Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.02.1991, Page 12

Læknablaðið - 15.02.1991, Page 12
54 LÆKNABLAÐIÐ Kólesteról karla 1968 og 1988 og kvenna 1969 og 1988 mg/dl. 300 250 200 150 Þróun áhættuþátta og kransæöadauöa. Karlar 45-64 ára. 1.4 Hlutfall 30 35 40 45 50 55 Aldur 60 65 Mynd 5. MeÖalgildi kólesteróls karla og kvenna mgldl samkvœmt hóprannsókn Hjartaverndar og MONICA rannsókn. Til aS breyta í mmólll margfaldist með 0.02586. 0.2 0.1 0 80 85 Artal 88 68 70 75 Mynd 6. *Hlutfallsleg áhætta á kransœöadauða skýrð af áhœttuþáttunum þremur. Þróun áhættuþátta og kransæöadauöa. Konur 45-64 ára. reykinga, slagbilsþrýstings og kólesteróls 1968-1988 fyrir karla og 1969-1988 fyrir konur 45-64 ára, ásamt þriggja ára meðaltölum dánartíðni úr kransæðastíflu í sömu aldurshópum á sama tímabili. Á myndunum sést að heildaráhætta af völdum þessara þriggja þátta hefur farið lækkandi frá fyrri hluta áttunda áratugsins og náð 34- 37% lækkun 1988 (tafla IV). Sú lækkun heildaráhættu er mjög svipuð og lækkun dánartíðni af völdum kransæðasjúkdóms í sama aldurshópi. Eins og sést af töflu IV hafa áhættuþættimir þó ekki verið alveg samstiga. Kólesteról tekur að lækka þegar um 1970 en blóðþrýstingur er þá enn í vexti og virðist ná hámarki 1971-1972. Síðan hefur hann lækkað ört en ekki dregur úr reykingum að marki fyrr en eftir 1980. Meðal kvenna virðist tíðni kransæðadauða fylgja áhættuþáttum náið en meðal karla sýnist vera um tímahliðrun að ræða. Neyslutölur: Matarvenjur íslendinga breytast töluvert á þessu tímabili (sjá töflu VI). Neysla á nýmjólk minnkar verulega en þess í stað eykst neysla á undanrennu og léttmjólk, en léttmjólk kemur fyrst á markað hér á landi árið 1981. Heildameysla á smjöri og smjörlíki minnkar einnig en ostneyslan eykst mjög og eins verður nokkur aukning á rjómaneyslu. Þegar á heildina er litið minnkar fita úr mjólkurvörum og smjörlíki í fæðu landsmanna 1.4 Hlutfall 1.3 - 1.2 : 1.1 : 0.3 r 0.2 > 0.1 [ Ártal 0 i- ---1-1--I I I---1-1--1-1--1--1-1--1-1--1-1--1--1 68 70 75 80 85 88 Mynd 7. *Hlutfallsleg áhœtta á kransæöadauða skýrð af áhœttuþáttunum þremur. um 20 af hundraði á þessum ámm, eða úr 86 g/dag í 69 g/dag á hvem íbúa. Aðrar breytingar á fæðuvenjum eru þær helstar að neysla á brauði og öðmm kommat eykst, svo og neysla grænmetis og ávaxta (26). Heildameysla kjöts er svipuð allt tímabilið en samsetning neyslunnar breytist nokkuð. Hlutur kindakjöts minnkar en nauta-, svína- og kjúklingakjöt vegur æ þyngra í neyslunni (19,20). Haldgóðar upplýsingar um þróun fiskneyslu íslendinga skortir en samkvæmt búreikningum Hagstofunnar reiknaðist neysla fiskjar úr sjó árið 1985. vera 119 kg/íbúa á ári og eru Islendingar samkvæmt því mesta fiskneysluþjóð Evrópu (26).

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.