Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.08.1987, Page 64

Læknablaðið - 15.08.1987, Page 64
246 LÆKNABLAÐIÐ fyrsta skipti verið lokað í sparnaðarskyni og sennilega yrði ekki af því neinn sparnaður. Ásmundur Brekkan tók til máls og benti á, að læknadeild væri að stefna að kennslu í ákvarðanatöku í læknisfræði og stjórnun fyrir læknastúdenta. Ólafur Ólafsson benti á, að landlæknisembættið hefði látið kanna, hversu fólki líkaði þjónusta lækna, og hefði niðurstaðan verið sú, að 90% líkaði vel árið 1979, og 1984 hefði jafnvel ánægjan farið vaxandi og yfir 94% hefðu verið ánægð með þjónustu lækna. Hann benti á, að uppbygging heilsugæslustöðva hefði verið til þess að jafna þjónustuna og fá lækna til starfa út á land. Að lokum benti hann á álit bandarísks prófessors, Andersons að nafni, sem taldi, að aldrei væri um einkarekstur að ræða, ef ríkið greiddi reikninginn. Því næst var gengið til afgreiðslu ársreikninga og gerði Sveinn Magnússon grein fyrir þeim. Tryggvi Ásmundsson ræddi um hóptryggingu og stöðu skuldara og lagði til, að skuldir á hóptryggingu yrðu innheimtar á sama hátt og hjá einkafyrirtæki. Páll Þórðarson benti á, að til stæði, að það yrði gert. Atli Dagbjartsson vildi fá skýringar á liðnum »Annar skrifstofukostnaður«. Að því loknu voru ársreikningarnir samþykktir samhljóða. Síðan var lögð fram fjárhagsáætlun, þar sem gert er ráð fyrir árgjaldi 20 þús. kr., en gjald til svæðafélaga sé óbreytt, 2 þús. kr. Tillagan var samþykkt samhljóða. Því næst var gengið til kosningar stjórnar, og voru lagðar fram einar tillögur, stjórnar L.Í., og voru eftirtaldir menn því sjálfkjörnir: Varaformaður til 2ja ára Sverrir Bergmann. Ritari til 2ja ára Kristján Eyjólfsson. Meðstjórnendur til eins árs Arnór Egilsson, Gestur Þorgeirsson, Sigríður Dóra Magnúsdóttir og Þorkell Bjarnason, endurskoðandi Einar Jónmundsson og varamaður Þengill Oddsson. í Gerðardóm til 2ja ára Sigursteinn Guðmundsson, varamaður Pálmi Frímannsson. í Siðanefnd til 2ja ára Þorvaldur Veigar Guðmundsson og Guðmundur Sigurðsson. Varamenn: Hannes Finnbogason og Ólafur Bjarnason. Því næst tók til máls Magni S. Jónsson og bauð til aðalfundar í Reykjavík að ári. Undir Iiðnum »Önnur mál« tók Haukur Þórðarson til máls og lagði til, að Eggert Steinþórsson verði kjörinn heiðursfélagi L.í. Hann hafi unnið síðan 1956 eða frá upphafi að undirbúningi, byggingu og stjórnun Domus Medica og sé nú formaður stjórnar Sjálfseignarstofnunar Domus Medica, formaður húsráðs Domus Medica frá 1980 og húsfélags Domus Medica frá stofnun þess 1986. Var tillagan samþykkt með lófaklappi. Haukur ræddi síðan um aðild félaga íslenskra lækna erlendis. FÍLÍS og FÍLÍNA væru aðilar að L.Í., svo og FÍLÍÞý og FÍLÍB, en ekkert hefði heyrst frá tveim síðarnefndu félögunum í allmörg ár. Munnlegar upplýsingar lægju fyrir um, að færri en 8 læknar væru starfandi í Þýskalandi. Þessum tveim félögum hefði verið skrifað fyrir 1-2 árum, en ekkert svar borist. Lagði formaður til, að þeim yrði ritað bréf, þar sem þeim væri tilkynnt, að þau mundu falla af skrá yfir svæðafélög, þar til þau endurnýjuðu sig. Var það samþykkt. Næst á dagskrá var erindi frá FÍLÍNA. Formaður sagði að samþykktir frá félaginu hefðu borist í fyrra og verið lagðar fyrir aðalfund 1985, en af mistökum hefði láðst að birta þær. í nýlegri samþykkt lýsti FÍLÍNA yfir furðu sinni vegna þessa og mótmælti um leið aðför aðalfundar L.í. að hinu almenna lækningaleyfi, þegar samþykkt var ályktun um skipan heimilislækna á heilsugæslustöðvar. Einnig hefði hömlulaus nýyrðasmíð í Læknablaðinu gert blaðið illlæsilegt venjulegum lækni. Hins vegar bæri L.í. þakkir vegna aðgerða, þegar hætta var á útilokun íslendinga til framhaldsnáms í U.S.A. Loks fagnaði FÍLÍNA umræðuefnum á málþingi á þessum aðalfundi. Haukur dreifði síðan á fundinum áskorun stjórnar Læknaféiags íslans á göngudeildarmálum, sem byggð var á könnun starfshóps innan stjórnar L.Í., sem ætlað var að athuga breytingar, sem orðið hefðu frá árinu 1982. Kom í Ijós, að göngudeildarþjónusta hafði ekki aukist og var aukning ekki fyrirhuguð. Ekki var tekin með þjónusta göngudeildar kvennadeilar Landspítalans, þar sem upplýsingar þaðan komu of seint. Ólafur Ólafsson dreifði meðal fundarmanna nýju riti frá landlæknisembættinu, sem nefnist »Mannréttindi og eftirlaunaaldur«. Hann sagði stefnu landlæknis að halda fólki utan stofnana sem lengst, en það hefði í för með sér, að það eldist seint og vel. Fólk ætti að sinna starfi sem lengst og ekki væri rétt að svipta fólk vinnunni, þótt það kæmist á eftirlaunaaldur. Pétur Lúðvígsson lagði fram á fundinum undirritað erindi sitt og Lúðvíks Ólafssonar: »Með tilkomu heilsugæslustöðva sköpuðust ný viðhorf í heilbrigðisþjónustu á íslandi. í kjölfarið

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.