Læknablaðið - 15.08.1990, Qupperneq 37
LÆKNABLAÐIÐ 1990; 76: 303-6
303
Jóhann Ág. Sigurðsson 1), Calle Bengtsson 2)
ERU BLÓÐFITUR ÁHÆTTUÞÁTTUR HJÁ
KONUM?
Samantekt úr þversniös- og langtímaferilrannsókn á konum í
Gautaborg
INNGANGUR
í umræðu um áhættuþætti kransæðasjúkdóma
og annarra hjarta- og æðasjúkdóma hefur
áhuginn á síðustu árum einkum beinst að
blóðfitum. Astæður þessa eru meðal annars
þær að komið hafa á markaðinn ný lyf
sem lækka blóðfitu og að nýlega hafa birst
álit sérfræðihópa frá Bandaríkjunum (1)
og Svíþjóð (2) um meðferð við of háum
blóðfitum.
Flestar rannsóknir á of háum blóðfitum hafa
hingað til verið gerðar á karlmönnum. í
álitsgerðum sérfræðinefnda hafa niðurstöður
rannsókna á körlum einnig verið yfirfærðar
á konur. Niðurstöður okkar úr hóprannsókn
á konum í Gautaborg benda hins vegar til
þess að mikilvægt sé að gera mun á körlum
og konum þegar verið er að meta blóðfitu
sem áhættuþátt hjarta- og æðasjúkdóma og
einnig að taka beri tillit til aldurs. Tilgangur
þessarar greinar er því að taka saman eigin
rannsóknir á blóðfitum sem áhættuþáttum
hjarta- og æðasjúkdóma hjá konum og bera
þær saman við aðrar sambærilegar rannsóknir
um þetta efni.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Gerð var hóprannsókn á 1462 konum í
Gautaborg, sem athugaðar voru í fyrsta
skipti 1968-69 (3). Konumar voru valdar
eftir fæðingardögum og varð þátttaka
yfir 90%. Þetta tryggði að hópurinn varð
marktækur fyrir allar konur í Gautaborg í
þeim aldurshópum sem athugaðir voru (tafla
I). Eins og sjá má á töflu I, voru konumar
í aldurshópum 38 til 60 ára þegar þær voru
rannsakaðar í fyrsta skipti.
Niðurstöður af þversniðsrannsókninni 1968-
69 voru bomar saman við rannsókn á öllum
konum í Gautaborg sem fengu kransæðastíflu
á ámnum 1969-71 (4). Hóprannsóknin var
síðan endurtekin 6 og 12 árum síðar (5, 6),
og voru heimtur mjög góðar í bæði skiptin.
Nákvæm athugun á vanheimtum styrkir enn
frekar niðurstöður okkar.
Þær niðurstöður sem hér birtast eru að mestu
byggðar á 12 ára ferli frá 1968-69 til 1980-
81 (mynd 1), en hópnum er stöðugt fylgt eftir
meðal annars með tilliti til dánartíðni. Aætlað
er að gera 24 ára ferilrannsókn á þessum hópi
1992-93.
Niðurstöður frá 12 ára athugun á milli áranna
1968-69 og 1980-81 varðandi áhættuþætti
fyrir hjarta- og æðasjúkdóma og dánarorsakir
hafa einnig verið birtar áður (5,7) og þar eru
Table I. Selection criteria, number of participants and participation rate (%) in each age stratum in the prospective study
of women in Gothenburg.
Study in 1968-69 Study in 1980-81
Year of birth Age at examination Dates of birth Number of participants Partici- pation rate (%) Age at examination Number of participants Participation rate (%)'
1930 38 6, 12, 18, 24, 30 372 91.4 50 308 82.8
1922 46 6, 12, 18, 24, 30 431 90.0 58 332 77.0
1918 50 6, 12, 18, 24, 30 398 91.3 62 325 81.7
1914 54 6, 12 180 88.7 66 140 77.8
1908 60 6 81 83.5 72 49 60.5
1 Of those investigated in 1968-69
1) Læknadeild H.Í., heimilislæknisfræöi, 2) læknadeild
Gautaborgarháskóla, Allmánmedicinska institutionen.