Læknablaðið - 15.03.1995, Qupperneq 58
264
LÆKNABLAÐIÐ 1995; 81
Lyfjamál 37
Frá Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneyti og landlækni
Notkun magasárslyfja
1989-1994
Á síðustu fimm árum hafa
orðið verulegar breytingar á
notkun magasárslyfja á íslandi.
Heildarnotkun þeirra hefur
minnkað og er þar aðallega um
að ræða minnkun á notkun rani-
tidíns á árunum 1993 og 1994.
Ennþá erum við þó nokkru
hærri en hin Norðurlöndin. Síð-
ustu heildartölur sem liggja fyrir
frá þeim um notkun í ATC-
flokki A02B eru 14,9
DDD/lOOOíb. í Svíþjóð, 9,3 í
Noregi og 8,4 í Finnlandi. Tölur
vantar frá Danmörku. Notkun
pótónpumpublokkara (óm-
eprazól, lanzóprazól) fer alls
staðar vaxandi og er nú mest í
Svíþjóð, 6,3 DDD/lOOOíb.
Minnkunin hér á landi á sér
margar orsakir og eru þessar
líklega helstar:
Ávísanir voru takmarkaðar
við 30 daga notkun í stað 100
daga áður.
Breytt meðferð í kjölfar nið-
urstaðna yfirlitsrannsóknar
Bjarna Pjóðlefssonar o.fl. um
notkun magasárslyfja.
Aukin umræða um meðferð
og mikla notkun magasárslyfja
hér á landi.
Lausasala minnstu pakkn-
inga leyfð í júní 1994.
ísland DDD/lOOOíb.
Nafn 1989 1990 1991 1992 1993 1994
Címetidín 2,34 1,87 1,53 2,63 2,94 2,40
Ranitidín 14,61 17,06 16,17 17,14 15,03 10,93
Famótidín 0,25 0,12 0,10 0,08 0,58 0,37
Ómeprazól 1,14 1,68 2,11 2,36 3,42 4,10
Súkralfat 0,72 0,50 0,43 0,39 0,24 0,21