Læknablaðið - 15.01.1993, Side 28
22
LÆKNABLAÐIÐ
Table II. Health survey in the Reykjavik area. Stage III, 1974-1976: Men. Correlation of resting heart rate with
other variables.
The whole cohort 41-54 years 55-68 years Cigarette smokers Smokers (other than cigarettes) Ex- smokers Never smokers
N:5434 N:2951 N:2483 N:1464 N:1428 N:1311 N:1231
Age ... -0.003 -0.017 -0.003 0.016 -0.010 -0.010 -0.002
Height ... -0.039* -0.028 -0.052* -0.017 -0.041 -0.028 -0.059
Weight .. 0.029 0.051 0.006 0.052 0.004 0.070 0.017
Body mass index .. 0.054** 0.073** 0.032 0.064 0.030 0.095** 0.050
Sum of skinfolds .. 0.076** 0.082** 0.071** 0.091** 0.055 0.098** 0.078*
Cholesterol .. 0.082** 0.093** 0.069* 0.083* 0.093** 0.091** 0.068
Triglycerides ... 0.103** 0.131** 0.070** 0.116** 0.109** 0.056 0.121**
Fasting blood glucose ... .. 0.162** 0.166** 0.160** 0.205** 0.125** 0.148" 0.168"
Hb ... 0.173** 0.187** 0.160** 0.128** 0.209** 0.193** 0.163**
Herit ... 0.183** 0.185** 0.180** 0.130** 0.204** 0.188** 0.193"
ESR .. 0.093** 0.082** 0.104** 0.145** 0.075** 0.090* 0.020
Syst .. 0.241** 0.254** 0.236** 0.235** 0.196** 0.265** 0.299**
Diast .. 0.237** 0.231** 0.246** 0.271** 0.226** 0.234** 0.251"
• p<o.oi •• p<o.ooi
athugaðar eða þær féllu utan vikmarka (tafla
II). Alls nær því könnunin til 68,0% boðaðra
þátttakenda. Ekki var tekið tillit til sjúkdóma
eða lyfjameðferðar hjá þátttakendum.
Hjartsláttartíðni: Hjartsláttartíðni var mæld á
hjartarafriti sem tekið var með hraðanum 50
mm/sek (Mingograf 34) og ákvörðuð þannig
að fjarlægð á milli fjögurra R-takka var
mæld og hjartsláttartíðni lesin af samkvæmt
kvarða (Cardiometer, Type D, Siemens).
Hjartalínurit var tekið að morgni milli klukkan
8.30 og 10.30 eftir nokkurra mínútna legu á
bekk. Þátttakendur voru fastandi í minnst 10
klukkustundir og höfðu ekki reykt í minnst
eina klukkustund.
Aðrar rannsóknir: Blóðþrýstingsmæling var
gerð við sömu komu. Mörk blóðþrýstings
voru skráð við I og V Korotkoff hljóð.
Við blóðþrýstingsmælinguna var notaður
veggfastur kvikasilfursmælir og mansetta af
stærðinni 17,4 x 55 cm við allar mælingar (5).
Aðrar mælingar voru framkvæmdar við sömu
komu. Húðfellingar voru mældar á tveimur
stöðum, yfir miðjum triceps að aftanverðu
og í miðaxillarlínu og var summa þessara
mælinga notuð. Þyngdarstuðull (B-mass
index) var reiknaður sem Quetelet index:
þyngd/hæð2. Blóðsýni voru tekin fastandi
en mælingaraðferðum hefur áður verið lýst
ítarlega (6-8).
Reykingavenjur þátttakenda voru kannaðar
og þeim skipt upp í fjóra eftirfarandi
flokka: þeir sem aldrei höfðu reykt (never-
smokers), fyrrum reykingamenn (ex-smokers),
sígarettureykingamenn (cigarette smokers) og
aðrir reykingamenn (other than cigarettes) sem
reyktu annað en sígarettur.
Tölfrœðileg úrvinnsla: Úrvinnslan greindist
í þrjá hluta bæði fyrir hópinn í heild og
undirhópa, flokkaða eftir aldri eða reykingum.
í fyrsta lagi var gerð fylgnigreining á
hjartsláttartíðni við hverja breytu fyrir sig án
tillits til annarra breyta. T-próf var notað við
marktektarmat á fylgnistuðli
(t = ryj(n- 2)/(l — r2),
þar sem r er fylgnistuðull en n er
fjöldi athugana). í öðru lagi var gert
fjölbreytuaðhvarf í þrepum (stepwise
multiple regression) þar sem háða breytan
var hjartsláttartíðni en aðrar breytur voru
skýribreytur. Notað var BMDP-forritið 2R
(10). í þriðja lagi var gerð aðhvarfsgreining
með hlutfallsáhættulikani Cox (11) til þess að
tínna sjálfstætt forspárgildi hjartsláttartíðni
um dánartíðni vegna kransæðastíflu og
vegna allra æðasjúkdóma í hjarta og heila og
heildardánartíðni. Notað var BMDP-forritið
2L (10). í tveimur fyrstu hlutum úrvinnslu
var heildarfjöldi 5434 en í þriðja hluta 5539
vegna færri breyta og þar af leiðandi færri
einstaklinga sem vantaði einhverja mælingu.
NIÐURSTÖÐUR
Fylgnigreining: Mynd 1 sýnir dreifingu