Læknablaðið - 15.10.1988, Síða 53
LÆKNABLAÐIÐ
343
Kaffið þarf sitt pláss á fundum.
skörunarmál, þar sem deilt er um hverjir
sérfræðingar megi vinna ákveðin læknisverk og
taka fulla greiðslu fyrir, hafa tekið langan tíma og
bíða nokkur slík mál úrskurðar læknadeildar. Því
miður hefur afgreiðsla þeirra mála á vegum
læknadeildar tekið mjög langan tíma.
Útgjöld T.r. fyrir sérfræðilæknishjálp jukust
mjög á árinu 1987 miðað við fyrra ár. Ástæður
þess eru vafalaust margþættar. Má þar nefna
fjölgun sérfræðinga í greinum þar sem framboð
var mun minna en eftirspurn og flutningur
læknisverka frá sjúkrahúsum á stofur. Er það
m.a. afleiðing lokunar sjúkradeilda og
samdráttar i sjúkrahúsrekstri. Þessi
útgjaldahækkun hefur valdið því að T.r. hikar
við að framlengja samninginn óbreyttan, en hefur
þó ekki enn komið fram með neinar gagnkröfur.
Samkvæmt bráðabirgðalögum um aðgerðir í
efnahagsmálum nr. 14/1988 frá 20. mai mega
launaliðir »í gjaldskrám sjálfstætt starfandi
sérfræðinga ekki hækka meira...« en um 10% frá
31.12.1987 til 1. júní. Samninganefnd T.r. hefur
borið þetta ákvæði fyrir sig að því er varðar
samning um sérfræðilæknishjálp og hækkar
launaliður hans því um 4,7% þar sem áður voru
komnar hækkanir í janúar og febrúar upp á
5,06%. Einingarverð hækkaði því i 96,20 krónur
en hefði átt að vera 97,87 krónur. Málið því sent
i gerðardóm samkvæmt lögunum.
SAMNINGAR LAUSRÁÐINNA
SJÚKRAHÚSLÆKNA
í mars náðist samkomulag við fulltrúa
fjármálaráðuneytisins um breytingu á
vaktafyrirkomulagi. Er það byggt á einni af
bókunum með kjarasamningi frá 18. febr. 1987.
Enda þótt fulltrúar Reykjavíkurborgar hefðu
tekið þátt í þessum viðræðum, eins og endranær
þegar fjallað er um kjarasamninga lausráðinna
sjúkrahúslækna, töldu þeir sig óbundna af
samkomulaginu. Eftir allmikið stapp fékkst þó
loks sérstakur fundur með þeim 1. júlí. Á þeim
fundi gaf starfsmannastjóri borgarinnar út
skriflega yfirlýsingu, þess efnis að samkomulagið
skuli einnig gilda fyrir lækna i störfum hjá
Reykjavíkurborg frá 1.4.-31.12.1988 en falli þá úr
gildi án frekari fyrirvara nema um annað verði
samið.
Þann 15. maí sl. var undirritað samkomulag um
breytingu á samningum sjúkrahúslækna, sem
hafði i för með sér breytingu og fjölgun á
launaþrepum bæði hjá aðstoðarlæknum og