Læknablaðið - 15.10.1988, Qupperneq 31
LÆKNABLAÐIÐ 1988; 74: 325-47
325
ÁRSSKÝRSLA LÆKNAFÉLAGS ÍSLANDS
starfsárið 1987-1988
INNGANGUR
Ársskýrslan nær til 15. júlí 1988. Síðasta skýrsla
stjórnar nær til 18. ágúst 1987 og var lögð fram á
aðalfundi 21.-22. september 1987.
Alls greiddu 778 læknar árgjald árið 1987. Þar af
greiddu 658 fullt árgjald, en 109 hluta þess.
Læknar á skrá, komnir yfir sjötugt og/eða hættir
störfum, voru 67 í árslok, en þeir greiða ekki
árgjöld. Árgjaldið 1987 var kr. 20.000 og hluti
svæðafélags óbreyttur frá fyrra ári, þ.e. kr.
2.000. Innheimt árgjöld samsvöruðu 709 heilum
árgjöldum og skiptust þau þannig milli
svæðafélaga:
Læknafélag Reykjavikur 563, Læknafélag
Vesturlands 25, Læknafélag Vestfjarða 13,
Læknafélag Norðvesturlands 16, Læknafélag
Akureyrar 52, Læknafélag Norðausturlands 9,
Læknafélag Austurlands 15 og Læknafélag
Suðurlands 16.
Vorið 1988 útskrifuðust 44 kandídatar frá
læknadeild Háskóla íslands og 2 haustið 1987.
Eftirtaldir læknar hafa látist frá síðustu
ársskýrslu:
Edda Björnsdóttir f. 01.12.36 d. 05.09.87
Guðjón Klemenzson Guðmundur f. 04.01.11 d. 26.08.87
Stefánsson Jón Hjaltalín f. 19.03.45 d. 09.05.88
Gunnlaugsson f. 08.06.17 d. 08.07.88
Magnús Ágústsson f. 11.02.01 d. 14.03.87
Viðar Pétursson f. 24.11.08 d. 08.02.88
AÐALFUNDUR L.í. 1987
Aðalfundurinn 1987 var haldinn í Reykjavík
dagana 21.-22. september. Fundinn sátu 25
fulltrúar svæðafélaganna og 7 menn úr stjórn
L.Í., auk framkvæmdastjóra og 9 gesta. í
tengslum við aðalfundinn var læknaþing haldið
eins og venja er þegar aðalfundur er í Reykjavík,
einnig haustnámskeið fyrir lækna á vegum
Námskeiðs- og fræðslunefndar L.í. og L.R.
Guðmundur Bjamason heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra ætlaði að ávarpa fundinn
en af því gat ekki orðið þar eð hann var erlendis.
Finnur Ingólfsson, aðstoðarmaður ráð-herra,
futti ávarpið í hans stað. Hann kynnti
heilbrigðisþing sem þá var áformað og haldið i
febrúar 1988, þar sem fjallað skyldi um íslenska
heilbrigðisáætlun. Hann kynnti áformaða
endurskoðun á fjármögnun heilbrigðiskerfisins
og könnun á áhrifum af lyfjaávísunarvenjum
lækna. Almannatryggingalög yrðu endurskoðuð
og lög um málefni aldraðra. Þá yrði komið á fót
stofnun forvarna og heilbrigðisfræðslu. Að
lokum kvað hann frumvarp til Iæknalaga verða
lagt fram að nýju á Alþingi í því formi sem það
var við þingslit vorið 1987.
Formaður flutti skýrslu stjórnar og fóru síðan
fram umræður um ýmsa þætti hennar. Gjaldkeri
lagði fram og skýrði reikninga ársins 1986 og voru
þeir samþykktir. Framkvæmdastjóri gerði grein
fyrir reikningum Ekknasjóðs og Lífeyrissjóðs
lækna. Flutt var skýrsla stjórnar Domus Medica
og skýrði formaður hennar frá því að nú hefði
Domus Medica fengið byggingarleyfi á hornlóð
Snorrabrautar og Egilsgötu. Kallaði hann eftir
hugmyndum læknafélaganna um nýtingu hennar.
Fyrir aðalfundinum lágu sjö ályktunartillögur,
tvær frá stjórn L.Í., fjórar frá stjórn L.R. og ein
frá stjórn F.U.L. Eftir að tillögurnar höfðu verið
kynntar fóru þær til umfjöllunar þriggja
starfshópa.
Svo fór að tvær tillagnanna voru samþykktar
óbreyttar, annars vegar áskorun á heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra um að leggja að nýju fram
frumvarp það til læknalaga sem ekki náðist að
afgreiða fyrir lok Alþingis vorið 1987, hins vegar
áskorun á læknadeild H.í. um að taka upp
kennslu í stjórnunarfræðum.
Ein tillaga sem fjallaði um áskorun á heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra um að beita sér fyrir
breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu í þá
veru, að starfsemi heimilislækna utan
heilsugæslustöðva væri heimil til frambúðar, var
lögð fram af starfshópi með lítils háttar
afmarkandi breytingum. Fór svo eftir miklar
umræður að þessi tillaga var felld. í framhaldi af