Læknablaðið - 15.01.1993, Qupperneq 18
12
LÆKNABLAÐIÐ
Minni vinna, tími og kostnaður eru til dæmis
samfara einum stórum skammti og eftirfarandi
skjöldungshormónagjöf heldur en tveimur til
þremur geislameðferðum með meðfylgjandi
mælingum og lyfjagjöfum, sem auk þess leiðir
ekki alltaf til réttskilds ástands.
Hérlendis var byrjað að gefa geislajoð
(1-131) við Graves-sjúkdómi á árunum
upp úr 1960 og byggðist greiningin á I-
131 upptökumælingum og PBI (protein
bound iodine) mælingum, sem gerðar voru
í Kaupmannahöfn. Arið 1970, eða tíu árum
síðar, jókst greiningargetan á starfsemi
skjöldungs hérlendis, þegar byrjað var að
mæla thyroxine í sermi á Landspítalanum
með grómskilum (chromatography) á súlu
og eftirfylgjandi afoxun á cerium. Var farið
varlega í geislajoðmeðferðina fyrst í stað og
hún aðeins veitt þeim, sem voru komnir yfir
miðjan aldur og áhættusamt þótti að setja í
skurðaðgerð þar sem erfiðleikar gátu komið
upp með lyfjameðferð. A árunum 1980 til
1985 fer geislameðferð að verða algengari og
innkirtlafræðingar að biðja meir um hana fyrir
sjúklinga beint af stofum sfnum.
Hingað til hefur aðeins ein heildstæð könnun
farið fram á árangri geislameðferðarinnar
hér á landi fyrir 24 árum (16) og því ekki
vitað hver hann er í dag, sérstaklega ekki
þegar meir en eitt ár líður frá meðferð.
Astæða var einnig til að ætla, að hann gæti
verið nokkuð annar en hjá öðrum þjóðum.
Fyrir rúmum 50 árum sýndu rannsóknir
Júlíusar Sigurjónssonar, að skjaldkirtill
Islendinga var minni en annarra þjóða (17).
Síðari rannsóknir Baldurs Johnsen benda
til að hann hafi stækkað nokkuð næstu þrjá
áratugina og nálgist meðaltal annarra þjóða
(18). I þessari grein höfum við því kannað
árangur geislameðferðar á Landspítalanum á
tæplega sjö ára tímabili sem byrjar á árinu
1985. I könnuninni koma einnig fram ýmsar
staðtölulegar upplýsingar (statistics) varðandi
mælingar á íslenskum sjúklingum með
ofstarfandi skjaldkirtla, en iniðað við könnun á
nýgengi ofskildis (hypothyroidism) á íslandi á
árunum 1980-1982 (19) má ætla að nú séu um
60-80% ofskildissjúklinga meðhöndlaðir með
geislajoði.
EFNIVÍÐUR OG AÐFERÐIR
Sjúklingar: Allir sjúklingar, sem fengið höfðu
geislajoðmeðferð á Landspítalanum á árunum
1985-1990, voru teknir með í könnunina og
einnig sjúklingar á árinu 1991, frá byrjun
ársins til októberloka eða samtals 267
einstaklingar. Sjúklingunum í þessari aftursæju
rannsókn hafði í yfir 90% tilfella verið
vísað af sex innkirtlalæknum til ísótópastofu
Landspítalans til geislajoðmeðferðar, en
nokkur tilfelli komu frá deilduin sjúkrahúsa
eða heimilislæknum. Stærsti hlutinn kom
af stór-Reykjavíkursvæðinu (Reykjavík,
Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavogur,
Seltjamarnes og Mosfellsbær) eða 57%,
sem svarar til hlutfalls íbúafjölda á svæðinu,
og virðist því ekki um bjagað (biased)
val sjúklinga að ræða. Fimm sjúklingar
höfðu farið í skjaldkirtilsaðgerð fyrir
geislajoðmeðferðina og um 25% höfðu
einhvemtíma áður verið á thiourea-lyfjum
vegna ofstarfseminnar en aðeins fjórir þeirra
nokkrum dögum fyrir meðferðina, og enginn
var á slíkum lyfjum þegar geislajoðmeðferðin
fór fram. Betablokkera, langoftast propranólól,
notuðu 103 sjúklingar (39%) fyrir, í og eftir
meðferð samkvæmt fyrirmælum tilvísandi
lækna. Stutt sjúkrasaga var tekin hjá öllum
sjúklingum fyrir meðferð og púls talinn.
Aðferðir: Könmm meðal sjúklinganna: Bréf
með spurningum voru send til 241 sjúklings,
en 26 af framangreindum hópi voru ýmist
látnir eða fluttir brott af landinu. Sjúklingar
voru spurðir 1) hvort læknir þeirra teldi að
þeir væru með eðlilega skjaldkirtilsstarfsemi,
2) hvort þeir notuðu skjaldkirtilslyf og
ef svo væri, 3) hvort þeir tækju eitthvert
eftirtalinna lyfja: thyroxin, triiodothyronine,
neomercazole, tapazole, propylthiouracil
og/eða eitthvert annað lyf og, ef svo væri,
þá hve lengi lyfið hefði verið notað, 4) hvort
þeir hefðu haft slæm einkenni frá augum
(verki, tvísýni eða annað), 5) hvort þeir
hefðu einhverjar aðrar athugasemdir varðandi
sjúkdóminn. Svör bárust frá 181 sjúklingi
(75,1%) sem stundum höfðu haft samráð við
lækna sína um svörin.
Geislajoðmœlingar: Á öllum sjúklingunum
voru gerðar joðupptökumælingar á skjaldkirtli
áður en geislaskammtur var gefinn. Mæld
var bæði fjögurra klukkustunda og 24
klukkustunda upptaka sem prósenta af
innteknunt geislaskammti og jafnframt var
kirtillinn skannaður. Við upptökumælingarnar
voru notaðir sindurteljarar frá Nuclear
Chicago Inc, Bandaríkjunum og series