Læknablaðið - 15.10.1990, Qupperneq 2
Halcion (triazolam) a R,E
TÖE'LUR; Hver tafla inniheldur: Triazolamum INN 0,125 mg eöa
0,25 mg.
Eiginleikar: Tríazólam er stuttverkandi benzódíazepínsamband
með svipaðar verkanir og díazepam og önnur skyld lyf. Lyfið frá-
sogast vel og nær blóðþéttni hámarki eftir u.þ.b. 1 Zi klst.
Helmingunartími í blóði er oftast 2-3 klst. Útskilnaður er aðallega
í þvagi.
Abendingar: Tímabundið svefnleysi.
Frábendingar: Skert lungna- og lifrarstarfsemi. Áfengisfíkn. Brjó-
stagjöf. Áhrif lyfsins á fóstur eru óviss. Lyfið getur verið óæskilegt
fyrir þá, sem haldnir eru geðdeyfð. Varúðar skal gæta við gjöf lyf-
sins hjá sjúklingum með myasthenia gravis.
Aukaverkanir: Þreyta og syfja. Notkun lyfsins hefur í för með sér
ávanahættu. Svima, ógleði og höfuðverk hefur verið lýst. Lyfið he-
fur í einstaka tilvikum valdið skammvinnu amnesia-automatism
syndrom og ruglástandi. Hætta á þessu er háð skömmtum og eykst
við samtíma notkun áfengis, annarra lyfja með slævandi verkun
á miðtaugakerfið og við langvarandi vökur. Lyfið getur valdið
spennu og pirringi daginn eftir notkun.
i
V;arúð: Vara ber sjúklinga við stjórnun vélknúinna ökutækja samtímis
notkun lyfsins. Benzódíazepínsambönd geta valdið ávana og fíkn.
Kvíði, skjálfti, rugl, svefntruflanir, krampaflog, þunglyndi og óþægindi
frá meltingarfærum geta komið í ljós, þegar notkun lyfsins er hætt, þótt
það hafi verið notað í venjulegum skömmtum í skamman tína.
Milliverkanir: Lyfið eykur áhrif áfengis, róandi lyfja og annarra svefn-
lyfja. Sé lyfið gefið samtímis címetidíni og erýtrómýcíni getur
plasmaþéttni tríazólams tvöfaldast.
Eiturverkanir: Mjög háir skammtar lyfsins geta valdið meðvitundarleysi
og losti.
Skammtastærðir lianda fullorðnum: Venjulegur skammtur er 0,125-
0,25 mg fyrir svefn. í vissum tilvikum má auka skammt í 0,5 mg fyrir
svefn. Aldradir. 0,06-0,125 mg fyrir svefn.
Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað einstaklingum
yngri en iö ara. Pakkningar: VÖRUMERKI: HALCION MOOOCT Of
Töflur 0,125 mg: 10 stk. (þynnupakkað) 30 stk. (þynnupakkað) 100 stk. (sjúkrahússpakkning) Töflur 0,25 mg: 10 stk. (þynnupakkað) 30 stk. (þynnupakkað) 100 stk. (sjúkrahússpakkning) LYF sf., GARÐAFLÖT 16, Dpjohn
210 GARÐABÆR. SIMI (91) 45511 CNS AESCARCH