Læknablaðið - 15.01.1993, Síða 12
6
LÆKNABLAÐIÐ
sem sjálfviljugur kæmi í mótefnamælingu og
leggja mat á samsetningu hópsins með tilliti
til aldurs- og kyndreifingar.
Auk þess voru mæld mótefni gegn kjama
lifrarbólguveiru B (hepatitis B core antibody,
anti-HBc) og lifrarbólgu C (hepatitis C virus,
HCV) þar sem smitleiðir þeirra eru að mörgu
leyti sambærilegar smitleiðum alnæmisveiru
(3). Ætlunin með því var að kanna hvort
tilvist slíkra mótefna gæti gefið vísbendingu
um áhættuhegðun þeirra sem leituðu eftir
prófi.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Rannsókn þessi tók til allra þeirra sem leituðu
án milligöngu læknis til rannsóknadeildar
Borgarspítalans frá marsbyrjun 1987 til
marsbyrjunar 1992 í því skyni að fá gerða
mótefnamælingu gegn alnæmisveiru.
Fólki var gert kleift að biðja um og fá
framkvæmda slíka mótefnamælingu án
þess að segja starfsfólki í móttökunni til
nafns. Viðkomandi var hins vegar beðinn
um að færa persónuupplýsingar á þar til
gert eyðublað, setja það í umslag sem síðan
var sent smitsjúkdómalæknum spítalans sem
trúnaðarmál. Blóðsýnin voru eingöngu merkt
upphafsstöfum, fæðingarmánuði, ári og kyni.
Fólki var síðan gefinn kostur á að hringja í
læknana til að ræða niðurstöður rannsóknanna
og fá ráðgjöf um sjúkdóminn. Frá því
í nóvember 1987 var fólki sem kom til
mótefnamælinga gegn alnæmisveiru jafnframt
gefinn kostur á því að útfylla staðlaðan
spumingalista með persónuupplýsingum sem
sendar voru smitsjúkdómalækni í trúnaði. Á
listanum var fólk beðið um að svara játandi
eða neitandi spumingum um áhættuþætti
alnæmis: Kynmök við vændiskonu, kynmök
við marga, kynmök við einstakling af sama
kyni, fíkniefnaneyslu í æð eða hvort það
hafði þegið blóðgjöf. Jafnframt var fólki
gefinn kostur á að nefna aðrar ástæður en
þær sem tilgreindar voru á listanum. Var
þeim skipt niður í þá sem gáfu upp aðra
mögulega áhættuþætti en þá sem nefndir
voru á listanum, óraunhæfar ástæður (það er
ástæður sem ekki hafa verið taldar tengdar
smitun) eða komu vegna kröfu þriðja aðila,
þ.e. þegar annar en viðkomandi einstaklingur
sjálfur eða læknir hans fór fram á mælingu.
Allar uppgefnar ástæður voru taldar með í
greiningu á niðurstöðum.
Fjöldi
□ Karlar Aldurshópar
E3 Konur
Mynd 1. Aldursdreifing einstaklinga sem komu í
mótefnamœlingu á Borgarspítalann frá mars 1987 til
mars 1992, alls 400 manns.
Fjöldi
Mynd 2. Fjöldi beiðna um alncemispróf á hverjum
ársfjórðungi frá árinu 1987 til fyrsta ársfjórðungs 1992.
Mótefni gegn alnæmisveiru voru mæld
með ELISA aðferð (Organon Teknika,
Abbot Laboratories). Jafnframt voru mæld
mótefni gegn kjama lifrarbólguveiru B
og lifrarbólguveiru C með ELISA aðferð
(Organon Teknika, Abbot Laboratories).
Sýni, sem mældust með mótefni gegn
alnæmisveiru, voru prófuð frekar með Western
blot aðferð (Du Pont, Abbot Laboratories) til
staðfestingar.
Upplýsingum af spurningalistum og
niðurstöðum úr ELISA prófum var safnað
saman án persónupplýsinga í gagnagrunni,