Læknablaðið - 15.08.1987, Qupperneq 52
234
LÆKNABLAÐIÐ
Ólafur Ólafsson.
ákvarði einhliða fjölda nemenda, það er
ráðuneytismál og á að vera það.
Nauðsynlegt er að efla kennslu í mörgum greinum
sem ekki eru kenndar við læknadeild í dag, þar
má efna tryggingalækningar,
faraldsfræðilækningar o.fl. Með breyttum
kennsluháttum innan læknadeildar geta ýmsir
nýir atvinnumöguleikar opnast fyrir lækna.
Sigríður Dóra Magnúsdóttir: Unglækna varðar
mestu að fá fleiri stöður, og heilbrigðisyfirvöld
verða að hafa frumkvæði að því. Það er þegar
offramboð á læknum og unglæknar geta ekki
Sigríður Dóra Magnúsdóttir.
leyst vandann nema sérfræðingar sýni okkur
samstöðu.
Spurningin snýst um það, hvort sérfræðingar
vilja hjálpa unglæknum að öðlast
sérfræðimenntun og snúa aftur heim. í Svíþjóð
geta unglæknar ekki komist í sérfræðinám nema
þeir hafi lokið 6 mánaða starfstíma á
heilsugæslustöð. Hér hefur héraðsskyldan verið
afnumin og illmögulegt er fyrir unglækna að fá
starf á heilsugæslustöð, þannig er skapaður
vítahringur.
Guðjón Magnússon: Héraðsskyldan var lögð
niður fyrst og fremst vegna beiðni frá FUL og
jafnframt var kandídatsárið Iengt. Á sínum tíma
varaði læknadeild við þessu og áleit
óskynsamlegt, en þeim viðvörunum var ekki
sinnt.
Sveinn Magnússon: Það er stórmál fyrir L.í. að
hægt sé að taka við kollegum þegar þeir koma
heim úr sérnámi. Það er slys að skylduvinna utan
sjúkrahúsa hafi verið felld niður, og leiðir m.a. til
þess að brátt verða hér starfandi læknar sem
eingöngu hafa reynslu af sjúkrahússtarfi.
Friðbjörn Sigurðsson: Menn mega ekki gleyma
hvernig ástandið var þegar héraðsskyldan var
felld niður, en þá var gífurleg bið eftir því að
komast í hérað og héraðsskyldan var þannig stífla
fyrir framhaldsnámið. Unglæknar lögðu áherslu
á að þetta yrði lagfært þannig að skyldunni yrði
breytt í val, en útkoman varð sú að skyldan var
felld niður en enginn valmöguleiki settur í
staðinn.
Ingimar Sigurðsson: Það er furðulegt hve
unglæknar sjá eftir kandídatsárinu í héraði, eins
og þeir voru áfjáðir að losna við það.
Héraðsskylda var sett inn í læknalög 1941. í
frumvarpi til læknalaga, sem nú liggur fyrir
Alþingi, er gert ráð fyrir að ráðherra hafi heimild
til að ráða fyrirkomulaginu, þannig að enga
lagabreytingu þarf til.
María Sigurjónsdóttir: Unglæknar eru ekki að
fara fram á að héraðsskyldan verði endurvakin,
heldur vilja þeir fá námsstöður á
heilsugæslustöðvum og hafa val þar um.
Haukur Þórðarson: Það er umhugsunarvert fyrir
Læknafélag íslands, að umræðan um
héraðsskyldu og námsstöður á