Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.01.1993, Qupperneq 20

Læknablaðið - 15.01.1993, Qupperneq 20
14 LÆKNABLAÐIÐ sem fékk geislajoðmeðferð á tímabilinu. Árið 1991 fékk 51 sjúklingur meðferð fram til októberloka, og þeirra sem fá aðra meðferð á því ári er ekki getið sérstaklega, enda önnur meðferð oftast gefin þremur til níu mánuðum eftir fyrstu meðferð. Það eru ekki ákveðnar hreyfingar milli ára í neinum hinna mældu þátta nema að fjöldi sjúklinga virðist ef til vill aukast, ef dæma má af fjölda sjúklinga á árinu 1991, en þá bættust sex sjúklingar við fram til áramóta og urðu 57 talsins. Karlar eru 19,1% af hópnum. Aldursdreifing sjúklinganna er sýnd í mynd 1. Þar eru allir, sem fengu eina meðferð og þeir 41 sem fengu fleiri skammta. Flestir komu til meðferðar á aldrinum milli 35 og 65 ára og tíðni endurtekinna meðferða var frá þremur til sex í þeim aldurshópum. Hafa verður í huga að önnur meðferð frá árinu 1991 er ekki talin með, en tíðni einstaklinga með endurtekna meðferð, eina eða fleiri, fyrir árin þar á undan var 19% eða tæplega fimmti hver sjúklingur, sem hefur verið áfram með ofstarfsemi eftir fyrstu meðferð. Oreglulegur púls var algengur eða 53% yfir heildina og dreifðist nokkuð jafnt meðal aldurshópa, var þó heldur lægri eða 30% og 25% fyrir aldurshópana 21-25 og 26-30 ára. Betablokkera, aðallega propranólól, notuðu 39% allra sjúklinganna og 53% þeirra sem höfðu óreglulegan hjartslátt. Hjá hluta sjúklinganna voru T4 og TSH mæld í sermi þremur (76% sjúklinga) og sex (52% sjúklinga) mánuðum eftir meðferð. Þegar mælt var í sama sjúklingi, var talsvert misræmi í þessum tveimur mælingum, einkum bar á þessu ef TSH var hækkað umfram efri viðmiðunarmörk, en þá var T4 oft ekki lækkað að sama skapi. Slíkt ósamræmi var í 30% tilfella eftir þrjá mánuði og í meira en 50% tilfella eftir sex mánuði. Þetta misræmi kom einnig fram í því, að TSH mælingamar gáfu til kynna 30,2% vanstarfsemi kirtilsins eftir þrjá mánuði en T4 mælingamar 22%, og eftir sex mánuði benti TSH mælingin til 27% en T4 mælingin til 13% vanstarfsemi. Mælingunum bar hins vegar vel saman varðandi ofstarfsemi kirtilsins, en TSH niðurstöður bentu til 51% ofstarfsemi eftir þrjá og sex mánuði og T4 niðurstöður bentu til 47% og 49% eftir sömu tímabil. Miklar breytingar urðu á gildum hormónanna í Number of patients 35-i 30- 25- 20- 15- ■ 1. treatment A9e 2. treatment Fig. 1. Age distribution of patients who had only one radioiodine treatment and those who needed a second treatment or more. sumum sjúklingum frá því mælt var þremur mánuðum eftir meðferð og þar til mælt var aftur þremur mánuðum síðar. Samkvæmt TSH mælingunum varð þannig um þriðjungur vanstarfandi kirtla réttstarfandi eða ofstarfandi og ofstarfandi kirtlar rétt- eða vanstarfandi í sama mæli á þessu þriggja mánaða tímabili. Kirtilstærð, aldur, geislaskammtur og fleiri mælingarþættir við fyrstu komu voru kannaðir hjá þeim sjúklingum, sem fengu aðeins eina meðferð og einnig hjá þeim, sem fengu tvær eða fieiri geislameðferðir. í töfiu II eru þessir þættir bornir saman og kemur þá í ljós að kirtilþungi, serum T3 og fjögurra klukkustunda og 24 klukkustunda upptaka eru marktækt hærri hjá þeim hópi, sem ekki svaraði fyrstu meðferð, og þurfti einn eða fleiri skammta til viðbótar vegna ofstarfsemi kirtilsins. Á mynd 2 er sýnd tíðnidreifing kirtilstærða og voru 20 til 30 g kirtlar algengastir meðal þeirra er fengu aðeins eina meðferð og einnig hinna sem fengu fleiri. Hjá þeim, sem þurftu fleiri en eina meðferð, er kirtilstærðin aftur á móti greinilega öðruvísi dreifð með tiltölulega mun fleiri kirtlum yfir 30 g. Ekki reyndist vera marktæk breyting á þyngd skjaldkirtilsins eftir aldri sjúklinganna. Þegar svörin voru könnuð, sem bárust frá sjúklingum við spumingalista þeim sem sendur var út, kom í ljós að 34% sjúklinganna fengu vanstarfsenii í skjaldkirtilinn innan átta mánaða (0,7 ár) frá meðferð og innan tveggja

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.