Læknablaðið - 15.01.1993, Qupperneq 22
16
LÆKNABLAÐIÐ
Tablc III. Comparison of pretreatment averages in 216 women and 51 men treated with radioiodine.
% g mCi
Years nmol/l nmol/l pmol/l mlU/l % % irreg. gland radio.
Units Age T-4 T-3 FT4 TSH 4 hours 24 hours pulse. size dose
Women
Average........ 51 225 5.4 57 0.11 44 58 53.2 32 5.0
Men
Average........ 49 251 6.4 60 0.1 42 55 52.9 38 6.3
Difference ...... +2 -26 -1.0 -3 0.01 +2 +3 -0.3 -6 -1.3
p........... <0.02 <0.02 <0.05 <0.001
einnig marktækt hærri geislaskammt þar eð 24
klukkustunda upptaka í kirtli þeirra var svipuð
og í konum. Ekki fannst neinn munur á tíðni
hjartsláttaróreglu milli karla og kvenna.
Kannað var algengi vanstarfsemi skjaldkirtils
eftir meðferð á hverju þeirra sjö ára sem
könnunin náði yfir. Niðurstöðurnar er að
finna í mynd 4. Þar sést að marktæk (p<0,02)
aukning er á vanstarfsemi kirtilsins milli
ára frá 1991 til 1985, eða á sjö ára tímabili.
A þessu tínrabili hækkar hundraðshluti
vanstarfsemi úr rúmum 40% á árinu 1991 upp
í tæp 80% á árinu 1985 eða næstum tvöföldun
á sjö árum, en það samsvarar tæplega 6%
aukningu á ári að meðaltali.
Loks voru sjúklingar spurðir hvort þeir hefðu
haft verki eða sjóntruflanir (til dæmis tvísýni)
samfara skjaldkirtilssjúkdómnum. Eins og
sést á mynd 4 kvarta allt frá 4% árið 1989
upp í 40% árið 1985 um augneinkenni. Ekki
er vitað nákvæmlega hvaða merkingu fólk
leggur í það að hafa einkenni frá augunr, en í
viðtölum við sjúklinga kom fram að þeir hafa
oftast haft tiltölulega væg augneinkenni sem
löguðust við geislameðferðina.
UMRÆÐA
A síðasta áratug hefur orðið mikil aukning á
geislajoðmeðferð við ofstarfsemi á skjaldkirtli
hér á landi. A sjöunda og áttunda áratugnum
var fjöldi sjúklinga til ineðferðar tíu og 19,2 á
ári að meðaltali, en var kominn í 31,5 á fyrstu
fjórum árum níunda áratugarins. Samkvæmt
könnun, sem gerð var á vegum Félags um
innkirtlafræði fyrir árin 1980-1982, reyndist
nýgengi ofstarfsemi skjaldkirtils á íslandi
vera 23,56/100.000 (19). Geislajoðmeðferð
er nú gefin hérlendis tæplega 50 sjúklingum
árlega vegna ofstarfsemi í skjaldkirtli og því
um 80% af þeirri tölu sjúklinga sem veikjast
af sjúkdómnum ár hvert hérlendis. Islenskir
Percent of 1-131 treated patients
100-1
1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991
■ hypothyroid Years
hypothyroid regression
H eye symptoms
Fig. 4. Thc post treatment incidence (%) of
hypothyroidism in patients of each year (solid bars).
Tlie regression line for the increasing incidence of
hypothyroidism for eaclt post treatment year is shown (-
*-) and the formula for tlte line is:
y = -6.67x + 647.11; r = -0.8685; p<0.02
Also shown is the percent of patients who had complaints
of eye symptoms while hyperthyroid (hatched bars).
innkirtlafræðingar eru því líkari starfsbræðrum
sínum í Bandaríkjunum heldur en Evrópu
hvað þetta snertir (3).
Geislaskammtamir, sem gefnir hafa verið
sjúklingunum í þessari könnun, teljast til
hinna smærri sem getið er um í greinum
um þetta efni. Þrátt fyrir það er tíðni á
vanstarfsemi skjaldkirtilsins hérlendis innan
árs eftir meðferðina há miðað við uppgefnar
tölur til dæmis frá Bandaríkjunum (8,10)
og Bretlandi (9,22), þar sem notaðir voru
sömu skammtar og hjá jjeim sjúklingahópi
sem hér er fjallað um. I þessum greinum er
nýgengi vanstarfsemi kirtilsins frá 9,7-12%
eftir minnst eitt ár frá meðferð, en niðurstöður