Læknablaðið - 15.08.1990, Blaðsíða 13
LÆKNABLAÐIÐ
283
NABLAÐIÐ
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
Læknaíélag íslands og
Læknafélag Rcykjavikur
76. ARG. - AGUST 1990
VARNIR GEGN
HJARTAÞELSBÓLGU
-Breyttar ráðleggingar-
Þótt ekki sé langt síðan skrifað var á sama
vettvangi um forvamasýklalyfjameðferð gegn
hjartaþelsbólgu (1), hefur þekking okkar
aukist mikið og í nágrannalöndunum hefur
ráðleggingunum verið breytt. Mikilvægt er
að þær séu einfaldar og auðvelt að fylgja
þeim. I grein Peters Holbrook og félaga, sem
birtist í þessu blaði (2), kom í ljós að nokkuð
skorti á að íslenskir tannlæknar þekktu vel
ábendingar fyrir gjöf forvamalyfja, svo og að
margir gáfu röng lyf og of lengi. Einföldun á
ráðleggingum og fræðsla er líkleg til að bæta
úr þessum vanda, eins og raunin hefur reyndar
orðið á hjá nágrönnum okkar (3,4).
í HVERJU FELAST BREYTINGARNAR?
Nú mœlum við með þremur grfímmum af
amoxýsillíni einni klukkustund fyrir aðgerð,
í stað þess að gefa þrjár milljón einingar
af fenoxýmetýlpenisillíni og síðan 500.000
einingar á sex stunda fresti í tvo sólarhringa.
Frásog amoxýsillíns er mun áreiðanlegra en
frásog fenoxýmetýlpenisillíns og það nær
háum styrk í blóðvatni. Talið er að í blóði
sé það bakteríudrepandi fyrir keðjukokka í
að minnsta kosti 10 klukkustundir eftir slíka
gjöf (5). Bresku, evrópsku og skandinavísku
hjartalæknafélögin hafa á sama hátt mælt
með amoxýsillíni (6). Fyrir sjúklinga með
penisillínofnæmi er ekki völ á jafngóðum
kosti. Fram að þessu hefur yfirleitt verið
mælt með erýþrómýsíni, þrátt fyrir að frásog
þess sé óáreiðanlegt og aukaverkanir frá
meltingarfærum tíðar. Hæsti skammtur sem
þolist þokkalega hjá fullorðnum er um 1,5
grömm og er það sá skammtur sem þarf að
nota fyrir aðgerð, en einnig þarf að gefa 0,5
grömm sex tímum eftir aðgerð. Klindamýsín
frásogast betur og er kröftugra til að koma
í veg fyrir hjartaþelsbólgu í dýratilraunum
en erýþrómýsín (7), en vegna hræðslu við
ristilbólgu (pseudomembraneous colitis)
hafa læknar verið tregir til að mæla með
því. Svisslendingar hafa notað 600 mg af
klindamýsíni einni klukkustund fyrir aðgerð
síðan 1984, án þess að til aukaverkana
hafi komið (8). I Svíþjóð er nú mælt með
klindamýsíni (9) og Bretar hafa nýlega breytt
ráðleggingum sínum vegna aukaverkana
erýþrómýsíns og reynslu Svisslendinga (10).
Við mælum því með 600 mg klindamýsíns
einni klukkustund fyrir aðgerð, á sjúklingum
með penisillínofncemi.
Taka sýklalyfja hefur veruleg áhrif á eðlilegu
örveruflóru okkar (11). Penisillín breytir
munnfiórunni þannig, að eftir nokkurra daga
meðferð eru penisillínónæmir stofnar algengir,
þar á meðal keðjukokkar (12). Þess vegna
er óæskilegt að sjúklingum, sem fá eða hafa
nýlega fengið penisillínlyf, sé gefið penisillín
eða amoxýsillín sem forvamalyf (13). Þeir
sjúklingar ættu að fá klindamýsín, eins og þeir
sem hafa penisillínofnæmi.
Við mælum með tveimur grömmum
ampisiUíns í œð um það bil 15 mínútum fyrir
aðgerð handa sjúklingum sem þurfa að vera
fastandi, en einu grammi vankómýsíns í dreypi
í 60 mínútur fyrir aðgerð sé sjúklingurinn
með ofnœmi fyrir penisillíni. Hætta er á
aukaverkunum vegna histamínlosunar (red
man’s syndrome), ef vankómýsín er gefið
hraðar.
AF HVERJU ÞARF AÐ GEFA
FORVARNALYF?
Hjartaþelsbólga af völdum baktería er mjög
alvarlegur sjúkdómur. Oft líður langur
tími frá því að sjúklingurinn sýkist þar
til sjúkdómurinn greinist og meðferðin
getur verið erfið. í nýlegri rannsókn (14)
á hjartaþelsbólgu á íslandi kom í ljós að
dánartíðni var 34%. Talið var að skortur á
forvamasýklalyfjagjöf við tannaðgerðir hatí
stuðlað að sýkingu hjá tveimur af 44 sem
vitað var að voru í áhættuhópi. Enn er margt