Læknablaðið - 15.10.1990, Blaðsíða 20
386
LÆKNABLAÐIÐ
1977-1980 eða 0,52 af 1000 fæddum bömum
á ári, en 46 á árunum 1981-1986 eða 2,8
af 1000 fæddum bömum á ári. A Islandi
fæddust á þessu 10 ára tímabili 75 böm með
fæðingarþyngd innan við 1000 g, og reyndust
12 þeirra hafa opna fósturæð eða 13,7%. Af
þeim þurftu 11 meðferð, indomethacin og/eða
aðgerð (92%). Eitt hundrað áttatíu og tvö
böm fæddust með fæðingarþyngd á milli
1000 og 1499 g og greindust 17 þeirra með
opna fósturæð eða 9,3%. Af þeim þurftu 11
meðferð, indomethacin og/eða aðgerð (64%).
Ef til vill gefa árin 1983-1986 betri mynd
af nýgengi opinnar fósturæðar, þar sem
sjúklingar voru fleiri og greiningaraðferðir
betri. A því tímabili fæddust á landinu öllu
32 lifandi fædd böm með fæðingarþyngd
innan við 1000 g. Níu (29%) þeirra voru með
opna fósturæð og þurftu öll meðferðar við,
indomethacin og/eða skurðaðgerð. Þá voru
62 lifandi fædd böm með fæðingarþyngd frá
1000 til 1499 g. Tólf (19,3%) þeirra voru með
opna fósturæð og þurftu níu (75%) þeirra
meðferð, indomethacin og/eða skurðaðgerð.
Eitt bam var einnig með lítið op á milli slegla
(ventriculer septal defect). Meðgöngulengd
var frá 25 til 35 vikna, miðtala 29 vikur.
Fæðingarþyngd var frá 530 g upp í 2840 g,
miðtala 1380 g.
Tuttugu og sjö böm fengu indomethacin
og/eða gengust undir skurðaðgerð, 14 drengir
og 13 stúlkur (tafla I). Átján sjúklingar fengu
eingöngu indomethacin, sjö fóru í aðgerð án
undangenginnar indomethacin notkunar og
tveir fóru í aðgerð eftir að indomethacin hafði
verið notað án árangurs. Mynd 1 sýnir hvemig
skiptingin er á milli þessara meðferðarhópa.
Af 20 bömum sem fengu indomethacin,
lokaðist æðin hjá 14 (70%), tvö fóru í aðgerð
en fjögur böm dóu áður en til aðgerðar kom.
Þegar tilhögun meðferðar er skoðuð með
hliðsjón af fæðingarþyngd er áberandi að böm
með fæðingarþyngd yfir 1500 g spjara sig best
og indomethacin lokaði fósturæðinni í öllum
tilvikum er það var notað. Hjá bömum innan
við 1000 g var árangurinn lakastur en í 43%
tilvika lokaðist æðin. Sex af níu bömum sem
fóru í aðgerð voru undir 1000 g, fjögur þeirra
höfðu ekki fengið indomethacin fyrir aðgerð.
Virkni indomethacins er lökust í léttustu
bömunum, þ.e. bömum sem voru h'til miðað
Table I: Mode of therapy by sex.
Indomethacin Surgery Indo and Surgery
Boys 9 5 0
Girls 9 2 2
Total 18 7 2
Number of patients
12
77-82 83-84 85-86 Years
■ Indomethacin ca Surgery o Indom. and Surgery
Fig. I. PDA closure by years. In the first 6 years PDA
was treated in 5 patients but in 22 patients in the latter 4
years.
Number of pts
8t
<1.0 1.0-1.5 ,-1.5
Birthweight (kg)
■ Indom. success Indom. faiiure o Surgery
Fig. 2. PDA therapy and birthweight. Indomethacin is less
effective in patients with birthweight less than 1.0 kg.
við meðgöngulengd (small for gestational
age), 43% í bömum innan við 1000 g, 78%
í bömum 1000-1500 g og lokaðist í öllum
sem voru yfir 1500 g, (mynd 2).
Meðalfæðingarþyngd bamanna sem svöruðu
indomethacini var 1318 ± 380 g (SEM),
en þyngd bamanna sem ekki svöruðu var