Læknablaðið - 15.09.1996, Page 33
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
643
við leiðréttingu flestra meðfæddra hjartagalla.
Þessar framfarir má meðal annars rekja til
bættrar greiningar á hjartagöllum. þróunar
nýrrar skurðaðgerðartækni og framfara í gjör-
gæslumeðferð eftir aðgerð (1).
Skurðaðgerðir fyrir ákveðna meðfædda
hjartagalla hafa nú verið framkvæmdar á ís-
landi undanfarin ár en þær höfðu fram að þeim
tíma verið gerðar erlendis, aðallega í Bretlandi
og Bandaríkjunum. Staða íslands er sérstök í
þessu sambandi vegna legu þess og fámennis,
en töluverðar umræður hafa átt sér stað nýlega
um hugsanlegan flutning á hjartaskurðaðgerð-
um á börnum til Islands.
Tilgangur þessarar rannsóknar er að gera
grein fyrir hjartaskurðaðgerðum á börnum
sem gerðar hafa verið hérlendis undanfarin sex
ár. Litið er á tegundir þeirra aðgerða sem hér
eru gerðar, aðdraganda og árangur. Reynt er
að meta þörf fyrir aðrar tegundir hjartaað-
gerða á börnum hérlendis. Einnig er hugað að
þjóðhagkvæmni og sparnaði samfara hugsan-
legum flutningi þessara aðgerða og annarra á
meðfæddum hjartagöllum alfarið til íslands.
Efniviður og aðferðir
Rannsóknin nær til barna og unglinga (18 ára
og yngri) sem gengist hafa undir hjartaskurð-
aðgerð á íslandi vegna meðfædds hjartagalla á
árunurn 1990-1995. í þessu yfirliti eru ekki
teknar með aðgerðir vegna opinnar fósturæðar
í fyrirburum enda því verið gerð skil annars
staðar (3). Um er að ræða afturskyggna rann-
sókn og var farið yfir sjúkraskrár, aðgerðarlýs-
ingar, ómskoðanir og aðrar rannsóknir tengd-
ar þessum sjúklingum. Göngudeildarnætur og
sjúkraskrár frá stofu sérfræðings í hjartasjúk-
dómum voru athugaðar til að kanna afdrif
sjúklinganna.
Við mat á þörf fyrir hjartaaðgerðir hér á
landi var stuðst við upplýsingar frá Trygginga-
stofnun ríkisins og siglingarnefnd um hjartaað-
gerðir á íslenskum börnum erlendis á rann-
sóknartímabilinu. Þá var jafnframt miðað við
faraldsfræðilega rannsókn á algengi með-
fæddra hjartagalla á Islandi (2) og erlendar
athuganir á svipuðu sviði (4).
Tölur sem hér birtast um útreikning og sam-
anburð á kostnaði aðgerða hérlendis og er-
lendis eru fengnar frá Siglinganefnd Trygg-
ingastofnunar ríkisins í samvinnu við nefnd
sem hugað hefur að þessum málum hérlendis
(birtar heimildir). Allar þær aðgerðir sem hér
er lýst voru framkvæmdar erlendis fyrir árið
1990.
Skilgreiningar
Hjartaskurðaðgerðir sem gerðar eru við
meðfæddum hjartagöllum eru tvenns konar.
Tímabundnar aðgerðir (palliative surgery)
miðast að því að bæta tímabundið ástand en
leiðréttingaraðgerð (corrective surgery) leitast
við að leiðrétta gallann eða gera við hann á
varanlegan hátt.
Gerður er greinamunur á bráðum og völdum
(elective) hjartaskurðaðgerðum. Bráðar teljast
þær aðgerðir hér sem nauðsyn þykir að gerðar
séu innan nokkurra klukkustunda eða örfárra
daga, enda sé sjúklingur annars í lífshættu.
Þessir sjúklingar eru jafnan háðir prostagland-
ín dreypi til að halda opinni fósturæð þar til
aðgerð hefur farið fram. Valdar aðgerðir eru
hins vegar þess eðlis að sjúklingur er ekki í
hættu og óhætt er að bíða um tíma með aðgerð-
ina. Þá er jafnframt gerður greinarmunur á
opnum og lokuðum hjartaskurðaðgerðum.
Hjartaskurðaðgerð telst opin ef sjúklingurinn
er tengdur við hjarta-lungnavél við aðgerðina
og vélin látin starfa tímabundið í stað hjarta og
lungna. Hjartaskurðaðgerð telst lokuð ef
hjarta er látið starfa sjálft alla aðgerðina og
jafnvel þótt hjarta-lungnavél sé notuð til að sjá
um blóðflæði um hluta líkamans. Líkamskæl-
ingu er unnt að nota við bæði opnar og lokaðar
hjartaskurðaðgerðir svo og tímabundna skerð-
ingu á blóðflæði ýmist til lungna eða út í líkam-
ann meðan á aðgerð stendur. Mikla líkamskæl-
ingu og algera blóðrásarstöðvun tímabundið
Table Ia. Number of operaríons according to diagnosis.
Newborn infants Older children Total
Male Female Male Female
Coarctatio aortae 2 4 4 4 14
Shunt 3* 1 0 0 4
ASD 0 0 1 3 4
Other operations 0 1 2 1* 4
*} One patient from each group underwent two operations
Table Ib. Operaríons for coarcmion ofthe aorta
End-to-end resection og anastomosis 9
Subclavian flap 4
Resection á aneurisma 1
Total 14