Læknablaðið - 15.10.1990, Blaðsíða 11
LÆKNABLAÐIÐ
381
eitt megineinkenni heilaskemmda í eyðni (43,
44), hafa einnig fundist í visnu (mynd 5). En
gagnstætt eyðni eru þær mjög fátíðar í visnu
og hafa aðeins fundist í tilraunasýkingum
með mjög neurovirulent veirustofni (33)
sem kom fram við endurtekna sýkingu úr
kind í kind (passage)(45). Skýringin á því
kann að vera að lítið er að jafnaði af veiru
í visnuheilum (16). Enn einn sameiginlegur
dráttur í vefjaskemmdum í eyðni og visnu eru
tróðfrumuhnútar (glial nodules) (mynd 6).
Hins vegar er afmýlingin sem sést
í visnu frábrugðin því sem talið er
einkenna meðalbráða heilabólgu (subacute
encephalopathy) í eyðni. Breytingar á mýli,
sem sjást við þetta form heilaskemmda í
eyðni, einkennast af dreifðum fölva á mýli í
hvítu vegna gisnunar á mýli með vægri íferð
tiltölulegra fárra mýlisgleypla (myelophages),
sem er talsvert frábrugðið ’því sern að jafnaði
sést við afmýlingu í visnu, þ.e. allþétt íferð
bólgufruma (mynd 7). Annað sem skilur á
milli er, að í visnu sést oft áberandi aukning
á eitilfrumum í heila, stundum með myndun
reglulegra eitilbúa einkum í æðaflækju.
Þessar breytingar sem og áþekkar breytingar
í lungum og eitlastækkanir leiddu til þeirrar
tilgátu að vefjaskemmdir í visnu kynnu að
vera af ónæmistoga (immune-mediated).
Meingerð (pathogenesis) og markfrumur
í miðtaugakerf : Með þvf að beita
ónæmisbælingu (immunosuppression)
annars vegar (46) og örvun á ónæmissvari
(immunopotentiation) hins vegar (47) tókst
okkur að sýna framá það að visnuskemmdir
í heila, að minnsta kosti þær sem verða
skömmu eftir sýkingu, eru af ónæmistoga.
Ennfremur bentu niðurstöður okkar til að
hið skaðlega ónæmissvar beindist ekki
gegn mýlisvækjum (48) heldur veiruvöktum
(induced) vækjum (16,36).
Það reyndist hins vegar þrautin þyngri að sýna
framá hvaða frumur væru mörk (targets) hins
skaðlega ónæmissvars, þ.e. hvaða frumur
í heila væru næmar fyrir sýkingu og tjáðu
veiruprótín. Astæðan er augljóslega sú að
mjög fáar frumur virðast sýktar í heila og
að auki er mikil hemlun á veirufjölgun (26,
27). Til þess að auka á líkumar fyrir því
að finna sýktar frumur í miðtaugakerfinu,
mögnuðum við upp veirustofn, sem varð
meira neurovirulent, með því að flytja veiruna
m f**
. & - WW
> , ( JL
Mynd 5. Heili. Margkiarna risafrumur í A) visnu og B)
eyðni. HE, x450.
Mynd 6. Heili. Tróðfrumuhnútar í A) visnu og B)
eyðni. HE, x450.
Mynd 7. Heili. Afmýling í A) visnu, meö þéttri íferð
bólgufruma og B) eyðni. Kliiver-Barrera, x100.