Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1991, Síða 14

Læknablaðið - 15.02.1991, Síða 14
56 LÆKNABLAÐIÐ að vera gætt þar, enda kröfumar meiri en við útgáfu dánarvottorða og því þarf þeim ekki að bera nákvæmlega saman. Niðurstöðumar styrkja þó verulega hvor aðra. Ferilrannsókn Hjartavemdar hefur glögglega sýnt mikið vægi reykinga, kólesterólgildis og blóðþrýstings í áhættu íslenskra karla og kvenna á kransæðasjúkdómi fram yfir sjötugt (15). Því þótti áhugavert að kanna hverjar breytingar hefðu orðið á þessum áhættuþáttum á tímabilinu 1968-88 úr gögnum Hjartavemdar á slembiúrtaki. Niðurstöðumar benda til þess að heildaráhætta af völdum þessara þriggja þátta hafi farið lækkandi frá miðjum áttunda áratugnum og náð 34- 37% lækkun 1988. Þetta bendir til þess að áhrif breytinga á áhættuþáttum komi fyrst fram allmörgum árum síðar í breyttri tíðni kransæðatilfella. Það er einnig athyglisvert að áhættan virðist minnka fyrst meðal þess hóps sem var í einna mestri áhættu (til dæmis efstu 5% kólesteróldreifingarinnar), en það er vel þekkt að þeir sem hafa hæst kólesteról svara best breyttu mataræði. Samkvæmt myndum 6 og 7 virðast breytingar á þessum þremur áhættuþáttum skýra lungann af fækkun kransæðadauðsfalla, að minnsta kosti í aldurshópi 45-64 ára, þar sem hlutfallslækkunin er svipuð á áhættu og dánartíðni. Þetta eru allnokkru meiri áhrif breytinga á þessum þáttum en nokkrar erlendar rannsóknir hafa bent til eða 31-75% (24,25,29,30), en fáar ferilrannsóknir hafa sýnt jafnmikið vægi umræddra þriggja áhættuþátta sem rannsókn Hjartavemdar á Islendingum (15). Jafnframt þótti áhugavert að kanna hverjar breytingar hefðu orðið á mataræði landsmanna síðustu tvo áratugina. A þessu tímabili hafa matarvenjur breyst í átt að minni fituneyslu og þá sérstaklega minni neyslu mettaðrar fitu. Þar vegur þyngst samdráttur í nýmjólkumeyslu og tilkoma léttmjólkur en einnig minni neysla viðbits. Einnig má ætla að kjötfita hafi minnkað nokkuð í fæðunni því meiri fita fer nú í afskurð og unnar kjötvörur eru margar hverjar fituminni en áður. Tölulegar upplýsingar skortir þó þessu til staðfestingar. Ætla má að breytingar sem þessar á mataræði þjóðarinnar hafi marktæk áhrif á kólesteról í blóði landsmanna. Samkvæmt formúlu Keys um samband fituneyslu og kólesteróls í sermi (31) má gera ráð fyrir að samdráttur í neyslu mjólkurfitu og smjörlíkis á þessu tímabili hafi leitt til lækkunar á kólesteróli um 12 mg/dl að jafnaði. Til samanburðar sýnir þessi rannsókn Hjartavemdar að kólesteról hefur lækkað um 16 mg/dl meðal karla og 29 mg/dl meðal kvenna á tímabilinu 1968- 1988. Áðumefndar matvörur vega mjög þungt í fituneyslu Islendinga í heild og því er aukin notkun fituskertra mjólkurvara í stað feitra og meiri hófsemi í notkun smjörs og smjörlíkis greinilega áhrifarík leið til lækkunar á kólesteróli meðal íslendinga. í Bandaríkjunum fór tíðni kransæðadauðsfalla að lækka fyrir 1970 (28,32) eða meira en áratug fyrr en slíkrar breytingar varð vart á íslandi. Á síðustu árum hefur kransæðatilfellum einnig fækkað í mörgum öðrum löndum, til dæmis Noregi, Finnlandi, Ástralíu, Englandi, Belgíu o.fl. (1,29,33), en hins vegar staðið í stað eða jafnvel farið fjölgandi í löndum Austur-Evrópu (1). Vert er þó að hafa í huga mismunandi aðferðir við skráningar í þessum löndum. Þótt ekki verði fullyrt um orsakir þessarar breytingar á tíðni kransæðatilfella þá em þær víða samfara breyttum lífsmáta í þessum þjóðlöndum, svo sem minnkandi reykingum, breyttu mataræði, aukinni líkamshreyfingu og fleiru, sem væntanlega er afleiðing af aukinni umræðu um þessi mál (24,25,30,34). Þessar íslensku rannsóknir renna vissulega stoðum undir þær kenningar að breytt tíðni kransæðatilfella stafi að talsverðu leyti af breytingum á áðumefndum áhættuþáttum og fáar rannsóknir hafa stuðst við jafnvíðtækar upplýsingar sem þessar. SAMANTEKT Heildardánartíðni af völdum kransæðasjúkdóma á Islandi hefur lækkað marktækt eftir 1985 (lækkun 1981/85-1986/88 nemur 17% fyrir karla, 12% fyrir konur). Þessi breyting átti sér stað þegar upp úr 1980 meðal aldurshópa undir 75 ára aldri, en ekki hefur orðið lækkun meðal elstu aldurshópa. Tilfellum af kransæðastíflu fækkaði um 23% á tímabilinu 1981-1986 meðal karla á aldrinum 25-74 ára. Því er ályktað að færri kransæðadauðsföll stafi að verulegu leyti af minni tíðni kransæðasjúkdóms á Islandi. Breyting hefur orðið til hins betra á

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.