Læknablaðið - 15.09.1996, Side 44
650
LÆKNABLAÐIÐ 1996; 82
Lœknisskoðun: Meini Jóns lýsir Guðmundur
Magnússon þannig:
„Við skoðun sjást þrjár ulceration á og við
vinstri fótlið með slöppum granulationum. Ein
er rétt aptanvið malleolus int. og við að sond-
era hana kemst maður inn í gegnum malleolus
og inn í liðinn. Önnur er á malleolus ext. og er
hægt að sondera nokkuð inn í beinið; við sond-
eringuna á þessum ulcerat. heyrist vel skrapa í
beru beini. Þriðja ulcerationin sést fyrir aptan
og ofan malleolus ext., við sonderinguna finn-
ur maður að rendurnar eru mjög undirminer-
aðar, — kemst m. með sondunni bæði nokkuð
upp á við, langt inn á og niður á við bak við
tendo Achilles. — Útferð er lítil úr sárunum.
Fóturinn er í plantarflexion, myndast e. 130°-
140° horni á milli crus og pes. Við palpation
finnur maður fremri röndina á tibia að neðan-
verðu standa fram. ... Activar hreyfingar í
liðnum engar. Passiv extension og flexion eng-
in, en abduction og adduction normal."
Skurðaðgerðiit: Guðmundur Magnússon
gerði þann 2. maí 1907 aðgerð „í chloroform
æther narkose“ á vinstri ökklalið til að kanna
útbreiðslu sýkingarinnar og nema öklaliðinn
brott. Hann lýsir þessu svo:
„Liðurinn fullur af fungus; brjóskið alveg
horfið af báðum liðflötum en flyksur af því
liggja í grautnum. Pað eru sagaðir 2-3 cm. löng
flaga neðan af crus og talus tekin burt úr fæti og
sýnir sig þá að articul. subtalo er heilbrigður.
Hvergi gengur caries langt inn í beinið en það
er lint eins og grautur og sömul. calc. án þess
maður geti séð í því tuberculosa. Fungus er
skafinn burt úr hásin það sem eptir er sýnil.
tuber. er dissikerað burt; holan brend með
acid. castol. og spir. concentr. Saumað með
fishgut nema gömlu fistlarnir. ..“
Jón hafði mikla verki eftir aðgerðina og fékk
morfínsprautur. Mikil útferð var úr skurðsár-
inu sem gréri ekki heldur kom djúpt drep í
aðgerðarsvæðið bæði húð og bein. Guðmund-
ur lýsir ástandinu svo þann 22 maí: „það gang-
reneraða hefur afmarkað sig, peron. tend.
klipptar burtu; engin festa í beininu“ og þann
1. júní ákveður hann sig og segir í sjúklinga-
dagbókinni: „Það þykir því örvænt að fóturinn
grói og fæst samþykki sjúklings til amputation-
ar.“
Þann 2. júní er „í æthernarcose" gerð „Amp-
utatio cruris" þar sem „sögunin gegnum beinin
verður rétt fyrir ofan miðjan crus“ og beinend-
arnir huldir „með vöðvum sem eru dregnir
Fig. 3. a. The crutch, broken and
repaired in three places. b. The cros-
spiece padded with denim andfasten-
ed with piece of string. c. A robust
repair.
Fig. 4. The cane made from iron int-
ended for reinforcing concrete with
wooden handle joined to it with a brass
rifle shell case.
saman með catgutsaumum" og „skinnin saum-
uð m. fishgut." Jón var verkjalaus strax eftir
aðgerðina og skurðsárin gréru eðlilega.
Um svæfinguna með klóroformi og eter tjáði
Jón sig í útvarpsviðtali við Stefán Jónsson
fréttamann árið 1961 (8) og sagði að Guðmundi
lækni hafi gengið erfiðlega að svæfa sig með
„yngra efninu", en með því „eldra” hefði hann
orðið „steindauður undir eins“. „En mér leið
vel eftir að búið var að taka fótinn”, sagði Jón í
viðtalinu. Jón var Guðmundi afar þakklátur
fyrir hjálpina (9).