Læknablaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 59
LÆKNABLAÐIÐ 1987; 73: 241
241
ÁLITSGERÐ STJÓRNAR L.í. UM VERSNANDI
ATVINNUHORFUR ÍSLENSKRA LÆKNA
1. Færri kandídatar frá Háskóla íslands
Vaxandi atvinnuleysis gætir meðal lækna í
Evrópu. í Ameríku fara atvinnumöguleikar
minnkandi og er jafnvel spáð atvinnuleysi þar. í
þessum löndum eru þó útskrifaðir allt að helmingi
færri læknar hlutfallslega en hér á landi. í skýrslu
SNAPS-hópsins er spáð verulegu atvinnuleysi
meðal lækna á íslandi í náinni framtíð.
Stjórn L.í. leggur því til, að ekki verði útskrifaðir
fleiri læknar úr læknadeild H.í. en 16-22 á ári og
vísar i þvi sambandi til ályktana aðalfunda L.í.
1984 og 1985.
Enda þótt félagið bendi einnig á aðrar leiðir til
úrbóta, er ekki líklegt, að komið verði í veg fyrir
atvinnuleysi að gagni nema veruleg fækkun verði
á útskrifuðum læknum frá læknadeild H.í.
2. Ný starfssvið
Læknismenntun getur komið að gagni við ýmis
störf, sem læknar hafa lítt sinnt hingað til. Benda
má á störf við stjórnun og skipulagningu í
heilbrigðiskerfinu, heilbrigðiseftirlit og fleira.
Skortur á öðru heilbrigðisstarfsfólki getur leitt til
þess, að starfssvið lækna víkki frá því sem nú er
og stöðum fjölgi. Störfum lækna í lyfja- og
líftækniiðnaði mun vafalítið fjölga.
3. Dreifing vinnuálags
Vinnuálag aðstoðarlækna er víða mikið, ekki síst
á vöktum. Algengt er, að þeir fái ekki notið
samningsbundinna ákvæða um hvíldartíma, þar
sem krafist er áframhaldandi starfa af þeim í stað
hvíldar. Nauðsynlegt og æskilegt er að bæta úr
því og ætti að vera auðvelt vegna fjölda
unglækna.
Vinnutími annarra lækna er oft á tíðum of
langur. Á þetta við bæði um einstaka sérfræðinga
og heilsugæslulækna út um land. Reikna má með,
að einhver fjölgun á stöðum geti orðið af þessum
sökum.
4. Nýjar námsstöður
Nú eru flestar stöður á heilsugæslustöðvum
setnar til frambúðar og afleysingastöður mjög
fáar. Færri læknakandídatar en æskilegt er
kynnast því þessari hlið læknisstarfsins.
Fyrirsjáanlegir eru erfiðleikar fyrir íslenska lækna
að komast í sérnám til Norðurlanda, hafi þeir
ekki unnið á heilsugæslustöð. Nú er vaxandi bið
eftir stöðum á námssjúkrahúsum til
lækningaleyfis. Þann biðtíma væri æskilegt að
nýta við vinnu á heilsugæslustöðvum. Slík vinna
gæti einnig nýst sem hluti af sérnámi í
heimilislækningum.
5. Atvinnuleysistryggingar
Vegna fyrirsjáanlegra breytinga á
atvinnumöguleikum lækna á næstu árum og
áratugum er tímabært, að læknafélögin íhugi
stofnun atvinnuleysistryggingasjóðs.
Febrúar 1987