Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.01.1993, Page 11

Læknablaðið - 15.01.1993, Page 11
LÆKNABLAÐIÐ 1993; 79: 5-9 5 Gísli J. Snorrason1, Sigurður Þór Siguröarson1, Sigurður Guðmundsson2, Haraldur Briem2 ÓSKIR UM MÓTEFNAMÆLINGU GEGN ALNÆMISVEIRU Áhættuþættir smits og algengi mótefna gegn alnæmisveiru, lifrarbólguveiru B og C ÁGRIP Rannsóknadeild Borgarspítalans hefur boðið almenningi að fá mótefnamælingu gegn alnæmisveiru án milligöngu læknis frá því í mars 1987. Frá nóvember 1987 hefur mönnum verið gefinn kostur á að svara spumingum um áhættuþætti sem tengjast smiti af völdum veirunnar. Kannað var algengi smits af völdum alnæmisveiru í þessum hópi og einnig algengi mótefna gegn kjarna lifrarbólguveiru B og mótefna gegn lifrarbólguveiru C, þar sem smitleiðir veiranna eru sambærilegar. Samtals bárust 475 beiðnir frá 400 einstaklingum um alnæmispróf á tímabilinu frá mars 1987 til mars 1992. Af heildarhópnum voru 188 konur og 212 karlar, flest yngri en 35 ára (72,5%). Af 401 spumingalista komu fram á 258 (64,3%) þeirra einhverjar ástæður mælingar. Marktækt fleiri konur en karlar gáfu engar ástæður fyrir beiðni uin HIV mótefnamælingu (p<0,05). Af 336 einstaklingum (175 körlum og 161 konu), sem svöruðu spurningalista, gáfu 30 karlar í 40 tilvikum og ein kona í einu tilviki sögu um mök við vændiskonur. Fjörtíu karlmenn gáfu í skyn fjöllyndi í 47 tilvikum og 18 konur gáfu slíkt hið sama í skyn. Fimmtán karlmenn og ein kona voru samkynhneigð. Tveir karlmenn og þrjár konur höfðu neytt fíkniefna í æð. Sjö höfðu fengið blóðgjöf. Þrjátíu og tveir komu til mótefnamælingar vegna kröfu þriðja aðila. Aðrar ástæður nefndu 48 og óraunhæfar ástæður nefndu 50. Af 400 einstaklingum höfðu tveir (0,5%) mótefni gegn alnæmisveiru (báðir karlar), níu Frá 1) læknadeild Háskóla íslands og 2) rannsókna- og lyflækningadeild Borgarspítalans. Fyrirspurnir og bréfaskriftir: Haraldur Briem, rannsókna-og lyflækningadeild Borgarspítalans, 108 Reykjavík. (2,3%) höfðu mótefni gegn lifrarbólguveiru B (átta karlar, ein kona) og 11 (2,8%) höfðu mótefni gegn lifrarbólguveiru C (fimm karlar, sex konur). Marktækt samband fannst milli samkynhneigðar karla og mótefna gegn alnæmisveiru (P<0,05) og milli fíkniefnaneyslu í æð og mótefna gegn lifrarbólguveiru C (P<0,0001). Af þeim 336 einstaklingum, sem gáfu upplýsingar, höfðu 136 (40,5%) sögu um áhættuhegðun. Þótt fjöldi þeirra, sem nýta sér þjónustu þessa sé lítill, benda þessar upplýsingar til þess að starfsemin hafi tilgang. INNGANGUR Fyrsti einstaklingurinn með einkenni um sýkingu af völdum alnæmisveiru (Human Immunodeficiency Virus, HIV) greindist í janúar 1983 á íslandi. Einstaklingum með sjúkdóminn hefur síðan fjölgað jafnt og þétt og um mitt ár 1992 höfðu greinst alls 72 tilvik hérlendis (1). Víða um heim hafa ýmsar leiðir verið farnar til að stemma stigu við útbreiðslu sjúkdómsins. Hafa þær helst verið fólgnar í umfangsmikilli fræðslu annars vegar og hins vegar tilraunum til að finna sýkta einstaklinga þannig að unnt yrði að veita þeim læknishjálp og ráðgjöf sem fyrst. I þessu skyni hvöttu yfirvöld á Islandi allan almenning til að fara í mótefnamælingu gegn alnæmisveiru (2). í því skyni að koma til móts við óskir yfirvalda í þessum efnum hefur almenningi verið boðið að koma að eigin frumkvæði án milligöngu læknis í alnæmispróf á rannsóknadeild Borgarspítala frá því í mars 1987. Takmarkaðar upplýsingar eru tiltækar um ástæður þess að fólk sækist eftir mótefnamælingu gegn alnæmisveiru undir nafnleynd og var því leitað eftir slíkum upplýsingum. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna áhættuþætti alnæmis í hópi

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.