Læknablaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 56
238
LÆKNABLAÐIÐ
og verður fyrsta verkefni hennar að setja sér
starfsreglur.
10) Tillaga um að stjórn L.í. setji eða fái settar
reglur um skorður við óbeinum greiðslum
lyfjafyrirtækja til lækna. Þessi tillaga var ekki
samþykkt á aðalfundinum en vísað til stjórnar.
Haukur Þórðarson greindi frá að tillagan hefði
verið rædd, en engar samþykktir gerðar.
Ólafur F. Mixa greindi frá, að stjórn F.Í.H. hefði
skipað nefnd til að fjalla um þetta mál og hefur
hún skilað áliti. í framhaldi af því hafa verið sett
fram almennt orðuð tilmæli til lækna.
Haukur Þórðarson lagði til að stjórnin íhugi
málið með það fyrir augum að ganga frá reglum
fyrir lok næsta árs.
II. Nefnd Lœknafélags Reykjavíkur um
trúnaðarlœknisstörf: Atli Dagbjartsson greindi
frá störfum nefndar, sem setur reglur um
trúnaðarlæknisstörf, starfshætti, starfssvið og
starfskjör trúnaðarlækna. Fyrir liggja drög að
reglugerð um trúnaðarlækningar og einnig drög
að launaviðmiðun fyrir trúnaðarlækningar.
Atli taldi nefndina ekki vilja taka afstöðu til
»klögumála«, en ágreiningsmálum hefur verið
vísað til hennar. Ágreiningur kom m.a. upp
varðandi heimild fyrirtækja til að krefjast
eingöngu veikindavottorða frá trúnaðarlækni
fyrirtækisins. Var bent á, að í reglugerð opinberra
starfsmanna sé ákvæði um að heimilt sé að
krefjast slíks vottorðs frá trúnaðarlækni
fyrirtækis.
III. Innheimtur fyrir læknisverk: Rætt var um
»innheimtur fyrir verk unnin samkvæmt
gjaldskrá og færslur þeirra«. Gestur
ráðstefnunnar við umræður um þennan lið var
Björn Önundarson tryggingayfirlæknir.
Tryggvi Ásmundsson greindi frá að í
reglugerð frá 1964 væri kveðið svo á að læknar
haldi spjaldskrá, þar er einnig getið skyldu
sérfræðinga að senda læknabréf til
heimilislækna. Hann ræddi hvort löglegt væri að
tryggingayfirlæknir en ekki landlæknir hafi
eftirlit með færslu sjúkraskráa. Tryggvi lagði
áherslu á mikilvægi þess fyrir læknasamtökin að
hafa innra eftirlit á framkvæmd samninga. Hann
taldi sæmilega hafa til tekist í því efni og
ágreiningsmál verið leyst á fundum með
samningamönnum T. R. Hann kvað rétt að
meðhöndla T.R. eins og mjólkurkú, sem
mjólkaði vel við góða meðhöndlun.
Ludvig Guðmundsson taldi sjúkraskrárfærslur
hjá heimilislæknum fara batnandi á ný.
Ólafur F. Mixa benti á, að erfiðlega gengi með
ritaraþjónustu heimilislækna utan
heilsugæslustöðva. Hann átaldi vantrú T.R. á
hæfni og heiðarleika heimilislækna.
Tryggvi Ásmundsson taldi að í vissum tilvikum
væri unnt að »nauðga gjaldskrám« og
læknasamtökunum bæri að koma í veg fyrir slíkt.
Björn Önundarson þakkaði boð á ráðstefnuna.
Hann taldi lækna oft ekki vanda til
reikningagerðar og kvaðst ekki skilja hræðslu
þeirra við eftirlit. Hann sagði T.R. óska
samvinnu við læknafélögin um friðsamlega lausn
ágreiningsmála.
Haukur Þórðarson ræddi möguleika
»ágreiningsmálanefndar« sem fjallað um
ágreining. Annar kostur væri að vísa slíkum
málum til samninganefndar.
Magni S. Jónsson taldi íslenska lækna mega vel
við una bæði hvað varðar reikningagerð, sem
víðast hvar erlendis er flóknari, einnig berast
greiðslur hér fyrirhafnarlítið.
Sveinn Magnússon taldi óþarflega stirð bréf hafa
gengið á milli T.R. og lækna, þar sem oftast
mætti leysa málin á einfaldan hátt.
Ólafur F. Mixa átaldi að við yfirferð reikninga
hjá T.R. kæmi ekki fram hvers vegna reikningar
væru lækkaðir, væri um slíkt að ræða.
Haukur Þórðarson ræddi möguleika á skipun
nefndar formanna hinna ýmsu samninganefnda
og framkvæmdastjóra félaganna, en kostur væri
að þessar nefndir skiptust á upplýsingum.
Björn Önundarson var ekki sammála að
bréfaskriftir væru stirðar. Hann kvað samstarf
við lækna með ágætum í flestum tilvikum og
óskaði eftir áframhaldi þar á.
IV. Staða í kjaramálum: Sverrir Bergmann,
formaður samninganefndar sjúkrahúslækna
sagði samning hafa verið undirritaðan 18. febrúar
og samþykktan á félagsfundi viku síðar.
Samningurinn gildir í tæp tvö ár og eru beinar
launahækkanir á tímabilinu um 17%, þar af
12,2% á þessu ári. Ný aðferð er tekin upp við
útreikning á starfsaldri, og verður hann framvegis
reiknaður frá embættisprófi. Það getur leitt til
þess að menn hækki um þrep í launum, en 4,5%