Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Qupperneq 44
skipta hungangsskinkunni út fyrir
hráskinku og furuhnetur.
Lasagnaplöturnar eru vafðar saman og
settar í eldfast mót. Sósunni hellt yfir
og smá parmesan eða brauðosti stráð
yfir, jafnvel báðum tegundunum. Sett í
180°C heitan ofn í um það bil 15
mínútur, eða þar til osturinn hefur
bráðnað og er farinn að brúnast örlítið.
Borið fram með klettasalati með
ólífuolíu og balsamiksýrópi. Ristuðum
furuhnetum og parmesanosti stráð yfir.
föStudaguR 16. feBRúaR 200744 Helgarblað DV
Áslaug Hulda skorar á vinkonu sína Elínu
Maríu Björnsdóttur, verslunarstjóra hjá EGG og
fyrrverandi sjónvarpsstjörnu: „Þegar við Elín
María kynntumst notaði hún bara salt og kannski
pipar á laugardögum! Henni hefur farið mikið
fram í matargerðarlistinni og er eðalkokkur. Það
er bæði gott og skemmtilegt að fara í mat til
Elínar Maríu og ekki síður að bjóða henni og
eiginmanni hennar Hrafnkeli heim en hann er
svo jákvæður að honum finnst allur matur góður.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ráðgjafi
menntamálaráðherra og verðandi
kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins í
Suðvesturkjördæmi, tók áskorun vin-
konu sinnar Guðríðar Sigurðardóttur
um að vera matgæðingur DV.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
matargerð og hafði ákveðnar skoð-
anir á því sem unglingur hvernig
foreldrar mínir ættu að elda!“ seg-
ir Áslaug Hulda. „Ég nota mikið af
ferskum kryddjurtum og finnst gott
að maturinn rífi svolítið í. Það er mis-
jafnt hvaða krydd á upp á pallborð-
ið hverju sinni og þessa dagana nota
ég mikið af engifer, chilli og cayanne
enda gott til að losa um kvef. Strák-
arnir mínir, Bjarni Dagur, þriggja ára,
og Baldur Hrafn, eins árs, eru mikl-
ir matmenn, vanir að fá sterkan mat
og gretta sig ekkert þótt þeir fái eitt-
hvað sterkt með chilli og cayanne.
Mér finnst líka mjög skemmtilegt að
bjóða fólki í mat. Ég er svo heppin
að eiga góðan vinahóp og við búum
nánast öll á sama blettinum og erum
dugleg að hittast og borða saman.“
Þegar Áslaug Hulda var unglingur
kynnti hún pastarétti fyrir fjölskyld-
unni. Það var einkum amma hennar
og nafna sem heillaðist mest af þeirri
nýjung í matargerð á þeim tíma og
Áslaug Hulda segir hana enn hrifna
af pastaréttum.
„Amma er nú orðin 79 ára og ég
fer stundum til hennar og elda pasta
eða býð henni til mín,“ segir hún.
„Mér finnst eiginlega jafn gaman að
elda hversdagsmat og hátíðismat, en
nýjasta æðið í fínni matargerð er dá-
dýrasteik. Hins vegar ætla ég að gefa
hér uppskrift að dæmigerðum kjúkl-
ingarétti sem ég myndi gera á mánu-
degi handa fjölskyldunni.“
KjúKlingur í frábærri sósu
l 2 dósir niðursoðnir tómatar
l smá sykur – en það er ítölsk aðferð
sem ég lærði til að fjarlægja
dósabragð
l hvítlaukur, marinn, 2-3 geirar
l ferskur chillipipar, hálfur – heill fyrir
þá sem vilja sterkt!
l fersk basilíka, hnefafylli
l cayennepipar
l salt
l pipar
Sett í pott og látið malla. Ágætt að
bæta basilíkunni við undir lokin og
jafnvel smá kóríander.
Kjúklingabringur skornar í bita og
steiktar upp úr olíu. Kryddaðar með
salti, pipar, hvítlauk og einhverju af því
kryddi sem er í sósunni. Þegar
kjúklingurinn er gegnsteiktur eru
bitarnir lagðir ofan á fersk lasagna-
blöð. Þar ofan á er lögð hunangs-
skinka og ferskum mozzarellaosti
stráð yfir. getur líka verið gott að
Dv m
ynD GúnDi
l 2 gulrætur, hakkaðar smátt
l 1 laukur, hakkaður smátt
l 2 hvítlauksgeirar, hakkaðir smátt
l 2 þurrkaðir piri piri piparbelgir,
marðir í mortéli
l ólífuólía
l 1 glas hvítvín
l 4 stk. negull, marðir í mortéli
l 1 grein af steinselju
l 1 stilkur af basilíku með 2-3 stórum
blöðum
l 200 g hakkað svínakjöt
l 200 g hakkað kálfakjöt
l salt
l ½ glas vatn
l 700 ml góð tómatsósa (t.d. Passata
di pomodoro)
l 350 g tagliatellepasta
l parmesanostur
Steikið grænmeti og belgpipar á heitri
pönnu upp úr olíu í 3 mínútur. Bætið við
hvítvíni, negul, steinselju og basilíku og
látið sjóða í 2 mínútur. Losið kjötið í
sundur og setjið út á pönnuna. Hrærið
saman og saltið. Hellið vatni og
tómatsósunni útí og hrærið. Látið þetta
malla í u.þ.b. 40 mínútur (tómatsósan
verður súr ef hún er hituð við of háan
hita). Sjóðið pastað í söltu vatni. geymið
ögn af vatninu svo þið getið sett það út
í kjötsósuna ef hún er of þykk. Blandið
pastanu saman við sósuna og jafnvel
smá ólífuolíu. Stráið nýrifnum
parmesanosti yfir áður en þið berið
réttinn fram.
Kosningastjóri sem elskar kjúkling
„Nýjasta æðið í fínni matargerð er
reyndar dádýrasteik, en þennan rétt
myndi ég matreiða á mánudegi.
Tagliatelle
með kálfa- og svínahakki
umvafinn lasaGna
Bolludagurinn á mánudag
Bolludagurinn er á mánudaginn og má búast við því að kjöt-
eða fiskibollur verði á kvöldverðarborðum margra lands-
manna. Súkkulaðihúðaðar vatnsdeigsbollur eiga þó án efa
eftir að kæta ungu kynslóðina meira en gamli maturinn.
Bakarar hugsa sér gott til glóðarinnar, enda einn annasamasti
dagur ársins.
U m s j ó n : J a n u s S i g u r j ó n s s o n . N e t f a n g j a n u s @ d v . i s
&Matur vín
frá ástralíu, nánar tiltekið limestone Coast, kemur þessi flotti Chardonnay sem er ljósgulur á lit með grænum
tónum. ilmurinn minnir á þroskuð epli og suðræna ávexti. Vínið er meðalbragðmikið og ber hvað
mest á sítr- us og melónu, einnig vanillu og smá eikartónum.
Þetta er feitt og flott vín sem hentar vel með feitum fiski og rjómasósum, einnig með ljósu kjöti eins
og kjúklingi og grísakjöti.
Lucien Albrecht Pinot Gris
Reserva
Frá einu af ef ekki því besta hvítvínshéraði heims,
að mínu mati, Alsasce í Frakklandi, kemur þetta
frábæra vín. Það er gert úr þrúgunni Pinot Gris
sem er margslungin og hentar með alveg
ótrúlega fjölbreyttum mat. Ilmur þessa víns er
opinn og töluvert flókinnn með smá sætu og
suðrænum ávexti. Vínið er bragðmikið með mjúka
fyllingu, samt ferskt með þungan og þroskaðan
ávöxt, langt og gott eftirbragð.
Hér erum við sem sagt með kjörið matarvín sem
hentar til að mynda með fiskréttum ýmiss konar,
ljósu kjöti og austurlenskum mat.
Verð í vínbúðum ÁTVR: 1.540 kr.
McGuigan Estate Chard-
onnay
Frá Ástralíu, nánar tiltekið Limestone Coast,
kemur þessi flotti Chardonnay sem er
ljósgulur á lit með grænum tónum. Ilmurinn
minnir á þroskuð epli og suðræna ávexti.
Vínið er meðalbragðmikið og ber hvað mest
á sítrus og melónu, einnig vanillu og smá
eikartónum.
Þetta er feitt og flott vín sem hentar vel með
feitum fiski og rjómasósum, einnig með ljósu
kjöti eins og kjúklingi og grísakjöti.
Verð í vínbúðum ÁTVR: 1.390 kr.
Graham Beck Waterside
Chardonnay
Úr smiðju Graham Beck-fjölskyldunnar í
Suður-Afríku kemur þetta frískandi
hvítvín sem er í raun blanda tvegga
þrúga, 86& Chardonny 86% og
Colombard 14%. Vínið er ljósgult á lit
með fallega grænum tónum. Áberandi
sítrus og lime í ilm, einnig hvað það er
ferskt og opið. Þetta er algjörlega óeikað
vín sem gerir það mjög ferskt og
aðlaðandi. Vínið er með góða sýru,
sítrusávexti og melónu, langa og góða
endingu.
Þetta vín er kjörið með fiskréttum, ljósu
kjöti og jafnvel með krydduðum
austurlenskum mat.
Verð í vínbúðum ÁTVR: 1.290 kr.
Axel ó.
skrifar: axelo@visir.is
Kjúklingur
Veitingastaðir á netinu
Á vefsíðunni
veitingastadir.is
geta notendur
fundið upplýsing-
ar um alla
veitingastaði
landsins. Á
þessari sniðugu
vefsíðu er meðal
annars er hægt að
flokka veitingastaðina niður eftir
matargerð, verði og póstnúmeri.
Vefurinn er hugsaður til þess að
auðvelda fólki að finna veitingahús við
sitt hæfi, án þess að þurfa að þramma
um götur borga og bæja.
Áslaug Hulda Jónsdóttir: Matgæðingurinn
Bronssilfurgull