Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Síða 30
föstudagur 16. febrúar 200730 Sport DV Öll spjót stóðu á Alan Curbis- hley um síðustu helgi þegar liðið tapaði fyrir Watford. Fregnir ber- ast nú frá austurhluta London um að Curbishley neiti að borða með leikmönnum sínum, hann vilji að allir æfi aukalega og samband hans við Eggert Magnússon hangi á blá- þræði. Anton Ferdinand átti sök að máli með því að brjóta á Darius Hend- erson innan teigs og Watford fór því með þrjú stig frá Upton Park. Cur- bishley tók hina þekktu hárþurrk- umeðferð á hinn 21 árs Ferdinand. Var það væntanlega það síðasta sem Ferdinand þurfti með en Cur- bishley fór ekki leynt með þá skoð- un sína að hann þyrfti nýja varn- armenn í janúarglugganum. Hann fékk tvo, þá Lukas Neil og Matthew Upson, sem eru hæstlaunuðustu liðsmennirnir við litla hrifningu annarra leikmanna sem telja sig al- veg jafngóða, ef ekki betri. Julian Dicks sem er dýrkaður og dáður hjá stuðningsmönnum West Ham sagði í vikunni að hugsanlega hafi verið mistök hjá Eggerti Magn- ússyni að losa sig við Alan Pardew. „Kannski losaði herra Magnússon sig við Alan Pardew of snemma. Við þurfum á sigrum að halda, en þessa stundina er engin trú, enginn andi og engin barátta í liðinu. Ég sá eng- an leiðtoga inni á vellinum á móti Watford, aðdáendur liðsins þurfa að hafa trú á að West Ham geti bjargað sér frá falli. Þessa stundina er það erfitt,“ sagði þessi fyrverandi varnarjaxl og þegar hann talar þá hlusta aðdáendur West Ham. Opinberlega hafa leikmenn sagt að þeir séu tilbúnir að gera hvað sem er til að bjarga West Ham frá falli, sem myndi kosta félagið ekki minna en tvo og hálfan milljarð í töpuðum sjónvarpstekjum, en á bak við tjöldin er vaxandi ólga inn- an leikmannahópsins vegna að- ferða Alans Curbishley. benni@dv.is KanchelsKis leggur sKóna á hilluna andrei Kanchelskis, fyrrverandi leikmaður Manchester united, er hættur að leika knattspyrnu, 38 ára að aldri. Kanchelskis var tvisvar í liði Manchester united sem vann ensku úrvalsdeildina og einu sinni enska bik- arinn. Kanchelskis hefur víða komið við á ferlinum en síðasta liðið sem hann lék með var Krylya sovetov í rússlandi. ranieri teKur við Parma Ítalska knattspyrnuliðið Parma hefur ráðið Claudio ranieri, fyrrverandi þjálfara Chelsea, sem þjálfara liðsins. Parma er í næstneðsta sæti ítölsku deildarinnar. ranieri er 54 ára gamall og þjálfaði síðast lið Valencia en var sagt upp störfum þar í febrúar árið 2005. schumacher næsti fram- Kvæmdastjóri ferrari? samkvæmt þýskum fjölmiðlum er Michael schumacher í viðræðum við ferrari um að gerast framkvæmdastjóri formúlu 1 liðsins. schumacher vann sjö heimsmeistaratitla á ferli sínum sem ökumaður. Þrátt fyrir að vera hættur að keyra fylgist schumacher náið með gangi mála hjá ferrari. Hann fær allar upplýsingar um gengi á æfingum liðsins sendar heim til sín og mun fara með liðinu í æfingabúðir í Melbourne í Ástralíu í næsta mánuði. robinho óánægður hjá real madrid brasilíski sóknarmaðurinn robinho hefur gefið í skyn að hann muni yfirgefa herbúðir real Madrid í sumar ef hann fær ekki fleiri tækifæri með liðinu. „eins og er þá er ég óánægður af því að ég fæ lítið að spila. Ég hef setið mikið á bekknum eftir að Capello tók við. Og ef ekkert breytist mun ég þurfa að skoða hvað er best fyrir mig,“ sagði robinho. figo enn á báðum áttum Mikil rekistefna hefur verið um framtíð Luis figo, leikmanns Inter Milan. figo sagði nýverið að enn væri óvíst hvort hann færi til al Ittihad í sumar. figo hefur þegar lagt landsliðsskóna á hilluna og segir að yfirstandandi tímabil sé hans síðasta í hæsta gæðaflokki. samningur hans við Inter Milan rennur út í sumar. hoeness eKKi hrifinn af victoriu uli Hoeness, framkvæmda- stjóri bayern München, er ekki par hrifinn af Victoriu beckham og segir að fólk eins og hún sé að eyðileggja fótboltann. „Ég kann vel við david beckham en ekki konuna hans. Manneskjur eins og hún eru að eyðileggja fótboltann. Það er synd að david beckham sé að fara til Hollywood,“ sagði Hoeness og kennir Victoriu um brotthvarf davids beckham frá real Madrid. ÍÞRÓTTAMOLAR sveinn elías elíasson er einn efnilegasti frjálsíþrótta- maður landsins. Á Meistara- móti Íslands bætti hann tvö Íslandsmet í hlaupagreinum og þrátt fyrir ungan aldur er Sveinn Elías kominn í fremstu röð frjálsíþrótta hér á landi. Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum fór fram í frjálsíþróttahöll- inni í Laugardal um síðustu helgi. Mörg met féllu en mesta athygli vakti árangur Sveins Elíasar Elíassonar. Sveinn Elías er 17 ára gamall og keppir fyrir hönd Fjölnis í Grafarvogi. Hann setti Íslandsmet í sex aldurs- flokkum í 200 og 400 metra hlaupum auk þess að vinna til gullverðlauna í 60 metra hlaupi. Sveinn Elías keppti einnig í langstökki, stangarstökki og 60 metra grindahlaupi þar sem hann bætti við sig silfurverðlaunum í stangarstökki. Eins og algengt er á þessum aldri er Sveinn Elías ekki farinn að sér- hæfa sig í neinni grein. „Eins og staðan er í dag eru 200 og 400 metra hlaup mínar helstu greinar. Ég stefni samt á tugþraut í framtíðinni en ég er að keppa í fullt af greinum fyrir utan þrautina,“ sagði Sveinn Elías. Frjálsíþróttaárið er rétt að byrja og það er nóg fram undan á þessu ári hjá Sveini Elíasi. „Bikarkeppnin er fram undan. Einnig er mót í fimm- þraut á næstunni. Ég stefni á að fara á EM 19 ára og yngri í sumar og Norð- urlandamótið sem er í september. Svo eru smáþjóðaleikarnir á þessu ári. Það getur svo vel verið að ég taki þátt í einhverjum fleiri mótum fyrir utan þessi,“ sagði Sveinn Elías. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Sveinn Elías gert töluvert af því að keppa á erlendri grund. „Ég keppti á HM 17 ára og yngri árið 2005, þá var ég 16 ára. Síðan hef ég farið á borgar- leika í Bandaríkjunum og tekið þátt í nokkrum Norðurlandamótum.“ stefnir á nám í bandaríkjunum Sveinn Elías stundar nám í nátt- úrufræði við Borgarholtsskóla. „Stefnan hjá mér er að fara til Banda- ríkjanna á skólastyrk eftir framhalds- skólann og læra sjúkraþjálfun. Ég hef stefnt að því frekar lengi,“ sagði Sveinn Elías. En hann er þó ekki far- inn að skoða skóla að svo stöddu. „Stefnan er að minnsta kosti sett á Bandaríkin. Það er samt ekkert ákveðið neitt lengra en það.“ Sveinn Elías hefur sett sér skýr og háleit markmið fyrir framtíðina. „Markmið mitt er að fara á Ólymp- íuleikana í London árið 2012. Einn- ig stefni ég á að keppa á heimsmeistaramótum í framtíðinni. Langtímamarkmið- ið er samt sett á ólympíuleikana og að komast í topp 10,“ sagði Sveinn Elías en hann hefur aldrei æft aðra íþrótt en frjálsar. „Ég var samt aðallega langhlaup- ari þegar ég var 10 til 14 ára. Þá hljóp ég ekkert styttra en þrjá kílómetra. Það breyttist síðan þegar ég hand- leggsbrotnaði í langstökki á sínum tíma. Eftir það fór ég að æfa kraft- greinar meira, stökk og spretthlaup. Að vísu er keppt í 1.500 metra hlaupi í tugþraut en ég er alveg hætt- ur að keppa í langhlaupum. Eftir að hafa verið í langhlaupum áður þá er ég með ágætt grunnþol. Það kemur sér vel í 1.500 metra hlaupi,“ sagði Sveinn Elías. En hvað varð til þess að hann hóf að æfa frjálsar íþróttir? „Jónína Ómarsdóttir, dóttir Ómars Ragnarssonar, var að þjálfa hjá Fjölni þegar ég byrjaði að keppa í langhlaupum. Ég kynntist henni vel. Hún hélt mér í þessu og kveikti áhug- ann hjá mér.“ meiri áhugi hjá krökkum á frjálsum Fjölnir og Ármann æfa og keppa undir sama merki í meistaraflokki og Sveinn Elías sagði að góður andi ríkti innan hópsins. „Mér finnst þetta vera mjög góður hópur sem ég er að æfa með. Mjög skemmtilegt að vera í kringum hann og það eru allir að æfa vel.“ Frjálsíþróttahöllin í Laugardal hefur verið sannkölluð bylting fyr- ir frjálsar íþróttir hér á landi. Í dag getur frjálsíþróttafólk á höfuðborg- arsvæðinu æft við toppaðstæður og það hefur sýnt sig í árangri síðustu misseri. „Áður en þetta hús var reist hafði ég tvisvar eða þrisvar farið út og keppt í svona húsi. Eftir að þetta hús kom er ég nánast hættur að keppa í útlöndum á innanhústímabilinu. Hér er aðstaðan komin sem ég var að leitast eftir á þeim tíma. Núna eru að koma upp 13 og 14 ára krakkar sem eru að bæta sig mjög mikið fyrst og fremst út af þessari að- stöðu. Þetta hús vekur miklu meiri áhuga hjá krökkum á frjálsum. Krakk- ar eru að æfa vel og það eru marg- ir sterkir frjáls- íþróttamenn að koma upp úr yngri flokkum,“ sagði Sveinn Elías og bætti við að hann hafi sjálf- ur bætt sig töluvert með tilkomu frjálsíþróttahall- arinnar í Laugardal. „Ég finn talsverðan mun á mér í innanhúsgreinum. Það er eingöngu 200 metra hlaupahringur innan- húss en 400 metra hringur utanhúss, þannig að það nást alltaf lélegri tímar innanhúss. Maður er í krappri beygju og nær ekki eins miklum hraða. Ég æfi hér og í lyftingaklefanum hérna flesta daga vikunnar,“ sagði Sveinn Elías að lokum. dagur@dv.is Stefnir á Hvað er að gerast á Upton Park? Sagt er að alan curbishley nýr stjóri West Ham ráði ekki við álagið sem fylgir fallbaráttu. gömul hetja Julian dicks er dýrkaður og dáður á upton Park. ólympíuleikana árið 2012 efnilegur íþróttamaður sveinn elías setti sex aldursflokkamet í 200 og 400 metra hlaupum um síðustu helgi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.