Læknablaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 7
LÆKNABLAÐIÐ
191
NIÐURSTÖÐUR
Kaposisarkmein var greint með vefjarannsókn í
nítján vefjasýnum frá tólf sjúklingum á íslandi á
tímabilinu sem þessi rannsókn nær yfir.
Sjúklingarnir voru tveir árið 1984, fimm árið 1985
og fimm árið 1986. Tveir sjúklinganna höfðu
verið greindir fyrir þetta tímabil, þannig að ný
tilfelli af Kaposisarkmeini voru 10 á þessum
þremur árum. Nýgengi Kaposisarkmeins á íslandi
er því 1,38 tilfelli á 100.000 íbúa á ári þessi þrjú
ár.
Sjúkdómurinn var hægfara og virtist bundinn við
húð í öllum tilvikum. KS kom fyrst fram á fótum
hjá ellefu sjúklingum, ýmist öðrum (fimm
sjúklingar) eða báðum (sex sjúklingar) og í einu
tilviki fannst sjúkdómurinn eingöngu í húð á nefi.
Ein kona hafði KS á fæti og í augnloki samtímis.
í klínískum lýsingum á sjúkdómsteiknum var
oftast talað um ljósrauðar, blárauðar eða
svarbláar litarbreytingar og þykkildi (infiltrate)
eða fyrirferðaraukningar (tumor) í húð (myndir
1-4). Oftast hafði sjúklingurinn engin óþægindi
haft af húðbreytingunum, en stundum var lýst
sári. Erfitt var að afla nákvæmra upplýsinga um
það, hve lengi þær höfðu verið til staðar áður en
sjúkdómurinn var greindur, en ljóst er, að það
var allt frá fáum vikum upp í fjögur ár. Níu
sjúklinganna höfðu verið með bjúg á fótum áður
en KS kom í ljós, sumir árum saman, en ekki
fengust fullnægjandi upplýsingar um ástæður
fyrir fótabjúg. Allir sjúklingarnir voru
íslendingar, enginn var nýrnaþegi og enginn
þeirra var með eyðni, svo vitað væri.
Við vefjarannsókn okkar kom í ljós, að bletts-
stigið (mynd 5) fannst í fjórum sýnum (3
sjúklingar), þykkildis-stigið (mynd 6) í átta (8
Mynd 1. KS utan á fceti á 78 ára karlmanni með
fjögurra ára sögu um bjúg áfótum. Vefjarannsókn
sýndi hnúðs-stig.
Mynd 2. KS innan á fæti, sami maður og á mynd 1.
Vefjarannsókn sýndi þykkildis-stig.
Mynd 3. KS á rist hjá 76 ára karlmanni, sem hafði
fengið barkstera í um það bil sex ár vegna
slagœðabólgu.
Mynd 4. KS húðbreytingar, sem komu áfótlegg á sama
manni og á mynd 3, nœrri fimm árum eftir
geislameðferð á rist.