Læknablaðið - 15.10.1990, Blaðsíða 28
394
LÆKNABLAÐIÐ
Holhandarskurðurinn var gerður í sömu
aðgerð og fleygskurðurinn í 36 tilvikum en
í 10 þegar vefjagreining lá fyrir um það
bil viku síðar. í fimmtán tilfellum voru
fleygskurður og holhandarskurður sameinaðir
í einum skurði. Frystiskurður var gerður í
19 tilvikum og sýnisröntgenmynd tekin í 13
tilvikum en aldrei hvort tveggja hjá sama
sjúklingi. Þrjátíu og fjórir sjúklinganna fengu
sex daga lyfjameðferð strax eftir aðgerð. Gefin
voru í æð fimm-flúoró-úrasil á fyrsta og þriðja
degi, meþótrexate á öðrum og fjórða degi,
vinkristin á fimmta degi og syklófosfamið
í töfluformi á öðrum, fjórða og sjötta degi.
Samantekt þessara atriða kentur fram í töflu.
Stærð æxla er sýnd á mynd 5. Meðalstærð var
15 mm samkvæmt svari úr vefjagreiningu.
Æxlisstærðar var ekki getið í einu tilviki.
Stærð á röntgenmyndum var frá 5 til 63 mm
en meðalstærð 15 mm.
Vefjarannsókn leiddi í ljós að skurðbrúnir
voru fríar í 45 af 49 tilvikum en í hinum
fjórum var framkvæmd frekari skurðaðgerð.
Hjá níu sjúklingum reyndust holhandareitlar
innihalda meinvörp í þremur af tíu eitlum
að meðaltali. Tveir þessara sjúklinga fengu
krabbameinslyfjameðferð í sex til átta mánuði
eftir aðgerð.
Fjörutíu og tveir af 49 sjúklingum (86%)
fengu geislameðferð á brjóstið eftir aðgerð.
Geislaskammtur var 2 Gray daglega fimm
daga vikunnar í u.þ.b. fimm vikur, alls að
meðaltali 50 Gray. Ástæður fyrir því að
geislameðferð var ekki gefin voru ein eða
fleiri eftirtalinna: Hár aldur, lélegt almennt
ástand og smæð æxlis.
Fjörutíu og sjö af 49 sjúklingum (96%) kysu
fleygskurð fremur en brottnám brjóstsins,
stæðu þær í sömu sporum nú og fyrir
aðgerð og væri tjáð að horfur væru sömu.
Útlitsárangur þeirra tveggja kvenna sem kusu
brottnám brjóstsins var dæmdur sæmilegur af
dómnefndinni.
Útlitsárangur að mati sjúklinga annars vegar
og dómnefndar hins vegar er sýndur á mynd
6. Tuttugu og átta kvennanna töldu árangur
mjög góðan, 13 góðan, átta sæmilegan og
engin lélegan. Dómnefndinni fannst árangur
vera mjög góður í 16 tilvikum, góður í 18,
sæmilegur í 13 og lélegur í tveimur tilvikum.
Alls töldu 84% sjúklinga árangur vera mjög
U I .............,-----1------'------1----
0-5 6-10 11-15 16-20 21-25 26-30 >30
Mynd 5. Stærö æxla í mm.
Mjög góöur Góöur Sæmilegur Lélegur
Mynd 6. Samanburöur á mati sjúklinga og
dómnefndar á útlitsárangri.
góðan eða góðan, en dómnefndin taldi svo
vera í 69% tilvika.
Tölfræðilega marktæk fylgni var ekki á
milli útlitsárangurs og eftirtalinna þátta:
Aldurs sjúklings, staðsetningar æxlis í brjósti,
fjarlægðar æxlis frá geirvörtu, hvort sjúklingur
hafði fengið krabbameinslyfjameðferð,
geislameðferð eða ekki.
UMRÆÐA
Fleygskurður á brjósti vegna krabbameins á
sér tiltölulega stutta sögu. Fyrstu aðgerðir
voru framkvæmdar á þriðja áratugnum, en á
sjötta áratugnum var farið að beita aðgerðinni
í nokkrum mæli hjá sjúklingum sem neituðu
að láta taka allt brjóstið (4, 12, 13).
Samanburðarrannsóknir á fleygskurði og
brottnámi brjóstsins á sjöunda og áttunda
áratugnum leiddu síðan smám saman í ijós,