Læknablaðið - 15.02.1991, Qupperneq 41
TÖFLUR: G 03 A B 03. Hver pakkning inniheldur 6 Ijósbrúnar töflur, 5 hvitar töflur og 10 gular töflur. Hver Ijósbrún tafla inniheldur: Levonorgestrelum INN 50 míkróg,
Ethinylestradiolum INN 30 míkróg. Hver hvít tafla inniheldur: Levonorgestrelum INN 75 míkróg, Ethinylestradiolum INN 40 mikróg. Hver gul tafla inniheldur: Levon-
orgestrelum INN 0,125 mg, Ethinylestradiolum INN 30 míkróg. Eiginlelkar: Getnaöarvarnalyf, blanda af östrógen/prógestógen i breytilegu hlutfalli eftir tíðahringnum.
Hindrar egglos, breytir leghálsslimi þannig, aö sæöisfrumur komast síöur i gegn og breytir einnig legbolsslimhúð þannig, aö frjóvgað egg getur síður búiö um sig. Frá-
sogast vel, helmingunartimi 24—26 klst. Umbrotið f lifur. Ábendingar: Getnaöarvörn. Frábendingar: Þar sem lyfiö eykur storknunartilhneigingu blóðs, á ekki aö gefa
þaö konum með æðabólgur í fótum, slæma æðahnúta eöa sögu um blóðrek. Lifrarsjúkdómar. Öll æxli, ill- eöa góðkynja, sem hormón geta haft áhrif á. Sykursýki og
háþrýstingur geta versnað. Tiðatruflanir af óþekktri orsök. Grunur um þungun. Aukaverkanir: Vægar: Bólur (acne), húðþurrkur, bjúgur, þyngdaraukning, ógleði, höfuðverk-
ur, mígreni, þunglyndi, kynkuldi, sveppasýkingar (candidiasis) i fæðingarvegi, útferð, milliblæðing, smáblæðing, eymsli í brjóstum. Porfyria. Alvarlegar: /Eðabólgur og
stiflur, segarek (embolia) til lungna, treg blóðrás í bláæðum. Háþrýstingur. Sykursýki. Tiðateppa i pilluhvíld. Varúö: Konum, sem reykja er miklu hættara við alvarlegum
aukavérkunum af notkun getnaöarvarnataflna, en öðrum. Milliverkanir: Getnaðarvarnatöflur hafa áhrif á virkni ýmissa lyfja, t.d. blóðþynningarlyfja, lyfja gegn sykursýki
o.fl. Barbitúrsýrusambönd, lyf gegn flogaveiki og rífampícin geta hins vegar minnkað virkni getnaðarvarnataflna, séu þau gefin samtímis. Einnig hafa getnaðarvarnalyf
áhrif á ýmsar niöurstöður mælinga í blóöi, svo sem hýdrókortisóns, skjaldkirtilshormóns, blóðsykurs o.fl. Skammtastærðir: Ein tafla daglega frá og meö 1. degi tíðablæð-
inga í 21 dag samfleytt. Fyrst eru teknar 6 Ijósbrúnar töflur, þá 5 hvítar og síðan 10 gular töflur. Síðan er 7 daga hlé, áður en næsti skammtur er tekinn á sama hátt og
áður. Pakkningar: 21 stk. (þynnupakkað); 21 stk. (þynnupakkaö) x 3. Hverri pakkningu lyfsins skal fylgja íslenskur leiöarvfsir meö leiöbeiningum um notkun lyfsins og
varnaðarorö.
Triquilar
w ■ ■ ■
ri
Triquilar - nú í
skífupakkningu
Pakkning mest notuðu
þriggjafasa P-pillunnar
á íslandi er orðin:
-auðveldari
-handhægari
-einfaldari
Þannig er farið að:
Losaöu hringlaga
límmiöann.
Festu hann á miöjuna á
framhliö Triquilar spjaldsins
þannig að réttur byrjunardagur
nemi viö rauða byrjunarreitinn.
SCHERING AS
Fjeldhammervej 8
DK-2610 Redovre
StEFAN ThöRARENSEN hf.
Síðumúli 32