Læknablaðið - 15.08.1990, Blaðsíða 26
296
LÆKNABLAÐIÐ
sérfræðinga með það í huga að hægt væri að
taka á ágreiningsatriðunum á jákvæðan hátt og
koma þannig í veg fyrir neikvæðar afleiðingar
mismunandi viðhorfa, sem hugsanlega gætu
bitnað á neytandanum.
AÐFERÐIR OG EFNIVIÐUR
Aðferðir. Arið 1983 var gerð könnun
á vegum Norræna heilbrigðisháskólans
í Gautaborg á faglegum viðhorfum
heimilislækna og annarra sérfræðinga innan
læknastéttarinnar (3). Akveðið var að
framkvæma samskonar könnun á hinum
Norðurlöndunum til þess að hægt væri að
athuga þessi mál í hverju landi fyrir sig og
einnig að bera niðurstöður saman á milli
landa. Notaðar voru sömu aðferðir og beitt var
í Gautaborg, enda þótt ljóst væri að aðstæður í
löndunum væru mismunandi. Þetta var gert til
þess að auðvelda samanburð og einnig vegna
þess að aðferðimar höfðu verið prófaðar
gaumgæfilega. Hér er því um samnorrænt
verkefni að ræða. Hér verður hins vegar
eingöngu fjallað um íslenska efniviðinn.
Table I. Number of invited physicians, their speciality and
response rates in the study of non-physical territoriality in
health care in Iceland 1988.
Number Response rate (%)
Sample Responders
General Practitioners... 58 58 (100)
Pediatricians 32 20 (63)
Geriatricians 4 4 (100)
Gynaecologists 26 21 (81)
Psychiatrists 30 20 (67)
Oto-laryngologists 18 16 (89)
Internists 17 11 (65)
Total 185 150 (81)
Einn af höfundum (LB) ræddi við lækna úr
ýmsum sérgreinum um hugsanleg fagleg
ágreiningsmál. Einnig voru myndaðir
umræðuhópar og ritaðar heimildir af svipuðu
tagi athugaðar. Að þeirri vinnu lokinni
mótuðust kenningamar. í framhaldi af því var
hannað spumingablað sem sent var til fulltrúa
allra sérgreina. Blaðinu var síðan breytt í
samræmi við athugasemdir þeirra.
Að lokinni forkönnun varð til spumingablað
sem notað var í fyrmefndri könnun í Svíþjóð
og síðan í þessari. Aðferðum þessum er nánar
lýst annars staðar (3).
Efniviður. Sendur var út spumingalisti (sjá
viðauka) til allra lækna sem voru starfandi hér
á landi í sex sérgreinum samkvæmt Læknaskrá
1987. Að auki voru 18 lyflæknar valdir af
handahófi. Vegna nafnaruglings varð að fella
einn þeirra úr könnuninni. Athugunin náði
samtals til 185 lækna í sjö sérgreinum (tafla
I) .
Hver læknir fékk ákveðið skráningamúmer
sem jafnframt var skráð á spumingablaðið.
A þennan hátt var fylgst með heimtum og
vanheimtum. Þeir sem ekki höfðu skilað á
tilsettum tíma voru hvattir til þess tvisvar
sinnum með símtali. Að síðustu var sent
bréf til þeirra, sem ekki höfðu þá svarað,
ásamt nýjum spumingalista þar sem þeir voru
eindregið hvattir til þess að láta skoðanir sínar
í ijósi.
í töflum I og II má sjá heimtur, vanheimtur
og aldursdreifingu. Þátttaka var mest hjá
heimilislæknum og öldrunarlæknum (100%)
en minnst hjá bamalæknum (63%). Mun fleiri
heimilislæknar voru yngri en 50 ára (tafla
II) borið saman við allar hinar sérgreinamar
Table II. Age distribution of responders and non-responders in the study of nonphysical territoriality in health care in
Iceland 1988.
Age
-39 40-49 50-59 60+ Total
Speciality n <%) n <%) n (%) n (%) n (%)
General Practitioners - responders all 35 (60) 22 (38) 1 (2) 58 (100)
Other physicians - responders 19 (21) 35 (38) 22 (24) 16 (17) 92 (100)
- nonresponders 1 (3) 13 (37) 12 (34) 9 (26) 35 (100)
Total 55 (30) 70 (38) 34 (18) 26 (14) 185 (100)