Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.02.1991, Síða 52

Læknablaðið - 15.02.1991, Síða 52
88 LÆKNABLAÐIÐ (Diagnostic Interview Schedule) voru 24-38% viðtalanna hjá fagfólki með sérþekkingu í geðsjúkdómum (mental health specialists). Þetta þýðir að allt að 76% viðtalanna voru hjá öðrum sérfræðingum og almennum læknum. Einstaklingar með annars vegar kvíðasjúkdóm eða minnisbilun voru lfklegri til að vera í meðferð hjá almennum læknum eða öðrum sérfræðingum en þeir, sem voru greindir með aðra geðsjúkdóma (14). Þessi könnun staðfestir að heimilislæknar vísa fáum einstaklingum til geðlæknis. Ef marka má þessa athugun er hópurinn, sem sérfræðingar senda til geðlæknis, mun stærri. Því er áhugavert að athuga á hvem hátt sjúkdómsgreiningar hafa áhrif á tilvísunarbeiðnir til geðlækna. Þetta er ekki hvað síst áhugavert þar sem ýmsar rannsóknir hafa leitt í ljós að meðferð hjá geðlækni minnkar notkun annarrar læknisþjónustu (16). Sérlega á þetta við um sjúkrahúsþjónustu þeirra sem eru 55 ára og eldri. Þessi lækkun á kostnaði er meiri en nemur þeim kostnaði sem geðlæknismeðferð utan legudeilda kostar (16). í töflu III kemur fram á hvem hátt tilvísunarleiðir eru breytilegar eftir sjúkdómsgreiningum. Athyglisvert er, að einstaklingar með geðsjúkdóma þar sem líkamleg einkenni em aðaleinkennin (somatoform disorder), koma til geðlæknis fyrir milligöngu annarra lækna í nær fjórum tilvikum af hverjum fimm. Einstaklingar með kvíðasjúkdóma eins og angistarsjúkdóm (panic disorder) er vísað til geðlæknisins af öðrum læknum í 65% tilfella. Sérstaklega er áberandi hve stór hluti þessara einstaklinga kemur frá sérfræðingum. Einnig er ljóst að alvarlegri tegundir þunglyndis koma fyrir milligöngu lækna í 60% tilvika. I vægari þunglyndistilvikum er um milligöngu annarra lækna að ræða hjá 40% einstaklinganna. Einstaklingar, sem eiga í erfiðleikum í hjónabandi eða eiga við annan vanda að stríða innan heimilis, leita aðstoðar geðlæknis beint, eða í næstum 85% tilvika. Læknar hafa sárasjaldan milligöngu í slíkum tilvikum. Hér hefur verið skýrt frá því eftir hvaða leiðum sjúklingar koma til geðlæknis. Einnig er skýrt frá sjúkdómsgreiningum flokkuðum eftir DSM-III-R og skiptingu einstaklinganna eftir aldri. Loks er skýrt frá tilvísunarleiðum eftir því hver sjúkdómsgreiningin er. Akveðnir annmarkar eru á athugun eins og þessari þegar eingöngu er litið á starf eins geðlæknis. Hér er þó um að ræða stóran hóp einstaklinga, sem kom á meira en sjö ára tímabili og ákveðinn lærdóm má draga af könnun sem þessari. Aðalniðurstöðumar eru þær að heimilislæknar og heilsugæslulæknar vísa hlutfallslega fáum sjúklingum til meðferðar hjá geðlækni. Sjúkdómsgreiningar hafa áhrif á tilvísunarleiðir eins og kannski mátti búast við. SUMMARY A study was carried out on 1608 patients who came to a psychiatrist’s private office in 1982- 1989. Eight hundred forty one or 52.3% were self- referred. Four hundred fifty eight or 28.5% were referred by other medical specialists, but only 260 or 16.2% were referred by general practitioners. Mental health professionals referred 49 individuals or 3.0% of the total sample. The sample consisted of 1023 women or 63.6% and 585 men or 36.4%. Affective disorders were the most common diagnosis or around 42% of the individuals in the group, followed by anxiety disorders. Marital problems and parent-child problems counted for almost 14.5% of the diagnoses. Individuals 25 years and older seek psychiatric help more frequently than younger individuals and people who have reached the age of 45 and especially after the age of 65. The results indicate that patients’ diagnoses affect their pathways to psychiatric care, for example patients with somatoforrn disorder and panic disorder are referred to a psychiatrist from other physicians, but individuals with marital problems and parent-child problem are usually self- referred. HEIMILDIR 1. Einarsson I, Magnússon E, Ólafsson Ó. Könnun í heilsugæsluþjónustu 16.-22. október 1981. Læknablaðið 1984; 70: 225-36. 2. Valdimarsson H, Stefánsson J, Agnarsdóttir G. Læknisstörf í héraði. Læknablaðið 1969; 55: 15-35. 3. Magnússon G, Sveinsson Ó. Könnun á heilbrigðisþjónsutu í Skagafirði. Læknablaðið 1976; 62: 167-79. 4. Guðmundsson G. Könnun á sjúkdómatíðni í Djúpavíkurlæknishéraði. Læknablaðið 1977; 63: 41-3. 5. Njálsson Þ. Skráning og vinnsla samskipta á Heilsugæslustöðinni á Hólmavík 1. júlí 1985 - 30. júní 1986. Læknablaðið 1988; 74: 225-63. 6. Önundarson B. Drög að könnun á störfum 9 heimilislækna í Reykjavík. Læknablaðið 1974; 60: 52-72. 7. Sigvaldason H, Einarsson I, Bjömsson O, Ólafsson Ó, Sigfússon S, Klemensdóttir Þ. Könnun á læknisþjónustu á landsbyggðinni 16.-22. september

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.