Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.04.1983, Side 15

Læknablaðið - 15.04.1983, Side 15
LÆK.NABLADIÐ 107 — að frumheilsugæsla er mikilvægasta leiðin til pess að leysa öll stærstu heilsugæslu- vandamál þróunarlandanna. — að íslendingar hafa verk að vinna í hinni alþjóðlegu baráttu fyrir hinu yfirlýsta markmiði sameinaðra þjóða heims, »heilsa fyrir alla árið 2000«. Þess ber að geta að hin íslensku orð heilsuliði, sjúkratæknir, læknaliði og aðlöguð tækni eru mínar tillögur til íslenskunar á hinum ensku hugtökum. Allar upþástungur um betri orð eru vel þegnar. HEIMILDIR 1) Walt, G. & Vaughan, P.: An Introduction to the Primary Health Care Approach in Developing Countries. Ross Institute of Tropical Hygiene Publication No. 13. London School of Hygiene and Tropical Medicine 1981. 2) WHO/UNICEF: Primary Health Care. World Health Organisation, Geneva 1978. 3) King, M. (ed.): Medicai Care in Developing Countries: A symposium from Makerere. Oxford University Press 1966, síðan endurútg. 10 sinnum, síðast 1977. 4) Morley, D.: Paediatric Priorities in the Develop- ing World. Butterworths 1973, síðan endurútg. 5 sinnum, síðast 1979. 5) Hofvander, Y.: Hálsa för alla ár 2000? Lákartid- ningen 14/81, 1413-15. 6) Vaughan, J.P.: Barefoot or Professional? Com- munity Health Workers in the Third World. Journal of Tropical Medicine and Hygiene 1980, 83, 3-10. 7) Werner, D.B.: The Village Health Worker — Lackey or Liberator? Hesperian Foundation 1977. NABLAÐIÐ THE ICI y THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL Læknafélag íslands og Læknafélag Reykjavíkur LR 69. ÁRG. - APRIL 1983 Heilsugæzla f þessu hefti birtist grein Geirs Gunnlaugs- sonar um heilsugæzlu í þróunarlöndum. Hugtakið heilsugæzla kemur fyrst fyrir í rituðum heimildum fyrir tæpum fjörtíu árum (1) og merkti heilsuvernd og sjúkrahjálp. Var sú skilgreining lögfest 1946 í almannatrygg- ingalögunum (2). Þau lög gerðu ráð fyrir, að heilsuverndarstöðvar, sjúkrahús og lækn- ingastöðvar önnuðust heilsugæzlu á vegum trygginganna (3). Löngu síðar var heilsugæzluhugtakið endur- vakið og skilgreint í lögum, sem »heilsuvernd- arstarf og allt lækningastarf, sem unnið er vegna heilbrigðra og sjúkra, sem ekki dveljast í sjúkrahúsum (4). í gildandi lögum (5) segir, að heilbrigðisþjón- usta taki til hvers konar heilsugæzlu, heilbrigð- iseftirlits, lækningarannsókna, lækninga á sjúkrahúsum og endurhæfingarstarfs. Öðru hvoru hafa skotið upp kollinum heitin frumheilsugæzla og frumheilbrigðisþjónusta, sem þýðingar á »primary health care«. Frum- heilsugæzla er röng þýðing og frumheilbrigð- isþjónusta hreinlega óþarft orð, þar sem heitið heilsugæzla er fyrir í málinu. í Alma Ata-yfirlýsingunni (6) er skilgreining á heilsugæslu, sem nær jafnt til tæknivæddrar þjónustu í iðnríkjum og þeirrar þjónustu, sem veitt er af vanefnum í þróunarríkjum; þar á er stigs- en ekki eðlismunur: »Heilsugæzla er kjarni heilbrigðisþjónustu og er byggð á hagkvæmum, vísindalegum og félagslega viðurkenndum aðferðum og tækni. Hún stendur til boða öllum þegnum hvers byggðarlags og fjölskyldum þeirra og gert er ráð fyrir þátttöku allra. Kostnaður miðast við, að byggðarlagið og þjóðfélagið í heild geti staðið undir honum á öllum þróunarstigum, í anda sjálfsákvörðunarréttar og þess að vera sjálfum sér nægur. Heilsugæzlan er óaðskilj- anlegur hluti og þungamiðja heilbrigðisþjón- ustu hvers lands og almennrar félags- og efnahagsþróunar byggða. Heilsugæzlan er fyrsta stigið í samfelldri heilbrigðisþjónustu. Þar eru fyrstu tengsl einstaklinga, fjölskyldna og samfélaga við heilbrigðiskerfið og þjón- ustan er veitt eins nærri vinnu- og bústöðum manna og kostur er«.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.