Læknablaðið - 15.08.1987, Side 50
232
LÆKNABLAÐIÐ
Þessir tveir komu fljótlega til starfa á íslandi,
langflestir hinna eru ennþá erlendis. Um 1975 var
nokkuð rætt innan læknafélaganna hvort
nauðsynlegt væri að stýra námi í ákveðnar
sérgreinar, en sú afstaða var tekin að mönnum
skyldi frjálst að læra það sem hugurinn girntist.
Árið 1981 var gerð áætlun til 1996 og samkvæmt
henni verða 1.400 læknislærðir íslendingar árið
2000.
í öðrum löndum hefur verið brugðist við
offjölgun lækna á margvíslegan hátt. Árið 1981
uppgötvðu unglæknar í Danmörku að í gildi voru
lög um lágmarkshvíldartíma. Þá var bætt við
2000 stöðum og atvinnuleysi hvarf meðal
unglækna. Nú eru um 500 læknar atvinnulausir í
Danmörku eða um 4*% lækna.
Varðandi þá hugmynd að senda lækna til
þróunarlanda, þá hafa norrænar
þróunarstofnanir staðið fyrir því. Vandinn er hins
vegar sá að kollegar hafa litið niður á viðkomandi
lækna við heimkomu.
Menn verða að gera sér grein fyrir því að
Norðurlöndin eru að lokast fyrir framhaldsnám
lækna. Finnland er þegar lokað, Noregur og
Danmörk að lokast og sama er að segja um
Bandaríkin. Þetta þýðir að flytja verður
framhaldsnám inn í landið að svo miklu leyti sem
kostur er. í kjölfar þess má reikna með að
aðstoðarlæknum fjölgi og að þeir verði lengur
aðstoðarlæknar en áður og ef til vill koma þá upp
enn meiri andstæður milli sérfræðinga og
aðstoðarlækna.
Öll þessi atriði er nausðynlegt að hafa í huga við
framtíðarspár.
Jóhann Ágúst Sigurðsson: Þörf er fyrir um 160
heimilislækna í landinu, samkvæmt því skortir
100 sérmenntaða heimilislækna. í
Reykjaneslæknishéraði eru 28 heilsugæslulæknar
en eiga að vera 36. Ekki er ástandið betra í
Reykjavík, þar er skráður 51 heimilislæknir og af
þeim einungis 16 eða 17 með sérmenntun í
heimilislækningum.
Varasamt er fyrir unglækna að festa sig í umræðu
um eyðni og álíta að mikil þörf verði fyrir vinnu
lækna í tengslum við sjúkdóminn, þar verður
fyrst og fremst um að ræða rannsóknastarf
örfárra manna.
Sigmundur !Sigfússon: Læknar á Akureyri hafa
talsvert rætt að i framtíðinni verði að ganga út frá
öðrum forsendum en nú. Það lítur út fyrir
Jóhann Ágúst Sigurðsson.
viðvarandi skort á hjúkrunarfræðingum og
fremur aukinn ef eitthvað er. Afleiðingarnar
verða e.t.v. að læknar verða að sinna störfum
sem þeir hafa ekki unnið til þessa.
Á Akureyri er þörf fyrir fleiri lækna. Sjúkrahúsið
hefur fengið vilyrði fyrir tveimur stöðum á ári, en
það nægir ekki. í sannleika sagt sjá læknar á
Akureyri ekki offjölgun Iækna sem stórt
vandamál á næstunni.
Ingimar Sigurðsson lögfræðingur í
heilbrigðisráðuneytinu: Ráðuneytið álítur spá
Sigmundur Sigfússon.