Læknablaðið - 15.10.1988, Side 52
342
LÆKNABLAÐIÐ
ÝMIS MÁL
1. í mars 1988 sendi landlæknir stjórn L.í.
eftirfarandi erindi: »Nú eru til góðar upplýsingar
um vinnuaðbúnað og vinnuálag flestra stétta á
íslandi. Landlæknisembættið hefur áður kannað
vinnuaðbúnað heilsugæslulækna og vinnutíma.
Ég tel nauðsynlegt að frekari athugun verði gerð
og þar á meðal athugað vinnuálag, og óska eftir
því að Læknafélag íslands tilnefni fulltrúa til þess
að starfa með embættinu að slíkri athugun. Ég
óska ennfremur eftir því að Læknafélag íslands
áætli eitthvert fjármagn til rannsóknarinnar á
næsta ári.«
Stjórn L.í. tekur undir þetta erindi landlæknis en
telur auk þess að ekki sé síður ástæða til að kanna
sömu atriði hjá öðrum hópum lækna. Stjórnin
mun Ieggja fram tillögu á aðalfundi 1988 um að
L.í. taki þátt í könnunarverkefni þessu í
samvinnu við landlæknisembætið.
2. Að venju bauð stjórn L.í. nýútskrifuðum
kandídötum til fagnaðar sem fór fram
laugardaginn 28. maí í Domus Medica, sama dag
og síðustu prófum lauk. Kynnt var starfsemi
skrifstofu læknafélaganna, lífeyrissjóður lækna
og útgáfustarfsemin og skýrð uppbygging L.í. og
svæðafélaganna. Skrifstofan sendir útskrifuðum
kandídötum eintak af lögum félagsins og Codex
ethicus.
3. Eins og kunnugt er eru gerðir sérstakir
kjarasamningar fyrir fastráðna lækna sem flestir
starfa hjá ríkinu. Lengst af voru flestir þessir
læknar embættislæknar, sem svo voru kallaðir,
héraðslæknar og læknar starfandi á
sérstofnunum ríkisins. Nú er svo komið að
læknum sem falla undir þennan kjarasamning
hefur fjölgað mjög vegna fjölgunar
heilsugæslulækna. Telja má að þessum tveimur
hópum fastráðinna lækna væri betur borgið í
kjarasamningum sitt í hvoru lagi. Frá sjónarmiði
laga mun ekkert því til fyrirstöðu að stofnað verði
til kjarasamninga við hvorn hópinn fyrir sig og
verður sótt um heimild fjármálaráðuneytisins til
að svo megi verða.
KJARAMÁL
KJARASAMNINGUR FASTRÁÐINNA
LÆKNA
í maí bauð ríkisvaldið óvænt öllum
kjarasamningsaðilum til viðræðna um
endurskoðun launaliða samninga.
Efnahagsráðstafanir voru á næsta leiti og tími til
samningaviðræðna naumt skammtaður. Þann 20.
maí náðist samkomulag um breytingar sem tóku
gildi 1. júni og voru þessar helstar: Breyting á
launaþrepum eftir prófaldri, starfsaldur við
kandídatspróf telst nú 5 ár í stað tveggja áður,
yfirvinnustuðull verður LOSSSVo í stað 1,0%
fastra mánaðarlauna og hækkun varð á
svokallaðri desemberuppbót.
GJALDSKRÁ HEIMILIS- OG
HEILSUGÆSLULÆKNA
Gjaldskráin sem samið var um í júnímánuði 1987
gildir til 1.5.1989. Hafa engar breytingar verið
gerðar á árinu, en einingaverð breytist í samræmi
við laun heilsugæslulækna. Samstarfsnefnd um
framkvæmd gjaldskrársamningsins var sett á fót
eftir síðasta samning. Nefndin hefur fundað
alloft. Helstu verkefni hafa verið að fylgjast með
gjaldskrárbeitingu lækna. I því sambandi var
farið í eina skoðunarferð á heilsugæslustöð en sú
næsta var stöðvuð svo sem frægt er orðið. Eftir
deilur um skoðunaraðferðir og álitsgerðir a.m.k.
tveggja lögfræðinga hafa verið gerð drög að
samkomulagi sem felur í sér að ekki skoði aðrir en
læknir sjúklings sjúkrasögur til að bera þær
saman við reikninga. Nefndin hefur safnað
upplýsingum um gjaldskrártekjur heimilis- og
heilsugæslulækna. Sýna þær að fullyrðingar
heilsugæslulækna um lélegar tekjur af gjaldskrá
eru á rökum reistar. Til stóð að breyta
gjaldskránni í Ijósi þessarar könnunar og hefði
hún átt að hækka verulega miðað við þær
forsendur sem notaðar voru við gerð hennar á
sínum tíma. Sýnt er að sú leiðrétting verður
torsótt þótt ekki sé nema vegna
bráðabirgðalaganna frá í vor sem setja þak á
launa- og gjaldskrárhækkanir.
Enn eitt verkefni nefndarinnar átti að vera að
ákvarða greiðslur fyrir læknisverk sem ekki koma
fyrir i gjald-skránni. Þar hefur lítið gerst. Af
þessu má sjá að starf samstarfsnefndarinnar
hefur ekki nema að takmörkuðu leyti komið
heilsugæslulæknum til góða. Þetta byggðist á
erfiðum samskiptum við fulltrúa T.r. framan af.
Þau eru öll betri nú og vonir standa til að nefndin
geti skilað meiri árangri í framtíðinni.
SAMNINGUR UM
SÉRFRÆÐILÆKNISHJÁLP
Samningar um endurskoðun gjaldskrár
sérfræðinga hafa nú tekist og tekur gjaldskráin
gildi frá og með 1. ágúst n.k. Aðallega er þar um
að ræða nýja gjaldskrárliði og nokkrar tilfærslur,
en ekki neinar verulegar hækkanir. Svonefnd