Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1990, Side 5

Læknablaðið - 15.10.1990, Side 5
LÆKNABLAÐIÐ 1990: 76: 377-84 377 Guðmundur Georgsson, Valgerður Andrésdóttir, Páll A. Pálsson, Guðmundur Pétursson NOKKRIR SAMBÆRILEGIR PÆTTIR í VISNU OG EYÐNI INNGANGUR Einn þeirra sjúkdóma, sem hugmynd Bjöms Sigurðssonar um sérstakan flokk smitsjúkdóma, hæggenga smitsjúkdóma (1), byggðist á, var visna. En visna er meningoencephalomyelitis í sauðfé og ein af hinum svonefndu Karakúlpestum. Orsökin reyndist vera retróveira og tókst að rækta hana 1957 (2). Visnuveiran er nú flokkuð ásamt ýmsum dýraveirum og eyðniveiru í undirflokk retróveira, sem nefnist lentiveirur (af lentus (lat.) = hægur). Það er mjög við hæíi að þessi fiokkur veira skuli kenndur við hugmynd Bjöms enda visnuveiran sú fyrsta í þessum flokki, sem tókst að rækta. Lentiveirusýking í sauðfé var upprætt hérlendis fyrir aldarfjórðungi (3) en rannsóknum hefur verið haldið áfram, enda ósvarað mörgum ögrandi spurningum er varða bæði veiruna og víxlverkanir hýsils og veiru. Að auki teljum við að visna geti verið gagnlegt dýralíkan fyrir heila- og mænusigg (MS), vegna þess að sjúkdómurinn er að jafnaði iangdreginn og stundum með endurteknum hviðum líkt og í MS og ekki síst að stundum sjást blettir (primary demyelination) sem líkjast mjög þeim sem taldir eru einkennandi fyrir vefjaskemmdir í MS (4). Uppá síðkastið hefur áhuginn beinst meira að því sem visna á sameiginlegt með eyðni, þareð veirumar sem valda þessum sjúkdómum eru skyldar og hafa ýmsa sambærilega eiginleika bæði í rækt (in vitro) og í hýsli (in vivo). Ymsum þáttum í viðbrögðum hýsils við eyðnisýkingu svipar til þess sem sést í visnu. VEIRURNAR Veirumar sem valda visnu og eyðni eru Frá Tilraunastöð Háskólans I meinafræöi, Keldum, Reykjavik. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Guðmundur Georgsson. I p°i I ^^rev Fvl env ~1 yisna_yirus Jjg}----------------------------gjj§ I 939 I ran lat— | I nel I I PQI ~l □ B—revH-ISE! vPf r " énv ' I HIV_-J furol------------------------------ITfRl Mynd 1. Skematísk mynd af skipulagi erfðaefnis visnuveiru og eyðniveiru (HIV-1). Fyrirkomulag byggingargena (structural; gag, pol og env) er áþekkt. Einkennandi er fjöldi stjórnunargena, sem eru þó greinilega fleiri í HIV-1. Þar er þó einu sleppt, vpu geninu, sem er nálægt og skarast að nokkru viö 5’ endann á env geninu. Þýðing opna lesrammans Q, í visnuveiru er óþekkt. sökum kjarnsýrusamsvörunar flokkaðar ásamt nokkrum öðrum retróveirum, sem ekki valda æxlum (non-oncogenic), í sérstakan flokk sem nefnist lentiveirur. Bæði veiruknappskot og fullmótaðar visnu- og eyðniveirur eru nánast eins að gerð, og skipulag erfðaefnis (mynd 1) þeirra er mjög áþekkt (5,6,7). Sérkennandi fyrir frumuskemmdir sem visnu- og eyðniveiran valda í næmum frumum í rækt eru margkjama risafrumur (8,9). MARKLÍFFÆRI Visna barst hingað til lands með innfluttu Karakúlfé árið 1933 (3). í faraldrinum hérlendis voru meginsjúkdómseinkennin ekki frá miðtaugakerfi heldur frá öndunarfærum vegna lungnabólgu (chronic interstitial pneumonia), sem nefnd var mæði eða nánar tiltekið þurramæði. í nokkrum hjörðum suðvestanlands olli visna þó meiri veikindum og hærri dánartíðni en mæði. Veirumar sem ollu þessum sjúkdómseinkennum voru fyrst einangraðar úr miðtaugakerfi visnukinda (2) og nokkrum árum sfðar úr lungum mæðikinda (10). Þær reyndust skyldar samkvæmt sermisprófun (serólógískt), og fyrstu sýkingartilraunir bentu til þess að

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.