Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Qupperneq 47

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Qupperneq 47
DV Helgarblað föstudagur 16. febrúar 2007 47 Sakamál Baldwin bíður dóms fyrir bílþjófnað Réttarhöldum yfir leikaranum Daniel Baldwin var enn frestað í vikunni þar sem hann lét ekki sjá sig. Daniel hefur þráfaldlega komist í kast við lögin en nú er hann ákærður fyrir þjófnað á bíl vinar síns og vörslu þýfis. Baldwin var handtekinn í nóvember á stolnum bíl en sleppt gegn tryggingu. Daniel á yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi fyrir þjófnaðinn og má að auki búast við hárri sekt fyrir að koma ekki fyrir dóm. Drap fimm í verslunar- miðstöð Vopnaður maður hóf að skjóta úr byssu í bræðiskasti í versl- unarmiðstöð í Utah í Banda- ríkjunum á þriðjudag. Þegar skothríðinni lauk höfðu fimm viðskiptavinir orðið fyrir bana- skotum auk mannsins sjálfs. Ekki er vitað hvort hann féll fyrir eigin hendi eða hvort lög- reglan náði að skjóta hann. En lögreglan mætti fljótt á staðinn og hóf að sögn vitna mikla skot- árás í átt að manninum sem að lokum féll í barnafataverslun. Úrsmiður sem skaut úr byssu í verslun sinni í miðbæ Kaupmanna- hafnar þegar þrír menn gerðu tilraun til að ræna hann í síðasta mánuði hefur samþykkt að sitja í gæsluvarðhaldi í tvær vikur í viðbót án úrskurðar dómara. Samkvæmt fréttum danskra blaða heldur úrsmiðurinn því fram að hann hafi ekki skotið í átt að þjófunum heldur hafi skotin aðeins átt að fæla mennina á brott. En þjófarnir særðust af völdum skota og segja það hafa gerst þegar þeir flúðu verslunina. Tveir þjófanna náðust strax en sá þriðji gengur enn laus. Annar hinna handteknu hefur farið fram á milljónabætur vegna sára og andlegs álags vegna málsins. Þá vill hann að úrsmiðurinn bæti sér upp þann tekjumissi sem hann hefur orðið fyrir á þessum tíma. Lögreglan í Kaupmannahöfn hyggst sviðsetja ránið í versluninni á næstunni til að fá betri sýn á atburðarásina. Talið er líklegt að úrsmiðurinn verði ákærður fyrir tilraun til manndráps. Málið hefur vakið mikla athygli í Danmörku og telja dönsk götublöð að úrsmiðurinn hafi framið hetjudáð. Hann eigi því ekki að sitja á bak við lás og slá stundinni lengur. Skoðanakannanir benda hins vegar til þess að meirihluti þjóðarinnar telji að úrsmiðurinn hafi brugðist rangt við þegar hann greip til byssunnar. Einnig hefur því verið haldið fram að málið kunni að skapa hættulegt fordæmi því vopnaeign meðal innbrotsþjófa muni stóraukast. Gæsluvarðhald danska úrsmiðsins framlenGt Það var sunnudagsmorgunn og Willie Bosket, fimmtán ára, sat í neðanjarðarlestinni og beið eft- ir rétta fórnarlambinu til að ræna. Þetta yrði langt frá því fyrsta skiptið sem hann gerðist brotlegur við lög- in. Hann hafði stundað þessa iðju frá níu ára aldri. Aldrei fyrr hafði hann verið vopnaður en hann hafði nýlega keypt byssu af kærasta móð- ur sinnar. Sunnudagurinn leið og Willie beið rólegur í lestinni eftir tækifæri til að láta til skarar skríða. Það kom seinnipart dags þegar hann var einn í vagni, ásamt sofandi manni á miðj- um aldri. Willie gekk upp að farþeg- anum og sá að hann var með gullúr og sólgleraugu sem minntu Willie á vörð á unglingaheimili sem hann hafði eitt sinn verið settur á. Hon- um hafði alltaf verið illa við vörð- inn. Þegar Wille reyndi að ná úrinu af manninum, opnaði hann aug- un og í örvæntingu sinni tók Willie upp byssuna og skaut manninn í hægra augað. Við það stökk fórn- arlamb hans á fætur og reyndi að öskra á hjálp. Willie sá þann kost- inn vænstan að skjóta hann í bakið. Maðurinn féll niður. Hann var lát- inn. Willie tók af honum úrið, hring og tæmdi veski hans. Willie fór út á næstu stoppistöð án þess að nokkur tæki eftir honum. Í blöðunum kom fram að fórnarlambið var fjörutíu og fjögurra ára einbúi. Willie fannst sem líf sitt hefði öðlast tilgang með morðinu því loks væri hann orðinn sá grimmi maður sem hann hafði ætlað sér að verða. Nokkrum dögum síðar ákvað Willie að fara á stúfana á nýjan leik. Frændi hans var með honum í för. Þegar þeir komu að lestarstöð í ná- grenni við heimili sitt sáu þeir að einn lestarstjóranna hélt á útvarps- tæki. Drengirnir voru sannfærðir um að þeir gætu komið því fljótt og auðveldlega í verð. Þeir eltu mann- inn þar sem hann gekk í átt að lest- arvagni sínum. Þegar hann varð þeirra var, sneri hann sér við og sagði þeim að hypja sig. Willie sýndi ekki á sér fararsnið og sagði mann- inum að hann yrði að henda þeim út með valdi. Þegar lestarstjórinn nálgaðist drengina, tók Willie upp byssuna og skipaði manninum að afhenda þeim útvarpið og veskið sitt. Þegar maðurinn gerði sig ekki líklegan til að verða við þessum kröfum skaut Willie hann án þess þó að drepa hann. Frændurnir forð- uðu sér af vettvangi. Næstu daga á eftir fóru Willie og frændi hans um skjótandi og rænandi. Eitt sinn náði lögreglan þeim fyrir rán en tók ekki eftir byssunni sem Willie faldi í buxnaskálminni. Rannsóknarlögreglumaður sem hafði lestarmorðin á sinni könnu ákvað í framhaldinu að yfirheyra frændurna vegna ránsins. Lögregl- an hafði fyrst hendur í hári frænda Willies og laug að honum að Willie hefði sagt þeim frá öllu saman. Við það opnuðust allar flóðgáttir hjá frændanum. Hann sagði lögregl- unni frá þeim glæpum sem þeir höfðu framið saman og einnig hvað Willie hefði gert þar á undan. Willie var stuttu síðar handtekinn heima hjá móður sinni. Við réttarhöldin hunsaði Willie ráð lögmanns síns og játaði á sig alla þá glæpi sem hann var ákærður fyr- ir. Reynsla hans af að vera sakborn- ingur hafði kennt honum að þannig fengi hann vægari dóma. Hann átt- aði sig samt ekki á að nú voru glæp- irnir öllu alvarlegri. Þrátt fyrir það fékk Willie aðeins fimm ára fangels- isdóm og slapp út 21 árs gamall. Willie Bosket tók ungur þá ákvörðun að feta í fótspor föður síns og verða grimmur glæpamaður. Faðir Willies sat í fangelsi og gerði hvað hann gat til að telja syni sínum hughvarf. Willie lét það sem vind um eyru þjóta. Hann keypti byssu aðeins fimmt- án ára gamall og hélt á lestarstöð nærri heimili sínu til að finna fórnarlamb. Willie fann fórnarlambið, skaut það og upplifði stundina sem hann hafði beðið svo lengi eftir. Willie hafði drep- ið mann og fannst það ekkert tiltökumál. Engin vitni voru að voðaverkinu en Willie stærði sig af morðinu og sagði hverjum sem heyra vildi að loks væri hann orðinn sá grimmi glæpon sem hann dreymdi um að verða. Sýndi klám í kennslu- stund Julie Amero, fertugur af- leysingakennari í grunnskóla í smábæ á austurströnd Banda- ríkjanna, á yfir höfði sér allt að 40 ára fangelsi fyrir að hafa sýnt nemendum sínum klámfengnar ljósmyndir á tölvuskjá. Amero var sakfelld fyrir verknaðinn og bíður nú dóms. Hún hefur ávallt neitað sök og segist hafa mjög takmarkaða þekkingu á tölvum og enn minni á klámi. Verjend- ur hennar halda því fram að óæskileg forrit sem leynst geta á vefsíðum, hafi gert að verkum að klámfengnar myndir fóru að birtast á skjá tölvu hennar og við því hafi hún ekkert getað gert. Yfirvöld í Bandaríkjunum segja dreifingu kláms á netinu stöðugt vaxandi vandamál og hyggjast því taka hart á slíkum brotum. Fundarlaun fyrir fálkann Eigendur eins frægasta veitingahúss í San Francisco, John´s Grill, hafa boðið jafnvirði 1.700 þúsund króna hverjum þeim sem gefur upplýsingar sem leiða til þess að eftirlík- ing af Möltufálkanum finnst. Fálkinn er nákvæm eftirlíking af tveimur slíkum sem notaðir voru í samnefndri kvikmynd frá árinu 1941. Þar lék Humphrey Bogart aðalhlutverkið, spæjar- ann Sam Spade. Eftirlíkingunni af fálkanum var stolið úr læstum sýningarskáp á veitingahúsinu á dögunum og er lögregla engu nær um þjófnaðinn. Uppruna- legu Möltufálkarnir eru hins veg- ar vel geymdir í öryggishirslum á ótilgreindum stað. Lífið öðlaðist tilgang með morðinu Willie bosket fannst eftir morðið að hann væri loks orðinn sá grimmi maður sem hann ætlaði sér að verða. að vera grimmur gott
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.