Fréttatíminn - 08.10.2010, Síða 40
Ný
tt
Ferskari lengur
Nýr Dove mýkjandi lyktareyðir sem dregur úr hárvexti.
Dove hair minimising svitalyktareyðir, inniheldur ¼ Dove
rakakrem sem verndar húðina og mýkir. Við reglubundna
notkun dregur úr hárvexti undir höndum, þökk sé hinni
einstöku Pro-Epil Complex formúlu sem inniheldur
náttúruleg efni, s.s. sojaprótein og sólblómaolíu.
Dove hair minimising hægir tímabundið á
frumuendurnýjun í hársekknum, þannig að
hárið verður mýkra og vex ekki eins hratt.
10 heilsutíminn Helgin 8.-10. október 2010
E inn hluti af því að breyta um lífsstíl er næringin. „Það er mikið í mataræði okkar
sem ekki er gott. Þess vegna
ákváðum við að leggja allt okkar í
það að bjóða fólki upp á góða nær-
ingu. Sjálf vinnum við allan okkar
mat frá grunni og notum aldrei
neitt sem er unnið eða tilbúið,“
segir Lukka og bætir við: „Það er
okkar meginmarkmið að fá fólk
til að huga meira að heilbrigðum
venjum með breyttum lífsstíl.“
Góð heilsa
fæst með
breyttum
lífsstíl
Unnur Guðrún Pálsdóttir, kölluð Lukka, er ein af eig-
endum Happ-veitingahúss og veisluþjónustu á Höfða-
torgi. Happ stendur fyrir Healthy and Pure prouducts
og snýst um að bæta heilbrigði Íslendinga.
Unnur Guðrún Pálsdóttir einblínir á heilbrigði. Ljósmynd/Hari
Hún telur hreina fæðu vera
lykilatriði og bendir jafnframt á að
ekki sé nauðsynlegt að „flokka“
sig í einhvern hóp. „Maður þarf
ekki að setja merkimiða á sjálfan
sig, þarf ekki að vera grænmet-
isæta eða eitthvað annað, heldur er
meginatriði að borða næringarrík-
an og hollan mat og hreina, óunna
og ómengaða fæðu.“
Lukka vill ekki einblína á það
neikvæða þegar hún er spurð út í
óhollustu og það sem henni fylgir.
„Við þurfum að einblína á það
jákvæða, bæta smám saman inn
góðum venjum. Alveg eins og með
allt annað í lífinu er mikilvægt að
taka bara eitt skref í einu. Það er
mun skynsamlegra og vænlegra til
árangurs, í staðinn fyrir að bylta
öllu á einum sólarhring. Best er að
safna nýjum venjum, einblína ekki
á það sem maður ætlar að hætta að
gera, heldur hugsa frekar um það
hverju á að bæta við.“
Börn og næring er okkar
hjartans mál
„Sem foreldrar berum við ábyrgð
og rannsóknir benda til aukinnar
offitu meðal barna. Það versta er
að börn niður í 12 ára aldur grein-
ast nú með áunna sykursýki sem
hér áður fyrr var kölluð öldrunar-
sykursýki. Eins og nafnið gefur til
kynna er þessi sykursýki áunnin
og ekki barninu um að kenna
heldur samfélaginu, foreldrum og
skóla,“ segir Lukka alvarleg og
greinilegt er að þetta mál snertir
hana. Happ sér um skólamáltíðir
í tveimur grunnskólum á höfuð-
borgarsvæðinu og meðal þess
sem rak þau út í það verkefni
voru einmitt niðurstöður þessara
rannsókna. „Það er ekki eins og
okkar tekjur komi frá því að sinna
þessu verkefni. Við tókum þetta
að okkur því börn og næring eru
okkar hjartans mál. Okkur finnst
mjög mikilvægt að þau læri ung að
þekkja og finna hvernig þeim líður
þegar þau borða hollan mat.“
Þeim sem vilja breyta sínum
lífsstíl ráðleggur Lukka að byrja
rólega. „Ef þú borðar til dæmis
alltaf pitsu á föstudögum, haltu því
þá bara áfram en gott er að setja til
dæmis klettasalat og spínat ofan á
pitsuna. Þá er hún orðin mun holl-
ari. Þú færð góð næringarefni úr
salatinu, trefjar, steinefni og annað
sem þú fékkst kannski ekki áður.“
Lukka segir einnig að best sé að
venja sig smám saman af óhollust-
unni og hætta sé á að við missum
móðinn ef við ætlum að snúa öllu
við á einu bretti.
Náttúran hluti af líkama og sál
Hjá Happ eru alls kyns námskeið
í boði, allt frá klukkutíma fyrir-
lestrum inni í fyrirtækjum upp
í sex vikna námskeið. Mark-
miðið með þeim er að kenna
fólki að bera ábyrgð á eigin
heilsu. „Á námskeiðunum
tölum við um fleiri þætti
heldur en bara mat. Við
tölum um andlega líðan,
hreyfingu, slökun, jóga
og ýmislegt fleira. Rauði
þráðurinn er samt nær-
ingin og það sem þú
borðar. Þú kemst ekk-
ert nær náttúrunni
en það að þú setur
hana upp í þig. Hún
verður hluti af þér
og hún hefur áhrif
á líkama og sál,“
segir Lukka að
lokum með bros
á vör. -aea