Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.1996, Side 27

Læknablaðið - 15.09.1996, Side 27
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82 637 sem hámarksþrýstingsfall &30 mmHg; 44 (77%) höföu ósæðarlokukölkun með minna þrýstingsfalli, en 25 (44%) höfðu míturloku- leka, þar af 1° af 4° í f9 af 25 tilfellum. Næmi og sértæki klínískrar skoðunar lækna með tilliti til ómskoðunar var: Fyrir ósæðar- þröng, næmi 62-100% og sértæki 71-77%, fyrir ósæðarlokukölkun, næmi 54-56%, sértæki 85- 92% og fyrir míturlokuleka, næmi 24-52%, sértæki 69-97%. Slagbilsóhljóð eru algeng hjá öldruðum, al- gengari í konum en körlum og tengjast oftast ósæðarlokukölkun en þó í umtalsverðum minnihluta ósæðarþröng. Tvívíddar- og Dopplerómun er hjálpleg við greiningu á ósæð- arþröng, í ljósi þess að greiningin er erfið, þar sem ósértæk slagbilsóhljóð ósæðarlokukölkun- ar og minni háttar míturlokuleki eru yfirgnæf- andi algeng. Niðurstöðurnar eru sambærilegar við það sem lýst hefur verið í erlendum rann- sóknurn. Inngangur Algengi slagbilsóhljóða vex með aldri og heyrast hjá um eða yfir 50% aldraðra sam- kvæmt erlendum rannsóknum (1-3). Aukning- in er fyrst og fremst vegna ósæðarlokukölkun- ar og þykknunar (aortic sclerosis) sem er nú talin algengasta orsök slagbilsóhljóða aldraðra (1,4). Kölkun ósæðarloku getur valdið ósæðar- þröng en aldurstengd kölkun í ósæðarloku er nú algengasta meingerð ósæðarþröngar (5, 6). Aður voru gigtsótt og tveggja blöðkuloka al- gengustu orsakirnar en hin mikla fjölgun aldr- aðra og auknar lífslíkur ásamt fækkun gigtsótt- artilfella hefur raskað hlutföllum. Míturloku- leki er einnig algeng orsök slagbilsóhljóða (7, 8). Klínísk greining á orsökum slagbilsóhljóða með sögu og skoðun getur verið erfið. Sérstak- lega getur verið erfitt að greina meinlausa ós- æðarlokukölkun frá ósæðarþröng (9,10). Einn- ig getur aðgreining ósæðar- og míturloku- óhljóða reynst erfið þar sem því er lýst að hin fyrrnefndu geti heyrst hæst við brodd hjartans (6). Tvívíddarhjartaómun með Doppler rann- sókn hefur reynst gagnleg til orsakagreiningar slagbilsóhljóða og sérstaklega til að ákvarða þrýstifall yfir ósæðarloku og flatarmál hennar og greina þannig marktæka ósæðarþröng (11- 14). Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna algengi og orsakir slagbilsóhljóða aldraðra á íslensku bráðasjúkrahúsi, einnig næmi og sér- tæki klínískrar greiningar samanborið við tví- víddar- og Dopplerómun af hjarta. Efniviður og aðferðir Rannsóknin stóð með hléum, sólarhring í senn, frá 15. febrúar 1993 til 28. febrúar 1994, samtals í 101 sólarhring. Hún tók til þeirra sjúklinga sem urðu 80 ára eða eldri á innlagnar- árinu og lögðust inn brátt á lyflækningadeild Borgarspítalans, óháð innlagnarorsök. Und- anskildir voru þeir sem dvöldu minna en einn sólarhring á gæsludeild, svo og þeir sem lögð- ust inn í annað sinn á tímabilinu eða síðar. Þá voru undanskildir þeir sjúklingar sem höfðu þekktan hjartalokusjúkdóm. Alls uppfylltu 213 einstaklingar upphafsskilyrði rannsóknarinn- ar. Þeir voru á aldrinum 79-101 árs, meðalald- ur 85±4, 84 (39%) karlar og 129 (61%) konur. Af þeim voru 16 útilokaðir en þeir höfðu þekktan hjartalokusjúkdóm sem mögulega or- sök slagbilsóhljóðs eða höfðu verið hjartaóm- aðir eða hjartaþræddir af hjartalækninum. Fjörutíu og fjórum sjúklingum til viðbótar varð að sleppa úr rannsókninni vegna þess að þeir útskrifuðust það fljótt að ekki náðist að skoða þá í tæka tíð, voru fluttir á aðra deild eða létust skömmu eftir komu, eða neituðu þátttöku. Þannig mat deildarlæknir 153 (72%) af þeim einstaklingum sem upphaflega komu til greina, meðalaldur þeirra var 85±4 ár, 60 karlar og 93 konur. Meðalaldur og kynjahlutfall allra þess- ara hópa var sambærilegt. Fimm einstaklingar urðu 80 ára á árinu en höfðu ekki náð þeim aldri þegar rannsóknin fór fram. Deildarlæknir skoðaði sjúklingana með til- liti til slagbilsóhljóða og mældi blóðþrýsting sjúklinga liggjandi og standandi. Sjúklingar voru hlustaðir á hefðbundnum svæðum brjóst- kassans í rúmi í hvíld, útaf liggjandi, á baki og í hliðarlegu og í inn- og útöndun. Þeir voru hlustaðir sitjandi og standandi ef læknir sá ástæðu til. Þeir sjúklingar sem voru tiltækir og höfðu óhljóð að mati deildarlæknis voru síðan hlustaðir af hjartalækni og öldrunarlækni. Skráð var mat læknanna á því hvort óhljóð væri til staðar og sérstaklega hvort míturlokuleki, ósæðarlokukölkun eða marktæk ósæðarþröng væri undirliggjandi. Þannig var einblínt á vinstri hluta hjartans. Hjartalæknirinn framkvæmdi tvívíddaróm- un, M-tæknihreyfiómrit (M-mode echocar-

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.