Læknablaðið - 15.02.1991, Síða 28
64
LÆKNABLAÐIÐ
Tafla II. Niöurstöður ginsenosíð mœlinga með háþrýstivökvagreiningu. Sýni eru merkt samkvœmt töflu I. Upplýsingar
um ráðlagðar skammtaslœrðir eru fengnar af umhúðum.
Sýni nr. Ginsenosíö (mg) í g af ginseng rót Rb| Rb2 Rc Rd Re Rf Rgi Heildarmagn Ráölagöur skammtur sem ginseng rót (g/dag) Heildarmagn ginsenosíöa í dagskammti fulloröinna (nig)
1 2.8 2.1 1.9 1.0 1.0 0.4 0.9 10.1 1.5 14.7
2 1.2 0.9 0.8 0.8 0.3 0.2 0.4 4.6 1.4 6.4
3 0.4 0.2 0.2 0.1 0.7 0.1 0.2 1.8 0.5-1.0 0.9- 1.8
4 2.2 1.6 1.6 1.2 0.3 0.2 0.2 7.3 2.5-7.5 18.3-54.9
5 3.9 3.0 2.3 0.9 0.5 0.5 0.1 11.2 0.6-1.8 7.4-20.2
6 - - - - - - - *) 0.5-1.0 -
7a) 0.4 0.4 0.3 0.2 0 0.2 0 1.5 a) 0.5-5.0
8b) 1.4 0.8 0.6 0.3 0.7 0.1 0.4 4.3 b) 4.3-17.2
*) I sýninu vottar fyrrir ginsenosiðum Rb| og Rci en heiidarmagri er <0.1 mg í g af gingseng rót.
a) Á umbúöum fylgja engar upplýsingar um innihald ginseng rótar. Niöurstööur eru því gefnar sem ginsenosíö (mg) í g af extrakti.
b) Á umbúðum fylgja engar upplýsingar um innihald ginseng rótar. Niöurstööur eru því gefnar sem ginsenosíö (mg) í einum tepoka.
NIÐURSTÖÐUR OG UMRÆÐA
Niðurstöður úr HPLC greiningu ginsenosíða
eru sýndar í töflu II. I öllum tilfellum var
greining toppa (peak identification) á HPLC
rófum staðfest með TLC greiningu. Eins og
sést í töflu II, er talsverður munur milli sýna,
bæði hvað varðar magn einstaka ginsenosíða
og heildarmagn ginsenosíða.
Heildarmagn ginsenosíða í sýnunum var
frá því að vera vart greinanlegt (sýni nr.
6) upp í það að vera 11.2 mg/g af ginseng
rót (sýni nr. 5). í flestum sýnum er mest af
ginsenosíð Rbj. Miðað við magn ginseng
rótar eru dagskammtar fullorðinna (samkvæmt
tilmælum framleiðenda) mjög misjafnir
eftir vörutegundum, liggja frá 0.5 g til
7.5 g rótar, og niðurstöðumar sýna að
ekki er samræmi milli ráðlagðra skammta
og magns ginsenosíða. Að undanskildu
sýni nr. 6 var heildarmagn ginsenosíða í
dagskammti fullorðinna (samkvæmt tilmælum
framleiðenda) frá því að vera 0.5 mg (sýni
nr. 7) upp í tæplega 55 mg (sýni nr. 4). Með
»heildarmagni« er hér átt við heildarmagn
þeirra ginsenosíða sem voru magngreindir.
Þunnlagsgreining sýndi, að í sumum sýnum
fundust eitt til þrjú ginsenosíð auk þeirra
sem voru magngreind hér með HPLC. Þar
sem ekki fengust samanburðarefni fyrir
þessi ginsenosíð, var hins vegar ekki hægt
að magngreina þau. Þó er talið, að þau
ginsenosíð sem voru magngreind séu aðal
virku innihaldsefni ginseng rótar.
Ofangreindar niðurstöður sýna, að magn
virkra efna í ginseng afurðum getur verið
rnjög breytilegt og ekki virðist samræmi
milli ráðlagðra skammtastærða og styrks
virkra efna. Niðurstöðumar benda til, að
ginseng rætur sem notaðar eru við framleiðslu
ginseng afurða séu afar misjafnar hvað varðar
ginsenosíð innihald. Einnig er hugsanlegt, að
misvel takist að varðveita ginsenosíð sambönd
við meðhöndlun rótanna. Giriseng rætur eru
dýrar í ræktun, meðal annars vegna þess að
uppskera fer ekki fram fyrr en fjórum til sex
árum eftir sáningu. Því er ekki óhugsandi
að ginseng extrökt séu stundum drýgð með
öðrum ódýrari efnum. í athugun, sem gerð
var í Bandaríkjunum (10) á ginseng afurðum,
kom í Ijós að styrkur ginsenosjða var mjög
breytilegur og í um þriðjungi sýna greindust
engin ginsenosíð.
Tilgangur þeirrar athugunar, sem hér var
gerð, var fyrst og fremst að finna leið til
að magngreina virk efni í náttúruvöru sem
er vinsæl meðal almennings, en seld án
vitneskju um innihald, og bera saman virk
innihaldsefni í mismunandi samsetningum. Þar
sem enn vantar mikið upp á að vitað sé um
verkanir ginseng, heppilegar skammtastærðir,
milliverkanir þess við lyf og aukaverkanir,
er ógerlegt að meta virkni eða aukaverkanir
sem vænta megi af töku ofangreindra sýna.
Aður en hægt verður að taka slíka afstöðu,
verða að liggja fyrir niðurstöður úr klínískum
rannsóknum sem framkvæmdar eru með
stöðluðum samsetningum.