Læknablaðið - 15.02.1991, Blaðsíða 26
62
LÆKNABLAÐIÐ
innihald þeirra getur að sjálfsögðu verið afar
misjafnt, bæði heildarmagn og innbyrðis
hlutföll. Lítið hefur borið á rannsóknum þar
sem notaðar hafa verið staðlaðar samsetningar.
f þeim takmörkuðu rannsóknum sem gerðar
hafa verið á verkunum hreinna ginsenosíð
sambanda, hefur komið í ljós, að verkanir
þeirra geta verið mjög ólíkar þrátt fyrir
náskylda efnabyggingu. Þetta kemur ef til
vill ekki á óvart, þegar haft er í huga að
örlitlar breytingar á kjama hjartaglýkósíða og
annarra stera geta breytt miklu um verkun,
frásog, aðgengi, verkunarlengd, og fleira.
Sem dæmi um ólíkar verkanir ginsenosíð
sambanda í rottum má nefna að ginsenosíð
Rgi veldur hækkuðum blóðþrýstingi og örvun
miðtaugakerfis, en ginsenosíð Rb| veldur
hins vegar lækkuðum blóðþrýstingi og hefur
letjandi áhrif á miðtaugakerfið (4). Líklegt er
að virkni ginseng sé háð innbyrðis hlutfalli
ginsenosíða ekki síður en heildarstyrk þeirra.
Athugun á 133 ginseng neytendum (5) leiddi
í ljós að ginseng geti valdið aukaverkunum,
einkum eftir langtíma notkun. Þótt könnun
þessi hafi verið umdeild, þótti hún benda til
að ginseng gæti valdið aukaverkunum sem
svipa til einkenna kortikósteraeitrunar. Þá má
nefna að neysla ginseng og notkun snyrtivara
sem innihalda ginseng eru talin hafa valdið
blæðingum i leggöngum (6). Ofangreindar
aukaverkanir hafa verið raktar til skyldleika
ginsenosíða við stera.
FRAMKVÆMD
Sýni voru keypt í verslunum í Reykjavík, en
einnig lögðu nokkrir innflytjendur fúslega
fram sýni fyrir milligöngu Lyfjaeftirlits
ríkisins.
Ginseng er selt á ýmsu formi; sem hylki
(innihalda ýmist malaða rót eða extrakt), te,
tónik, extrakt (fljótandi eða þurrt), töflur o.fl.
í töflu I er lýsing á þeim ginseng afurðum
sem athugaðar voru í þessari rannsókn.
Einnig er getið helstu upplýsinga sem
fram koma á umbúðum varðandi innihald,
skammtastærðir og meintar verkanir. í sumum
tilfellum gefa framleiðendur ráðleggingar
um skammtastærðir fyrir böm. Eins og
sést eru upplýsingar mjög breytilegar eftir
framleiðendum. Hvergi er getið um magn
ginsenosíð sambanda. I flestum tilfellum er
gefið upp samband milli einingar/dagskammts
og magns rótar, það er að tiltekinn skammtur
samsvari ákveðnu magni rótar. Þetta gefur
hins vegar mjög takmarkaðar upplýsingar,
því að styrkur innihaldsefna getur verið
mjög breytilegur eftir aldri rótarinnar og
ræktunarskilyrðum.
Tvær aðferðir voru notaðar til að greina
ginsenosíð sambönd. Háþrýstivökvagreining
(HPLC) var notuð til magnákvörðunar á
ginsenosíð samböndunum Rb), Rbi, Rc, Rd,
Re, Rf og Rg|. Þunnlagsgreining (TLC) var
notuð til að staðfesta greiningu ofangreindra
og annarra ginsenosíð sambanda (7).
Við útdrátt (extraktion) ginsenosíð sambanda
úr ginseng afurðum var stuðst við aðferð
Besso o.fl. (8). Tekin voru sýni úr ginseng
afurðum (tafla I) sem samsvara 5.0 g af
ginseng rót, samkvæmt upplýsingum á
umbúðum. I tveimur tilfellum (sýni nr. 7
og 8) voru engar upplýsingar um innihald
ginseng rótar. Af sýni nr. 7 voru tekin 15
hylki og af sýni nr. 8 voru teknir 3 tepokar.
Öll sýni voru leyst í 25 ml af vatni og þvegin
tvisvar með 50 ml af díetyl eter (Merck 921)
til að fjarlægja fituleysanleg efni. Vatnslagið
var síðan úrhlutað (extrakterað) fjórum
sinnum með 50 ml af vatnsmettuðu bútanóli
(Merck 988). Bútanólfasamir voru sameinaðir
og bútanólið inngufað. Eftirstöðvar voru
leystar í 50 ml af metanóli (Merck 6008),
sem síðan var eimað burt undir lofttæmi, en
þetta var gert til að fjarlægja bútanól leifar.
Eftirstöðvar voru leystar í 5.0 ml af metanóli.
Lausnin var síuð gegnum 0.45 /xm himnufilter
(Millex-HV frá Millipore) áður en henni var
sprautað í vökvagreininn.
Við háþrýstivökvagreiningu var stuðst við
aðferð Schulten og Soldati (9). Notaður
var vökvagreinir frá LKB, Bromma; dæla
(2150), 2138 UViCORD-S útfjólublár
skynjari, Rheodyne 7125 sýnaskammtari og
Omniscribe riti. Notuð var súla af gerðinni
Superpac Spherisorb ODS (4.0 mm ID x
10 cm), komastærð 5 /zm. Öll ginsenosíð
voru greind við 206 nm og skriðvökvi var
blanda af asetónítríl (Rathbum HPLC Grade
S) og vatni. Við greiningu á ginsenosíðum
Rbi, Rb2, Rc, Rd og Rf var hlutfall milli
asetónítríls og vatns 30:70 og flæði 2.0
ml/mín. Við greiningu á ginsenosíðum Re og
Rgi var hlutfallið 18:82 og flæði 2.5 ml/mín.
Samanburðarefni (Carl Roth) voru leyst í
metanóli.