Læknablaðið - 15.10.1990, Blaðsíða 71
Ahrifamikill nefúðasteri gegn frjókvefi
-SEM HÆGT ER AÐ HAFA I HENDI SER
Fjöldi sjúklinga meö frjó-
kvefseinkenni eykst
með ári hverju. Til eru
þeirsjúklingarsem ekki
fá sig einkennalausa meö anti-hista-
mín meðferð.
Það á sérstaklega við um sjúkl-
inga sem hafa mikil þrengsli í nefi.
Þessir sjúklingar hafa þörf fyrir
staðbundna sterameðferð.
Rhinocort Aqua (budesonid) er
nýr vatnsleysanlegur barksteri I
úðaflösku sem inniheldurekki freon
og er þægilegur í notkun þar sem
lausnin er lyktarlaus.
Sænsk rannsókn þar sem borin voru saman Rhinocort/budeson-
id og Becotide/beclometason dipropionat hjá 93 sjúklingum
með frjókvefseinkenni. Mæling var gerð á eftirfarandi
einkennum; stiflað nef, hnerri og kláði I nefi. Dagsskammtur; 400
mlkrógr.
Mai: Á úthreinsunar tima
(Run-in-period), varð aukning
á einkennum. Meðferð með
Rhinocort eöa beclometason
dipropionat dró úr einkenn-
um, marktækur munur (p <
0,05) sýndi að Rhinocort skil-
aði betri árangri.
Júni: í fyrstu viku meðferðar
varö sambærileg minnkun á
einkennurfi við meðferð með
Rhinocort og beclometason
dipropionat. Þegar fjöldi frjó-
korna jókst, kom i Ijós að
Rhinocort skilaði betri árangri
en beclometason dipropionat.
Tilvitnanir: Pipkorn U., Rundcrantz H. Budesonide og beclometa-
sone dipropionate in hay fever — a single bind comparison. Eur.
J. Respir.Dis. (Suppl.) 122,211-20 1982.
1 ml inniheldur: Budesonidum INN 1 mg, Kalii sorbas 1,2 mg,
buröarefni og Aqua purificata q.s. ad 1 ml. Hver úðaflaska inni-
heldur 200 úöaskammta. Hver úðaskammtur inniheldur: Bude-
sonidiim INN 50 mikrógr. Eiginleikar: Lyfiö er barksteri (sykur-
steri). Það brotnar hratt niður I lifur I óvirk umbrotsefni og hefur
því litlar almennar steraverkanir. Ábendingar: Allerglskur rhinit-
is, polyposis nasi, vasómótorlskur rhinitis, rhinitis medicament-
osa. Við árstiðabundinn rhinitis kemur varnandi meðferð til
greina. Frábendingar: Gæta skal varúöar hjá sjúklingum meö
sýkingar i nefgöngum eða nefholum (sinusum). Herpessýking I
nefi. Lyfið hefur í dýratilraunum ámeðgongutlma valdiö klofnum
góm og beinbreytingum hjá fóstrum, en óvlst er hvort þetta á við
um menn. Aukaverkanin Sveppasýking I nefi og koki er þekkt eft-
ir stóra skammta af lyfinu. Sumir sjúklingar fá þunna slimhúð og
blóðugt nefrennsli. Hnerrar hafa stöku sinnum fylgt notkun úö-
ans. Örsjaldan hefur myndast gat á septum nasi eftir úðun með
sterum. Skammtastæröir handa fullorðnum: Venjulegur byrjun-
arskammtur er 2 úöanir I hvora nös kvölds og morgna. Sem við-
haldsskammtur nægir oft 1 úöun f hvora nös tvisvar á dag.
Skammtastærðir handa börnum: Börn 6-12 ára: Sömu skammtar
og handa fullorönum. í þessum skömmtum dregur lyfið venju-
legaekki úr vexti barna. Lyfióerekki ætlað börnum yngri en 6 ára.
Pakkningar. Rhinocort Aqua; 10 ml úðaflaska (200 úöaskammtar).
Framleiðandi: Draco: Umboð á íslandi: Pharmaco hf., Hörgatúni 2,
210 Garðabæ.
astka I Astra ísland