Læknablaðið - 15.02.1991, Page 13
LÆKNABLAÐIÐ
55
SKIL
Niðurstöður þessarar rannsóknar
sýna að heildardánartíðni af völdum
kransæðasjúkdóms hefur lækkað marktækt
eftir 1985 (lækkun 1981/85-1986/88 17% fyrir
karla en 12% fyrir konur). Þessi breyting
virðist hafa átt sér stað fyrr (upp úr 1980)
meðal aldurshópa undir 75 ára aldri en ekki
meðal elstu aldurshópanna.
A sama tíma hefur orðið svipuð fækkun
kransæðatilfella (bæði nýrra og endurtekinna)
þannig að færri kransæðadauðsföll stafa
væntanlega að verulegu leyti af minni
tíðni kransæðasjúkdóms. Dánarhlutfall
þeirra sem fengu kransæðastíflu breyttist
ekki marktækt (44% / 36% 0.05<p<0.1)
á tímabilinu 1981-86 en sambærilegar
upplýsingar liggja ekki fyrir um lengra
tímabil. Þessar niðurstöður gætu því bent
til bættra lífshorfa kransæðasjúklinga en
það mun væntanlega skýrast af frekari
niðurstöðum MONICA-rannsóknarinnar á
næstu árum. Þessi rannsókn náði ekki til
könnunar á breytingum læknismeðferðar
kransæðasjúkdóms annarra en
heildarblóðþrýstingsmeðferðar. Því verður ekki
fullyrt um hversu mikinn hlut breytt meðferð
kransæðasjúkdóms á síðustu áratugum
(svo sem kransæðagræðlingsaðgerðir,
blóðsegaleysandi meðferð, neyðarbíll o.s.frv.)
hefur átt í þeirri breytingu sem hér er
lýst. Sumar erlendar rannsóknir hafa bent
til verulegra áhrifa breyttrar meðferðar
(talið skýra allt að 30% lækkunarinnar),
bæði við bráða kransæðastíflu svo og í
fyrirbyggjandi meðferð eftir kransæðastíflu
með til dæmis betablokkerum (27). Aðrar
rannsóknir hafa þó bent til verulega minni
áhrifa þessara breytinga í meðferð á lífshorfur
kransæðasjúklinga í heild sinni (25). Einnig
er mögulegt að breytt meðferð til dæmis með
tilkomu hjartadeilda (»coronary care units«)
hafi komið í veg fyrir hærri hámarkstíðni
kransæðadauðsfalla en raun varð á, til dæmis
hér á landi.
Breytingar á skráningarlyklum (ICD 6-
9) hafa ekki verið taldar skýra breytingar
á tíðni kransæðadauðsfalla í öðrum
löndum (28). Hérlendis hefur samræmið í
dánarmeinaskráningu væntanlega haldist betur
en víða annars staðar þar sem dánarvottorð
á umræddu tímabili hafa verið yfirfarin af
einungis tveimur sérfræðingum. I MONICA
skráningunni er stuðst við mjög ákveðin
skilmerki (8) og því ætti fyllsta samræmis
Tafla VI. a) Neysla mjólkun’ara og feitmetis (kglíbúalár).
Ár
Matvara 1970 1975 1980 1985 1988
Nýmjólk ................................................. 280 230 200 170 150
Léttmjólk ............................................... - - - 21 34
Undanrenna ............................................... 5.0 6.0 7.0 8.0 -12
Rjómi .................................................... 4.5 6.0 5.8 6.3 6.7
Ostur..................................................... 4.2 5.4 6.0 8.8 10.5
Smjör/smjörlíki ......................................... 21.6 18.4 19.8 17.6 16.8
Fita alls úr
ofangreindum vörum 31.4 27.9 27.6 26.0 25.3
Tafla VI. b) Kjötneysla (kglíbúalár).
Ár
Matvara 1970 1975 1980 1985 1988
Kindakjöt................................................... 39.4 44.6 42.7 39.1 33.2
Nautakjöt................................................... 10.2 9.9 10.6 10.0 13.2
Svínakjöt.................................................... 2.1 2.9 4.7 6.4 9.8
Kjúklingakjöt................................................. 2.1 2.1 3.5 6.0 5.5
Rautt kjöt
kgalls 51.7 57.4 58.0 55.5 56.2