Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Qupperneq 38
föstudagur 16. febrúar 200738 Helgarblað DV H erdís Þorvalds- dóttir leikkona hefur alltaf haft mikinn áhuga á umhverfismál- um, en kannski aldrei eins mik- inn og nú. Hana dreymir um að gerð verði heimildarmynd um sauðkind- ina og telur engan stjórnmálaflokk þora að takast á við það vandamál sem hún kallar „rányrkjubúskap“ og biður landsfeður um að vakna áður en það verður um seinan. „Við erum öðrum þjóðum víti til varnaðar í umhverfismálum,“ er eitt af því fyrsta sem hún segir eftir að við höfum komið okkur fyrir við borð- stofuborðið á listrænu heimili hennar vestur á Dunhaga. Hér hefur Herdís Þorvaldsdóttir leikkona búið um ára- tugaskeið og heimili hennar er eins og hún sjálf, glæsilegt. Hún hefur fallist á að segja mér af ævi sinni; af hjónabandi sínu og Gunnlaugs Þórðarsonar hæstaréttar- lögmanns, sem kom mikið við sögu í Bjargs- og Breiðuvíkurmálunum – en það eru umhverfismálin sem brenna mest á henni og að hennar mati eru áhrif álvera smámál. „Við eigum heiðurinn af því að hafa komið okkur upp stærstu manngerðu eyðimörk í heimi, en höldum samt áfram að stunda rányrkju á nærri ör- foka landi,“ segir hún. „Landgræðslan rembist við viðgerðir en hefur hvergi undan eyðingaröflunum. Áhrif álvera á umhverfi okkar er bara smámál á móts við vanda af gróðureyðingu og uppblæstri á landinu öllu. Koltvísýr- ingur sem fer upp í andrúmsloftið úr uppgröfnum mýrum og illa grónu og skemmdu landi er meiri en allur skipaflotinn okkar framleiðir. Á þetta er aldrei minnst þegar talað er um mengun. Hvers vegna ekki?“ Föðurmissir Við ákveðum að ræða líf hennar áður en við höldum áfram að ræða umhverfismálin. „Ég átti yndislega æsku í Hafnar- firði í fjögurra systkina hópi,“ segir hún. „Litla húsið okkar stóð við enda skrúðgarðsins Hellisgerðis, sem þá þegar var orðið mikið ævintýraland á sumrin. Pabbi átti bóka- og matvöru- verslun í bænum. Mér er minnisstætt þegar hann fór með okkur systurnar í sparifötunum í gönguferðir á sunnu- dagsmorgnum á meðan mamma eldaði sunnudagssteikina. Oft var farið niður á bryggju og kíkt á milli rifanna á bryggjuplönkunum eða skipin skoðuð. Pabbi hafði keypt fal- legt hús sem stóð undir Hamrinum. Þar voru klettar og lautir ásamt út- sýni yfir höfnina. Þangað fluttum við að vori. Einn dag um haustið þegar ég var níu ára veiktist pabbi hastarlega. Það reyndist vera botnlangabólga. Líklega hefur botnlanginn sprung- ið og eftir mislukkaða aðgerð fékk hann lífhimnubólgu og dó, aðeins 37 ára að aldri. Þetta var skömmu áður en fúkkalyfin komu til sögunn- ar. Mömmu tókst með miklum dugn- aði og með hjálp góðs verslunarstjóra að halda versluninni gangandi þó að þetta væru mikil kreppuár og fátækt mikil. Ég fór síðan í Flensborgarskól- ann og lauk prófi þaðan árið 1940. Þótt söknuðurinn eftir pabba væri sár var þó ýmislegt sem gladdi þessi ár, góðar skíðabrekkur rétt við bæinn og skautasvell á læknum. Þá léku börn sér mikið úti í alls konar leikjum,“ bætir hún við brosandi, enda kannski þörf á að minna á að einu sinni var sú tíð að hvorki var sjónvarp né tölva sem börn eyddu tímanum við! „Við fórum líka stundum í bíóferð- ir á sunnudögum en á unglingsárun- um var aðalánægjan að fara í bæinn á kvöldin með vinum og ganga fram og aftur, eins og á rúntinum í Reykjavík, annað var ekki í boði. Engar félags- miðstöðvar eða skemmtanir nema dansæfingar í skólanum af og til. Samt var lífið spennandi, óráðin æv- intýri fram undan.“ Níu ára á leiksviði Það er greinilegt að minningar liðins tíma ylja Herdísi og hún minn- ist stundanna í Góðtemplarahúsinu, Gúttó. „Rétt hjá húsinu okkar undir Hamrinum stóð gamla góðtemplara- húsið, alltaf kallað Gúttó. Þar starf- aði barnastúkan Kærleiksbarnið á sunnudagsmorgnum. Börn voru ekki farin að drekka á þessum árum, en starfið snerist um að við lofuðum að reykja ekki og svo auðvitað um góða hegðun. Stundum voru sett upp smá- leikrit eftir fundi, en þá tóku nokkrir úr hópnum sig til og æfðu og sýndu á sviðinu. Þetta gerði mikla lukku og jók aðsókn á fundina. Mér þótti þetta óskaplega spennandi og fékk tvo krakka til að æfa með mér smáþátt sem ég fann í barnabókinni Sólskin. Vandinn var bara sá að í þættinum voru tveir strákar, svo ég varð að leika strák, en átti engan stóra bróður svo ég varð að fá lánaðar buxur hjá strák úr hópnum,“ segir hún hlæjandi. „Þetta var mitt fyrsta hlutverk á sviði og eftir það var áhuginn vaknaður og ég fór seinna að vinna með Leikfé- lagi Hafnarfjarðar.“ Herdísi gafst tækifæri til að leika smáhlutverk með Leikfélagi Reykja- víkur þegar hún var sautján ára. „Það var í óperettu sem hét Fröken Nitouche. Þar var bæði dans og söngur og sýningin vakti mikla lukku. Það var meira að segja farið með sýninguna og hljómsveitina norður í land og það var fyrsta heimsókn mín til Akureyrar. Eft- ir þetta fór ég í tíma í framsögu til Har- aldar Björnssonar leikara og leikstjóra og síðan í leikskóla Lárusar Pálssonar, sem stofnaði fyrsta leikskóla lands- ins. Fljótlega fór ég að fá hlutverk hjá Leikfélaginu en ákvað síðan að fara til London í leiklistarskóla og fékk inn- göngu í Royal Academy of Dramatic Art. Þetta var árið 1945, rétt eftir að stríðinu lauk og borgin í hörmulegu ástandi eftir allar loftárásirnar. Þetta var dýrmæt reynsla eftir einangrun stríðsáranna hérna heima. Ekki lauk ég þó námi frá skólanum þar sem ég var nýgift og eiginmanninum, Gunn- laugi Þórðarsyni, sem hafði líka ætl- að til Englands í nám, bauðst staða fyrsta forsetaritara heima og það var of freistandi tilboð. Ég fór því heim fyrr en ég hafði ætlað. Ég fór strax eftir heimkomuna að vinna með Leikfélagi Reykjavíkur, en þegar Þjóðleikhús- ið tók til starfa árið 1950 var ég ráðin þar með fyrsta atvinnuleikhópnum á Íslandi. Við Róbert Arnfinnsson, sem vorum yngst þá, erum orðin elst í dag og enginn annar á lífi af þeim sextán manna hópi.“ Leikarar hlýddu umorðalaust Þegar ég spyr hana hvort hún hafi einhvern tíma verið ósátt við hlutverk sem henni var fengið og hvort leikarar hennar tíma hafi tjáð sig um óánægju, líkt og nú þekkist, svarar hún: „Fastráðningu fylgir sú krafa að þú þarft að taka að þér þau hlutverk sem leikhúsið ákveður. Það segir sig sjálft að það eru ekki alltaf óskahlutverk og minni ánægja af að vinna þau en þó sérstaklega ef manni finnst leik- ritið ómerkilegt og varla fyrirhafnar- innar virði að leggja í það mikla fjár- muni eða vinnu. En oft er það svo að maður lærir meira af erfiðum hlut- verkum en þeim sem maður smellur í og þarf lítið að hafa fyrir. Verstu til- fellin á æfingatímanum fundust mér vera ef leikstjórinn lagði aðra merk- ingu í persónuna en ég sjálf og vildi að ég gerði eitthvað sem mér fannst ekki rétt. Stundum ræddum við mál- in og ef það gekk ekki var eina ráðið að fara bil beggja eins og hægt var. Ég held að fyrstu árin hafi menn meira hlýtt umorðalaust, en ef til vill nöldr- að baksviðs sín á milli. Tímarnir hafa breyst mikið og í dag er allt opnara og fólki finnst sjálfsagt að segja hug sinn og ræða málin opinskátt.“ Dóttirin kom of vel út úr félagslegri könnun! Eiginmaður Herdísar var Gunn- laugur heitinn Þórðarson og hún segir afar skemmtilega frá því hvernig hún samræmdi hjónaband, barnaupp- eldi, húsmóðurstörf og starf leikkon- unnar. „Á þessum tíma þurftu konur sem unnu úti, eins og kallað var, eða vildu Erum okkareigin skaparar „Gunnlaugur kenndi mér að meta klassíska tónlist og mynd- list sem hann hafði mikinn áhuga á og fyllti heimilið af lista- verkum. Ég kenndi honum aftur á móti að meta leiklist og ljóðlist. Mér þótti alltaf mjög vænt um hann og við urðum betri vinir en nokkru sinni eftir að við slitum hjónabandinu.“ Glæsileg og veit hvað hún vill „Ég bið landsfeður um að vakna áður en það verður um seinan og ég bið fólk um að kjósa þann flokk sem lofar að vernda þann náttúrulega gróður sem eftir er og koma hér á ræktunarbúskap með búfé í girðingum svo við verðum ekki að athlægi fyrir að láta éta undan okkur landið.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.