Læknablaðið - 15.08.1987, Síða 17
LÆKNABLAÐIÐ
201
Sumarið 1983 gekkst sjúklingur undir
kransæðamyndatöku á Landspítala. Niðurstöður
þeirrar rannsóknar voru: Eðlilegar kransæðar. Einnig
var gerð myndataka af meginæð og sáust þá ekki nein
merki um útvíkkun á meginæð eða klofagúlp.
í nóvember 1983 var sjúklingur lagður inn á Landakot
vegna brjóstverkja. Hafði þá allt frá fyrstu innlögn 1982
verið mjög slæm af hjartaöng og þurfti m.a. að skipta
um húsnæði af þeim sökum. Við komu mældist
blóðþrýstingur 150/90 mm Hg. Röntgenmynd af
brjóstholi reyndist eðlileg og engin merki sáust um
breikkun á meginæð, mynd 7. Var hún útskrifuð eftir
viku legu. Engin skýring hefur fengist á því hvers vegna
breytingarnar sem sáust á röntgenmyndunum hafa
horfið. (Sjá þó umræðu hér á eftir).
8) 1984. Bráðainnlögn 67 ára karlmanns vegna yfirliðs.
Var hann að ýta bíl sínum í snjó er hann hné skyndilega
niður. Er hann kom til meðvitundar kvartaði hann um
mikla bak- og brjóstverki.
Við komu var hann mjög þjáður og blóðþrýstingur vart
mælanlegur. Reyndist hann vera með lömun í útlimum
og bentu einkenni hans til skemmdar á mænu í hæð við
áttunda brjóstlið.
Röntgenmynd af brjóstholi sýndi klofagúlp á
meginæðarboga með upptök í rismeginæð. Myndin
sýndi einnig stækkun á hjarta. Hjartalínurit sýndi
forhólfaflökt.
Sjúklingur var fluttur í skyndi á Landspítalann vegna
hugsanlegrar bráðrar aðgerðar. Til þess kom þó ekki og
andaðist hann daginn eftir. Krufning leiddi í ljós að
klofagúlpurinn náði frá hjarta að nýrnaæðum. Blætt
hafði inn í miðmæti og í vinstra brjósthol.
9) 1984. Karlmaður, 36 ára, lagður inn vegna
skyndilegra brjóstverkja vinstra megin í brjósti og
mæði. Þessu fylgdu einnig svimi og mikill sviti.
6. mynd. 55 ára kona. Viku eftir innlögn. Vaxandi
breikkun á rismeginæð.
Hann hafði haft »vægan háþrýsting«, en ekki verið á
meðferð við honum. Hann hafði verið talinn hafa
Marfanssjúkdóm og tvisvar gengist undir aðgerð á
Landspítalanum vegna trektarbrjósts (pectus
excavatus).
Við komu var sjúklingur mjög veikindalegur og móður.
Hjartahlustun leiddi í ljós hátíðniútstreymisóhljóð.
Heyrðist það best yfir hjartagrunni og leiddi upp i
hálsæðar. Heyrðist það einnig á baki.
Maðurinn var mjög hávaxinn og útlimalangur.
Brjóstkassi var innfallinn.
Hjartalínurit vakti grun um hjartadrep á bakvegg og
sýndi forhólfaflökt. Röntgenmynd af brjóstholi sýndi
smávægilega breikkun á meginæðarboga með
tvöföldum útlínum.
Á öðrum degi eftir innlögn versnaði sjúklingi
skyndilega. Hann varð mjög móður og grunur vaknaði
um að hann gæti verið með blóðsega í lungum. Var
hann því settur á blóðþynningarlyf. Tveimur
sólarhringum síðar versnaði honum skyndilega aftur,
æðasláttur fannst ekki og hann missti meðvitund.
Andaðist hann skömmu síðar og lífgunartilraunir báru
ekki árangur.
Krufning leiddi í ljós klofagúlp á meginæð með upptök
í fallmeginæð. Skemmdirnar teygðu sig upp í báðar
samhálsslagæðar og náðu niður í samslagæðar
mjaðmar.
10) 1985. Karlmaður, 66 ára, sem innlagningardag var
að vinna í garði sínum, er hann fékk skyndilegan sáran
verk, sem byrjaði í baki og leiddi fram í brjóstið. Var
hann sárastur á milli herðablaðanna. Svitnaði hann
mikið og var móður.
Vinstra nýra hafði verið tekið árið 1973 vegna illkynja
æxlis (adenocarcinoma). Hann hafði þá verið lagður inn
7. mynd. 55 ára kona. Tœpu ári eftir innlögn.
Klofagúlpurinn hefur gróið og er nú alveg horfinn.