Læknablaðið - 15.01.1993, Síða 27
LÆKNABLAÐIÐ 1993; 79: 21-7
21
Sigurbjörn Björnsson, Guðmundur Þorgeirsson, Helgi Sigvaldason, Nikulás Sigfússon
SAMBAND HJARTSLÁTTARTÍÐNI,
HEILSUFARSÞÁTTA, REYKINGA OG
DANARMEINA
INNGANGUR
Mæling á hjartsláttartíðni er ein algengasta
athugun, sem gerð er við klíníska skoðun.
Mikilvægi þessa þáttar í mati á heilsufari er
að vissu leyti þekkt, sérstaklega þegar ýmsir
sjúkdómar raska líkamsstarfsemi, til dæmis
efnaskiptasjúkdómar, blóðsjúkdómar, sýkingar
og hjarta- og lungnasjúkdómar. Um áhrif
og forspárgildi hjartsláttartíðni á heilsufar,
þegar til lengri tíma er litið, er hins vegar
minna vitað. Þó hafa verið gerðar ýmsar
rannsóknir erlendis á undanfömum árum sem
beinast að þessu (1-3). 1 þessum rannsóknum
hefur jafnframt verið kannað samband
hjartsláttartíðni við þekkta áhættuþætti hjarta-
og æðasjúkdóma.
I rannsókn Hjartavemdar eru stórir hópar
sem fylgt hefur verið lengi eftir, og gefur því
rannsóknin tækifæri til að kanna þessa þætti.
I þeirri athugun sem hér er kynnt, á rúmlega
fimm þúsund íslenskum körlum, er kannað
samband hjartsláttartíðni við áhættuþætti
hjarta- og æðasjúkdóma í mismunandi
hópum eftir reykingavenjum og samband
hjartsláttartíðni við dánarorsakir.
AÐFERÐIR
Þýði: Hóprannsókn Hjartavemdar er
ferilrannsókn, sem hófst haustið 1967.
Frá Hjartavernd. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Sigurbjörn
Björnsson.
Skipulagi rannsóknarinnar, vali úrtaks,
þátttöku og framkvæmd hefur verið lýst í
ritum Hjartaverndar (4). I stuttu máli voru
valdir til þátttöku sextán árgangar karla
sem áttu lögheimili á höfuðborgarsvæðinu
samkvæmt þjóðskrá 1. desember 1966.
Með höfuðborgarsvæðinu er átt við
Reykjavík, Hafnarfjörð, Kópavog, Garðabæ,
Bessastaðahrepp og Seltjamarnes. Boðið var
til rannsóknar í þriðja áfanga öllum þeim
körlum sem fæddir voru árin 1907, ’IO, ’12,
’ 14, ’ 16, ’ 17, ’ 18, ’ 19, ’20, ’21, ’22, ’24, ’26,
’28, ’31 og ’34 og sem voru á lífi samkvæmt
þjóðskrá 1. desember 1973, alls 7995. Aldur
við mætingu var 40-69 ára. Rannsóknin
fór fram á Rannsóknarstöð Hjartavemdar í
Reykjavík en svæðið liggur að mestu innan 11
km fjarlægðar frá rannsóknarstöðinni.
Heimtur: Öllum þátttakendum í þriðja áfanga
var sent boðsbréf. Byrjað var að senda þau
út í ágúst 1974. Vegna fjölda þátttakenda
var útsendingu boðsbréfa deilt á nokkra
mánuði. Þeim sem ekki svöruðu boðsbréfi
var sent annað bréf seint á árinu 1975. Ef
hvorugu bréfanna var svarað, var reynt að ná í
hlutaðeigandi í síma snemma á árinu 1976.
Heildarmæting var 5565 eða 69,6% (tafla I)
en af þeim eru í þessari rannsókn 5434 karlar
eftir afföll, vegna þess að mælingar vantaði á
einhverri þeirra breyta sem hér eru
Table I. Health survey in tlie Reykjavik area. Stage III, 1974-1976: Men. Study population and response.
Birth year Total
1907 1910 1914 1919 1924 1931 1934
1912 1916 1920 1926
1917 1921 1928
1918 1922
Invited ... 299 740 1791 2147 1777 649 592 7995
Examined ... 183 471 1201 1521 1286 481 422 5565
Response % . 61.2 63.6 67.1 70.8 72.3 74.1 71.3 69.6