Læknablaðið - 01.07.1978, Síða 61
LÆKNABLAÐIÐ
139
Forearm (Veniral)
Forearm (Dorsal)
Foot Arch (Plantar)
Ankle (Lateral)
Palm
Back
Scalp
Axilla
Forehead
Jaw Angle
Scromm
effect of anatomic region
Figure 1. Regional variation in the percutaneous penetration of hydrocortisone in man. A dose of 4
micrograms per cm2 was applied to each anatomic site and urinary recovery of hydrocortisone and its
metabolites quantitated The data relate to penetration on the forearm which is approximately 1 per
cent of the applied dose. (From Feldmann, R. & Maibach, HcJ. Invest. Derm. 48:181, 1967).
legur munur er á frásogun hydrokortisons
eftir líkamssvæðum sem meðhöndluð eru
(Mynd 1). Skýring á þessum mikla mun
er mönnum ekki alveg ljós, en talið er að
mismunandi blóðflæði, þykkt húðarinnar
t.d. á hæl og augnloki, og rakainnihald
húðarinnar á viðkomandi stöðum geti skýrt
þetta að hluta.25 Áberandi er, að einmitt á
gegndræpustu svæðunum eru aukaverkan-
irnar algengastar.
AUKAVERKANIR
Eins og skýrt var frá í upphafi, hefur
notkun kröftugra húðstera á síðustu árum
leitt til aukinnar tíðni aukaverkana. Tafla
II sýnir algengustu aukaverkanir sem vert
er að hafa í huga og mun nú vikið nánar
að þeim.
Algengast er að sjá aukaverkanir á húð-
inni sjálfri, og ber þar mest á HÚÐRÝRN-
UN (atrophia). Húðin verður þunn og
gegnsæ, svo að æðarnar verða áberandi.
Þessar breytingar hverfa venjulega nokkr-
um mánuðum eftir að meðferð lýkur.8 18 Á
svæðum eins og í nárum, ytri kynfærum,
handarkrikum og annars staðar þar sem
gegndræpið er mikið, er meiri hætta á
Tafla II. Algengustu, aukaverkanir við langvarandi
notkun húðstera.
Fráhúð: Húðrýrnun (atrophia)
Húðrákir (striae distensae)
Æðagúlar (telangiectsiae)
Ofanísýking (superinfectio)
Hulin sýking (masking)
Tinea incognito
Andlitseinkenni
„Steroid rosacea“
„Perioral dermatitis“
„Rosacea like dermatitis“
Acne
Hypertrichosis
Truflun á starfsemi undirstúku (hypot.halamus) —
heiladinguls og nýrnahettubarkar.
Cushing’s einkenni.
Rebound Phenomenon.
bandvefsskemmdum. Við það geta komið
fram HÚÐRÁKIR (striae distensae). Slík-
ar breytingar skilja eftir sig varanleg ör,
eins og við striae gravidarum.8 Á öðrum
stöðum þar sem bandvefur rýrnar af völd-
um þessarar meðferðar, sérstaklega í and-
liti, hálsi og niður á brjóst, koma fyrir
ÆÐAGÚLAR (telangiectasiae). Þessir gúl-
ar, þ.e. rauðar rákir vegna útvíkkunar smá-
æða, geta komið eftir nokkurra vikna með-