðar að lokinni sjúkrahúsdvöl var flutt frá berkla- varnardeild Heilsuverndarstöðvar Reykja- víkur til Vífilsstaðaspítala. Eðlilegra þótti, að þeir læknar, sem fylgst höfðu með með- ferð sjúklings héldu henni áfram. Á þann hátt skapaðist nánara samband milli sjúk- lings og læknis og auðveldara var að gera sér grein fyrir, hvaða einstaklingar væru líklegir til að vanrækja lyfjatöku og herða eftirlit með þeim. Öll gögn varðandi þessa sjúklinga voru og til staðar á göngudeild- inni. Ástæða þykir til að minna á, að berkla- veiki er ekki fágætur sjúkdómur. Nýir sjúklingar voru um 20 á ári og ekki eru allir berklasjúklingar vistaðir á Vífilsstaða- spítala. Berklar eru vissulega ekki lengur neitt þjóðfélagslegt vandamál, hitt hlýtur aftur á móti að valda nokkrum óróa, að læknar virðast hafa gleymt þessum sjúk- dómi og alveg sérstaklega, ef um er að ræða berkla í öðrum líffærum en lungum. Sjúklingur gekk í 6 ár með útferð frá ígerð í bringubeini án þess að nokkrum lækni dytti í hug berklaveiki. Eins og hjá öðrum þjóðum hlýtur umsjá með berklasjúkling- um fljótlega að flytjast frá sérfræðingum til almennra lækna. Berklasjúklingar hafa svo lengi verið stundaðir á sérstökum stofn- unum, að það er eðlilegt, að almennum læknum sé lítt kunn meðferð sjúkdómsins.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.