Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Page 53

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2007, Page 53
DV Helgarblað föstudagur 16. febrúar 2007 53 “Við erum netfyrirtæki og höldum skrár yfir alla klámmyndaleikara og -leikkonur heims- ins,” segir Christina Bonga, talsmaður vefsíð- unnar freeones.com sem stendur fyrir sam- komunni SnowGathering. SnowGathering er sérstök tengsla-ráðstefna ætluð fyrirtækjum og einstaklingum sem tengjast klámiðnaðin- um. “Tilgangur ráðstefnunnar er að leiða sam- an fyrirtæki í bransanum og hjálpa þeim að mynda tengsl við dreifingaraðila, vefsíður og fleira,” segir Christina. Í ár verður ráðstefnan haldin á Íslandi, nánar tiltekið á Radisson SAS Hótel Sögu við Hagatorg og er von á allt að 175 manns. Ætluðu að halda ráðstefnuna í Austur- ríki Þetta er í annað skipti sem SnowGathering- ráðstefnan er haldin en í fyrra var hún í Austur- ríki. „Við ætluðum á sömu slóðir í ár, en hót- el í Austurríki voru öll uppbókuð, þess vegna enduðum við á Íslandi,“ segir Christina en fyr- irtækið setur þau skilyrði að snjór sé við hönd- ina og að umhverfið sé kuldalegt. Dagskrá ráð- stefnunnar er vel skipulögð. Til stendur að fara í Bláa lónið, á skíði, á strípiklúbb og að Geysi, svo eitthvað sé nefnt. Verð fyrir heildarpakk- ann er 1250 evrur, eða um 111 þúsund íslenskar krónur, en aðeins þeir sem hafa bein tengsl við klámfyrirtæki geta skráð sig. Þrjár klámmyndastjörnur „Það koma með okkur þrjár klámmynda- stjörnur sem sjá um kynningar og milligöngu milli aðila á hátíðinni,“ segir Christina. Þær klámstjörnur sem um ræðir eru Sandy Cage, Daisy Rock og Eve Angel. Segir Christina að í leiðinni verði teknir myndaþættir með stjörn- unum en hún efast um að eiginleg klámmynd verði tekin upp. „Það er svo erfitt að fá rétta fólkið í það alla leið til Íslands, en ég útiloka ekki neitt.“ Þeim sem vilja kynna sér Snow- Gathering-ráðstefnuna frekar er bent á heima- síðuna snowgathering.com. dori@dv.is Klámráðstefna í reyKjavíK Á leiðinni til landsins Þær daisy rock, eva angel og sandy Cage verða staddar á klakanum í byrjun mars. SnowGathering tengsla-ráðstefna ætluð athafnamönnum úr klámheiminum verður haldin á radisson sas í byrjun mars. “Við ætlum að minnast skemmti- staðarins Tetris sem var staðsettur í Fischersundi. Við ætlum til dæmis bara að spila rapptónlist frá árunum 1994 til 1998, annað fær ekki að vera með,” segir plötusnúðurinn Benedikt Freyr Jónsson, betur þekktur sem Dj B-Ruff eða Benni. Á laugardagskvöld- ið verður sérstakt Tetris-kvöld haldið hátíðlegt á Prikinu og spilar þar B- Ruff ásamt Quarashi-plötusnúðnum fyrrverandi Dj Dice. Segir Benni að staðurinn hafi átt mikinn þátt í upp- gangi hiphop-tónlistar á Íslandi fyr- ir áratug síðan. “Þarna spiluðu allir í fyrsta skipti, ég var á 16. ári þegar ég spilaði þarna fyrst og hafði þá aðeins spilað í félagsmiðstöðvum. Á Tetris voru bara aðalhiphop-djömmin fyrir svona tíu árum og það muna eflaust margir eftir þeim.” Staðurinn var al- ræmdur á sínum tíma. Sagt var að dyraverðir staðarins skeyttu lítið um aldur gesta og því gátu krakkar sem ekki höfðu aldur til laumað sér inn. Staðnum var lokað árið 1998. “Hvað get ég sagt? Þetta var djammstaður unga fólksins. Nokkurn veginn allir 16 ára og eldri fengu að vera þarna inni með sitt eigið áfengi í flösku. Þetta var eiginlega eins og í reif- partíi,” segir Benedikt að lokum. Þeir B-Ruff og Dice taka sér stöðu fyrir aftan plötuspilarana um miðnætti á Prikinu annað kvöld og verða veigar gefins, á meðan birgðir leyfa. Þeir Dj B-Ruff og Dj Dice byrjuðu báðir feril sinn á skemmtistaðnum Tetris: Skemmtistaðarins Tetris minnst á Prikinu Benedikt Freyr Jónsson spilaði í fyrsta skipti á skemmtistað árið 1996, þá aðeins 15 ára. úthverfin Dagana 7. til 11. mars verður ráðstefnan Snow- Gathering haldin á Hótel Sögu. Ráðstefnan er ætluð til þess að athafnamenn úr klámheiminum geti myndað tengsl sín á milli. Með í för verða þrjár þekktar klámstjörnur og munu þær sitja fyrir í myndaþáttum í íslenskri náttúru. Útgáfutónleikar á Amsterdam Íslenska rokkhljómsveitin Envy of Nona fagnar útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar með útgáfutón- leikum í kvöld á Kaffi Amsterdam. Það er frítt inn og verður einhver mjöður í boði svo lengi sem birgð- ir endast. Hljómsveitin Envy of Nona hefur verið starfandi í rúm- lega tvö ár, en aðeins í rúmt ár í núverandi mynd. Fyrsta breiðskífa hljómsveitarinnar ber heitið Two Years Birth, en það er vegna þess að tvö ár tók að fullklára plötuna. Platan verður fáanleg í öllum helstu hljómplötuverslunum á Ís- landi í byrjun mars. 1.000 manns búnir að kvitta undir Rétt rúmlega 1.000 manns hafa skrifað undir áskorun MORFÍS- ráðs til Ríkissjónvarpsins um að sýna frá úrslitakeppni MORF- ÍS. Undirskriftasöfnunin fór í gang fyrir tveimur vikum og að sögn formanns MORFÍS Brynj- ars Guðnasonar hefur hún gengið vel. Úrslit MORFÍS verða haldin í Háskólabíói þann 16. mars en þá mætir lið Menntaskólans við Hamrahlíð annað hvort Fjöl- brautaskólanum í Garðabæ eða Borgarholtsskóla. MH tryggði sér sæti í úrslitum með öruggum sigri á FB, en síðari undanúrslitavið- ureignin fer ekki fram fyrr en 22. febrúar. Útþrá fyrir ungt fólk Í dag, föstudag, er haldin ráð- stefnan Útþrá 2007. Á ráðstefn- unni er kynntur fjöldi spennandi tækifæra fyrir Íslendinga á aldrin- um 15 til 25 ára á erlendri grundu. Sextán einstaklingar og fyrirtæki kynna starfsemi sína og nám, störf, ferðir, sjálfboðaliðastörf og fleira sem þau bjóða upp á erlend- is. Ráðstefnan stendur frá kl. 16 til 18 og er haldin í Hinu húsinu, Pósthússtræti 3 til 5.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.