Læknablaðið - 15.12.1989, Page 19
LÆKNABLAÐIÐ
Table I. Prescriptions for tranquillizers and/or
antidepressants to patients aged 20-59 years in
Reykjavík during March 1984.
391
voru látnir þegar rannsóknin var framkvæmd
(30).
Til þess að geta borið þessar tvær athuganir
saman, voru valdir Reykvíkingar úr
spumingalistakönnuninni og lyfseðlar, sem
fólk á aldrinum 20-59 ára fékk með ávísun
á geðdeyfðarlyf og róandi lyf. Algengi
lyfjanotkunarinnar er miðað við mannfjölda
1. desember 1984 (31). Samanburður á
meðaltölum er metinn með dreifigreiningu
(ANOVA (32)). Þó að hún eigi ekki vel við til
að bera saman aldursdreifingar sem eru mjög
skakkar, fæst varlegt mat með henni.
í þessum mánuði ávísuðu 217 læknar róandi
lyfjum og/eða geðdeyfðarlyfjum handa 1825
sjúklingum á 2550 lyfseðlum.
NIÐURSTÖÐUR
Meiri hluti sjúklinganna, 60%, fengu lyfin frá
heimilislæknum, einkum þeim sem ekki höfðu
sérfræðiviðurkenningu sem slíkir. Aðeins tæp
17% fengu lyfin frá geðlæknum. Mun fleiri
konum en körlum var ávísað þessum lyfjum,
62% sjúklinganna voru konur. Skiptingin milli
kynja var nokkuð breytileg hjá læknahópunum
(tafla II). Hlutfallið milli karla og kvenna var
stærra hjá geðlæknum og lyflæknum en hjá
öðrum læknum.
Aldursdreifing sjúklinganna var einnig
mismunandi hjá læknahópunum (töflur II
og III). Meðalaldur sjúklinga geðlæknanna
var lægstur. Þeir höfðu hlutfallslega flesta
sjúklinga undir þrítugu og næstfæsta
yfir fimmtugu, aðeins sérfræðingar í
heimilislækningum höfðu hlutfallslega
færri sjúklinga í þeim aldurshópi. I heild
fjölgar sjúklingum með hækkandi aldri,
mest hjá lyflæknum. Dreifigreining sýnir, að
marktækur munur er á aldursdreifingunni milli
læknahópanna.
Til þess að kanna hvort allir læknahópamir
ávísuðu lyfjunum á sama hátt var gerð
dreifigreining á stærð ráðlagðra skammta sem
hlutfall af skilgreindum dagsskömmtum (SDS,
Defined Daily Doses=DDD (19)), eins og sýnt
er á töflu IV. Allir nema geðlæknar ráðlögðu
að meðaltali minna en einn SDS, 0,75-0,88
SDS af róandi lyfjum og 0,66-0,76 SDS af
geðdeyfðarlyfjum. Engin víxlverkun kom
í ljós á milli tegunda geðlyfs og sérgreinar.
Geðlæknar ráðlögðu greinilega stærri skammta
Speciality Number of doctors Number of patients Number of prescriptions
Psychiatry General practice, .. 28 304 551
(speciality) General practice, .. 17 269 363
(other) .. 28 832 1,187
Internal medicine .. .. 32 156 234
Surgery .. 15 83 121
Other .. 97 181 305
Total 217 1,825 2,761
Table II. Number of patients and mean age
according to sex and speciality of prescribing doctor.
Number *) Mean age **)
Speciality M F M+F M F M+F
Psychiatry.......... 132 172 304 43.3 42.6 42.9
General practice,
(speciality)..... 89 180 269 43.4 43.2 43.3
General practice,
(Other) .......... 300 532 832 45.8 46.8 46.3
Internal medicine . 73 83 156 48.1 47.9 48.0
Surgery .............. 31 52 83 45.5 49.0 47.2
Other ................ 67 114 181 44.0 45.6 44.8
Total 692 1,133 1,825 45.1 45.7 45.4
•) X2='3.098 df=5 p=0.0225
’*) Two way analysis of variance
Mean age, speciality effect F=11.81 df=5 p<0.0001
Mean age, sex effect F=1.79 df=1 p=0.18
Two way interaction F=0.88 df=5 p=0.5
Table III. Percentage age distribution of patients by
doctors' speciality.
Age groups
Speciality 20-29 30-39 40-49 50-59 All
Psychiatry General practice, 14.1 23.4 31.6 30.9 100.0
(speciality) General practice, 8.6 30.5 33.5 27.5 100.1
(other) 7.3 18.1 32.7 41.8 99.9
Internal medicine ... 4.5 14.7 31.4 49.4 100.0
Surgery 3.6 12.0 41.1 43.4 100.1
Other 10.5 18.2 33.7 37.6 100.0
Total 8.5 20.3 33.0 38.2 100.0
að meðaltali, rúmlega einn SDS af hvorri
lyfjategund. Skilgreindir dagsskammtar af
róandi lyfjum eru t.d. 10 mg díazepam, en
af geðdeyfðarlyfjum 75 mg amítryptilín (19).
Algengi minni háttar geðkvilla samkvæmt
framangreindri skilgreiningu reyndist 16%,